Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga

1. fundur 12. janúar 2006 kl. 18:00 - 19:10 Tjarnarsal

BÆJARSTJÓRN SVEITARFÉLAGSINS VOGA

 

FUNDARGERÐ

 

Árið 2006

1. fundur

 

Fundur haldinn í bæjarstjórn fimmtudaginn 12. janúar 2006, kl. 1800 í Tjarnarsal.

 

Mættir: Jón Gunnarsson, Sigurður Kristinsson, Hanna Helgadóttir, Birgir Örn Ólafsson, Hörður Harðarson og Jóhanna Reynisdóttir, bæjarstjóri sem jafnframt ritaði fundargerð í tölvu.

 

 

DAGSKRÁ

 

  1. Kosning í bæjarráð – þrír aðalmenn og þrír til vara.

Borist hafa þrjár tilnefningar um aðalmenn sem eru eftirtaldir:

    • Jón Gunnarsson, bæjarfulltrúi

    • Sigurður Kristinsson, bæjarfulltrúi

    • Birgir Örn Ólafsson, bæjarfulltrúi.

Þar sem fleiri eru ekki tilnefndir en kjósa skal, teljast þeir réttkjörnir til setu í bæjarráði.

 

Borist hafa þrjár tilnefningar um varamenn sem eru eftirtaldir:

    • Hanna Helgadóttir, bæjarfulltrúi

    • Helga Friðfinnsdóttir, varabæjarfulltrúi

    • Hörður Harðarsson, bæjarfulltrúi.

Þar sem fleiri eru ekki tilnefndir en kjósa skal, teljast þau réttkjörin sem varamenn í bæjarráði.

 

  1. Staða aðalskipulagsmála – Ómar Ívarsson frá Landslagi ehf. mætir á fundinn.

Ómar Ívarsson frá Landslagi fór yfir og skýrði stöðu aðalskipulagsmála. Eftir umræður var ákveðið að stefna að kynningar- og samráðsfundi eigi síðar en í mars n.k.

Á slíkum fundi fengju íbúar tækifæri til að hafa áhrif á skipulagsvinnuna áður en lokatillögur verða unnar.

 

 

 

  1. Fjárhagsáætlun 2006 – seinni umræða.

Jóhanna fór yfir forsendur áætlunarinnar.

Helstu niðurstöður eru eftirfarandi samstæðunnar:

Heildartekjur: 439,6 milljónir

Gjöld: 401,7 milljónir

Þ.a. launatengd gjöld 239,5 milljónir

Niðurstaða fyrir afskr.og fjárm. 37,9 milljónir

Rekstrarniðurstaða 17,8 milljónir

Veltufé frá rekstri 43,3 milljónir

Eignir 888,3 milljónir

Skuldir og skuldbindingar 509,2 milljónir

Eigið fé 395,3 milljónir

 

Eftir umræður var fjárhagsáætlunin borin upp til atkvæða og samþykkt með þremur atkvæðum, tveir sitja hjá.

 

  1. Rammasamkomulag Búmanna, Trésmiðju Snorra Hjaltasonar hf. og Sveitarfélagsins Voga um uppbyggingu þjónustukjarna og íbúða fyrir eldri borgara – Þorgrímur Stefánsson frá Búmönnum mætir á fundinn.

Þorgrímur kynnti forsendur verkefnisins. Jón Gunnarsson kynnti rammasamkomulagið. Undirbúningur hefur staðið yfir allt síðastliðið ár. Með samþykkt þessa samkomulags er í fyrsta skipti ráðist í framkvæmdir innan sveitarfélagsins sem beint miða að því að bæta þjónustu við eldri borgara í heimabyggð.

Rammasamkomulagið var undirritað á fundinum.

 

 

 

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 19:10

 

Getum við bætt efni síðunnar?