Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga

250. fundur 06. október 2026 kl. 17:30 - 18:05 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
  • Birgir Örn Ólafsson varaforseti
  • Kristinn Björgvinsson forseti bæjarstjórnar
  • Björg Ásta Þórðardóttir Bæjarstjóri
  • Guðmann Rúnar Lúðvíksson varaforseti
  • Gunnar Júlíus Helgason aðalmaður
  • Hulda Blöndal aðalmaður
  • Áslaug Fjóla Magnúsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Ásta Friðriksdóttir Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Ásta Friðriksdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá

1.Reglur um ritun fundargerða og birtingu fundargagna

2607014

Lagðar eru fram reglur um ritun fundargerða og birtingu fundargagna sem samþykktar voru á fundi 456. fundi bæjarráðs. Bæjarráð vísaði málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Forseti gefur orðið laust.

Til máls tóku: BÁÞ, GJH, BÖÓ

Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Bæjarstjórn samþykkir framlagðar reglur um ritun fundargerða og birtingu fundargagna. Bæjarstjóra er falið að kynna reglurnar fyrir nefndum og starfsfólki sem annast fundargerðir og birtingu fundargagna og sjá til þess að þær verði aðgengilegar á vef sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.

Bókun bæjarstjórnar:
Bæjarstjórn leggur áherslu á aukið gagnsæi og bætta upplýsingagjöf til íbúa. Reglurnar eru liður í þeirri vegferð að gera fundargerðir og fundargögn bæjarstjórnar og fastanefnda sveitarfélagsins aðgengileg almenningi og auðvelda íbúum að fylgjast með störfum sveitarfélagsins.


2.Iðndalur 7 L207399 og Iðndalur 11 L209950 - spilda á milli lóða

2609022

Til umfjöllunar er ráðstöfun landspildu í eigu sveitarfélagsins milli lóða við Iðndal 7 og 11 vegna misræmis milli eldri lóðargagna og gildandi deiliskipulags.
Tillaga forseta að afgreiðslu:
Forseti bæjarstjórnar leggur til að málinu verði vísað til bæjarráðs til efnislegrar umfjöllunar.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að vísa málinu til bæjarráðs.

3.Fræðslunefnd Sveitarfélagsins Voga - 124

2609005F

Forseti gefur orðið laust.

Til máls tóku: BÁÞ

Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

4.Frístunda- og menningarnefnd Sveitarfélagsins Voga - 138

2609004F

Forseti gefur orðið laust.

Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

5.Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga - 457

2609003F

Forseti gefur orðið laust.

Til máls tóku: BÖÓ, BÁÞ

Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

Hlé gert á fundi kl. 17:47

Fundur hefst aftur kl. 17:50

Bókun bæjarstjórnar:
Bæjarstjórn býður Hjördísi Kristinsdóttur og Marinó Stefánsson velkomin til starfa hjá Sveitarfélaginu Vogum og óskar þeim velfarnaðar í nýjum störfum. Bæjarstjórn hlakkar til samstarfsins og þeirra framlags til starfsemi og þjónustu sveitarfélagsins.

Bókun bæjarstjórnar vegna dagskrárliðar nr. 4 og 5:
Bæjarstjórn leggur áherslu á að sveitarfélagið leggi sitt af mörkum til að draga úr kostnaðarhækkunum heimila og stuðla að verðstöðugleika. Við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027 verði stefnt að því að hækkanir almennra gjaldskráa verði að hámarki 2,5%, með hliðsjón af fjárhagsstöðu sveitarfélagsins og því að tryggja lögbundna þjónustu.

6.Umhverfis- og skipulagsnefnd Sveitarfélagsins Voga - 3

2609001F

Forseti gefur orðið laust.

Til máls tók: GJH

Afgreiðsla bæjarráðs:
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

7.Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga - 456

2608007F

Forseti gefur orðið laust.

Til máls tóku: GRL, BÁÞ

Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

Bókun bæjarstjórnar:
Bæjarstjórn fagnar því að sveitarfélagið hafi sent inn umsókn um FIFA Arena. Með umsókninni er kannaður möguleiki á að bæta aðstöðu til íþrótta, hreyfingar og samveru í sveitarfélaginu. Slík aðstaða gæti orðið mikilvæg viðbót fyrir íbúa, ekki síst börn og ungmenni, og stutt bæði skipulagt íþróttastarf og frjálsan leik.
Bæjarstjórn telur rétt að nýta þau tækifæri sem kunna að bjóðast til uppbyggingar í sveitarfélaginu. Við áframhaldandi undirbúning verði þarfir íbúa, aðgengi og góð nýting aðstöðunnar höfð að leiðarljósi. Endanleg afstaða til framkvæmdar verði tekin þegar staðsetning, fjármögnun og aðrar forsendur liggja fyrir.

Fundi slitið - kl. 18:05.

Getum við bætt efni síðunnar?