2607015
Á 455. fundi bæjarráðs var fimmta lið tillagna bæjarstjóra um aðgerðir vegna stöðu í leikskólamálum vísað til fræðslunefndar til umfjöllunar. Var samkvæmt umræddri tillögu lagt til að 4. gr. reglna um námsvist utan lögheimilissveitarfélags yrði breytt með því að bæta við nýjum 5. tölulið í samræmi við tillögu minnisblaðsins. Minnisblað bæjarstjóra var í heild sinni lagt fyrir 123. fund fræðslunefndar til umfjöllunar. Samþykkti fræðslunefnd tillögur að breytingu á reglum um námsvist utan lögheimilis sveitarfélags, samkvæmt framlögðu minnisblaði, og vísaði þeim til bæjarstjórnar til staðfestingar.
Samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.