Kosning yfirkjörstjórnar Sveitarfélagsins Voga og skal kjósa þrjá aðalmenn og þrjá til vara.
Tilnefnd eru Hilmar Egill Sveinbjörnsson, formaður, Svanhildur Kristinsdóttir og Svanborg Svansdóttir sem aðalmenn og Oktavía Jóhanna Ragnarsdóttir, Freydís Jónsdóttir og Erna Margrét Gunnlaugsdóttir sem varamenn.
Forseti gefur orðið laust um tilnefninguna.
Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Samþykkt samhljóða.
2.Tilnefning í Almannavarnarnefnd Suðurnesja utan Grindavíkur
2606035
Tilnefning sveitarfélagsins í Almannavarnarnefnd Suðurnesja utan Grindavíkur og skal kjósa einn aðalmann og einn til vara.
Tilnefnd eru Björg Ásta Þórðardóttir sem aðalmaður og Kristinn Björgvinsson sem varamaður.
Forseti gefur orðið laust um tilnefninguna.
Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Samþykkt samhljóða.
3.Tilnefning í samráðshóp um málefni fatlaðs fólks
2606034
Tilnefning sveitarfélagsins í samráðshóp Suðurnesjabæjar og Sveitarfélagsins Voga um málefni fatlaðs fólks og skal kjósa einn aðalmann og einn til vara.
Tilnefnd eru Snædís Ósk Guðjónsdóttir sem aðalmaður og Súsanna Tómasdóttir sem varamaður.
Forseti gefur orðið laust um tilnefninguna.
Afgreiðsla bæjarstjórnar
Samþykkt samhljóða.
4.Tilnefning í úthlutunarnefnd uppbyggingarsjóðs SSS
2606039
Tilnefning sveitarfélagsins í úthlutunarnefnd uppbyggingarsjóðs SSS og skal kjósa tvo aðalmenn og tvo til vara.
Tilnefnd eru Magnús G. Jónsson Núpan og Gunnar Richter sem aðalmenn og Alexandra Líf Ingþórsdóttir og Snædís Ósk Guðjónsdóttir sem varamenn.
Forseti gefur orðið laust um tilnefninguna.
Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Samþykkt samhljóða.
5.Tilnefning í stjórn svæðisskipulags Suðurnesja
2606038
Tilnefning sveitarfélagsins í stjórn Svæðisskipulags Suðurnesja og skal kjósa tvo aðalmenn og tvo til vara.
Tilnefnd eru Andri Rúnar Sigurðsson og skipulagsfulltrúi Sveitarfélagsins Voga sem aðalmenn og Ingþór Guðmundsson og Jóna Kristbjörg Stefánsdóttir sem varamenn.
Forseti gefur orðið laust um tilnefninguna.
Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Samþykkt samhljóða.
6.Sumarleyfi bæjarstjórnar
2606033
Lögð fram tillaga um sumarleyfi bæjarstjórnar á grundvelli 8. gr. samþykktar um stjórn Sveitarfélagsins Voga.
Lagt er til að sumarleyfi bæjarstjórnar verði frá 1. júlí til 31. ágúst 2026. Bæjarráð hefur samkvæmt ákvæðum samþykkta sveitarfélagsins og með vísan í sveitarstjórnarlög nr. 138/2011 heimild til fullnaðarafgreiðslu mála á meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur. Næsti fundur bæjarstjórnar er áætlaður þriðjudaginn 1. september 2026.
Forseti gefur orðið laust um tillöguna.
Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Samþykkt samhljóða.
7.Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga - 452
2606002F
Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Bæjarstjórn tekur undir bókun bæjarráðs undir lið nr. 7 í fundargerðinni sem er svohljóðandi:
Bæjarráð vísar í bókun bæjarstjórnar á fundi nr. 242 sem haldinn var 25. febrúar 2026. Bæjarráð lýsir yfir vonbrigðum með undirbúning og framkvæmd á þeim breytingum sem nú hafa verið lögfestar á mikilvægum eftirlitsverkefnum sem varða sveitarfélagið, íbúa þess og atvinnulíf. Bæjarráð telur verulegt áhyggjuefni að svo umfangsmiklar kerfisbreytingar komi til framkvæmda með svo skömmum fyrirvara og raun ber vitni.
Bæjarráð tekur málið til umfjöllunar og leggur áherslu á að tryggja þurfi lögbundna þjónustu til ársloka, örugga yfirfærslu verkefna og gagna, skýra upplýsingagjöf til starfsfólks og vandað fjárhagslegt uppgjör vegna breytinganna.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram í samráði við Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja og aðildarsveitarfélögin, þar á meðal með það að markmiði að kortleggja hvaða verkefni verða áfram hjá sveitarfélögunum eftir 1. janúar 2027 og tryggja óslitna framkvæmd opinberra eftirlitsverkefna. Jafnframt lýsir bæjarráð yfir vilja til samstarfs við önnur sveitarfélög um þau verkefni sem eftir standa.
Forseti gefur orðið laust um tilnefninguna.
Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Samþykkt samhljóða.