Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga

246. fundur 13. maí 2026 kl. 17:30 - 18:21 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
  • Birgir Örn Ólafsson forseti bæjarstjórnar
  • Björn Sæbjörnsson varaforseti
  • Eva Björk Jónsdóttir aðalmaður
  • Andri Rúnar Sigurðsson aðalmaður
  • Inga Sigrún Baldursdóttir aðalmaður
  • Friðrik V. Árnason aðalmaður
  • Kristinn Björgvinsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Guðrún P. Ólafsdóttir Bæjarstjóri
  • Ásta Friðriksdóttir Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Ásta Friðriksdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
Áður en gengið var til dagskrár leitaði forseti afbrigða og lagði til við bæjarstjórn að við útsenda dagskrá bættist við dagskrárliður 6 - Færanlegur kennslustofur, dagskrárliður 7 -Miðbæjarreitur (Skyggnisholt 16) - Framtíðarþróun auk fundargerðar 451. fundar bæjarráðs sem verður 8. mál á dagskrá fundarins.
Samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum

1.Ársreikningur 2025

2603024

Bæjarstjórn tekur til síðari umræðu og afgreiðslu ársreikning sveitarfélagsins fyrir árið 2025. Fyrir fundinum liggur ársreikningur 2025, sundurliðun ársreiknings, staðfestingarbréf stjórnenda, endurskoðunarskýrsla löggiltra endurskoðenda sveitarfélagsins og skýrsla um stjórnsýsluskoðun 2025. Lilja Dögg Karlsdóttir, endurskoðandi hjá KPMG, situr fundinn undir dagskrárliðnum.
Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Bæjarstjórn samþykkir ársreikning 2025 samhljóða.

Bókun bæjarstjórnar:
Forseti leggur fram eftirfarandi bókun bæjarstjórnar:
Bæjarstjórn fagnar afar góðri rekstrarniðurstöðu ársins 2025 sem undirstrikar hversu vel hefur tekist að rétta af rekstur sveitarfélagsins á kjörtímabilinu. Um er að ræða bestu rekstrarniðurstöðu í sögu sveitarfélagsins ef frá er talið árið 2007 þegar sveitarfélagið seldi eignarhluta sinn í Hitaveitu Suðurnesja.
Rekstrarniðurstaða A og B hluta nam 351 m.kr. sem er tæpum 200 m.kr. umfram áætlun með viðaukum og rekstrarniðurstöðu síðasta árs. Rekstrarniðurstaða A-hluta var jákvæð um 290 m.kr sem er um 156 m.kr. umfram áætlun. Þá var rekstur aðalsjóðs jákvæður um 127 m.kr. sem endurspeglar traustan grunnrekstur sveitarfélagsins.
Tekjur samstæðu, A og B hluta, námu 2.966 m.kr. á árinu samanborið við áætlun með viðaukum sem nam 2.721 m.kr. Rekstrargjöld samstæðu námu 2.454 m.kr. en áætlun með viðaukum var 2.380 m.kr. Rekstarniðurstaða fyrir afskriftir var því jákvæð um 513 m.kr. samanborið við áætlun með viðaukum þar sem gert varð ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu að fjárhæð 341 m.kr.
Sveitarfélagið heldur áfram að laða til sín íbúa. Íbúum fjölgaði þannig um 9% á sl. ári og hefur fjölgað um 45% á kjörtímabilinu. Rekstrarniðurstaðan ber þess glöggt merki að samhliða örri íbúafjölgun sem skilar sér í talsverðri tekjuaukningu, hefur aukinni skilvirkni í rekstri verið náð. Jákvæð þróun kostnaðarhlutfalla undanfarin ár sýnir þetta vel. Þannig nam launakostnaðarhlutfall A og B hluta í fyrra 47% samanborið við 49,4% árið áður. Rekstrarkostnaðarhlutfall var 34,3% í fyrra samanborið við 35,5% árið 2024. Sveitarfélagið uppfyllir fjárhagsleg viðmið um jafnvægi í rekstri, bæði í samanteknum A og B hluta rekstrar sem og A hluta rekstrar. Þriggja ára uppsöfnuð rekstrarniðurstaða A og B hluta er jákvæð sem nemur 508 m.kr. árið 2025 samanborið við 48 m.kr.árið 2024.
Veltufé frá rekstri styrkist verulega frá árinu áður og nam 533 m.kr. árinu 2025 samborið við 314 m.kr. árið áður og nam veltufé sem hlutfall af rekstrartekjum 18%. Gott fjárstreymi frá rekstri stuðlaði að því að ekki kom til nýrrar lántöku á árinu líkt og áætlað hafði verið. Óhagstæð rekstrarlán frá fyrri tíð voru endurfjármögnuð með láni frá Lánasjóði sveitarfélaga. Gott sjóðsstreymi frá rekstri sýnir aukið heilbrigði rekstrar og getu sveitarfélagsins til að fjármagna fjárfestingar sveitarfélagsins með rekstrarfé umfram fjárfestingar á þessu ári og að hluta á næstu árum samkvæmt fjárhagsáætlun 2026-2029.
Skuldaviðmið skv. reglugerð í árslok 2025 var 38% borið saman við 58% í árslok 2024. Sveitarfélagið er því vel í stakk búið að halda áfram fjárfestingum við uppbyggingu innviða samhliða fólksfjölgun. Þá er veltufjárhlutfall 1,74 sem endurspeglar getu sveitarfélagins til að standa undir skuldbindingum til skamms tíma.
Bæjarstjórn gengur stolt frá borði. Í upphafi kjörtímabils beið það verðuga verkefni að hagræða í rekstri til að tryggja sjálfbærni sveitarfélagsins. Það verkefni hefur gengið vel líkt og niðurstöður ársreiknings sýna. Traust og samvinna er það sem hefur fleytt okkur áfram í átt að sjálfbærni. Er starfsfólki sveitarfélagsins færðar bestu þakkir fyrir hversu vel hefur tekist til.
Fyrst og síðast er það verkefni bæjarstjórnar að stuðla að því að gott sé að búa í Vogum. Nýrrar bæjarstjórnar bíður það verkefni að halda áfram að byggja upp gott samfélag, með fleiri verkfæri í handraðnum á grundvelli mikils bata í rekstri. Það er von fráfarandi bæjarstjórnar að sú bæjarstjórn sem tekur við haldi áfram á sömu braut öllu samfélaginu til heilla.

Til máls tóku: BS, KB, GPÓ, BÖÓ

2.Endurskoðun samþykkta um stjórn Sveitarfélagsins Voga

2312018

Bæjarstjórn tekur til síðari umræðu og afgreiðslu tillögu að breytingu á samþykktum Sveitarfélagsins Voga og tillögu að uppfærðum erindisbréfum umhverfis- og skipulagsnefndar, fræðslunefndar og frístunda- og menningarnefndar.
Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framlagðar tillögur að breytingum á samþykktum sveitarfélagsins auk uppfærðra erindisbréfa.

Til máls tók: GPÓ

3.Samningur um félagsþjónustu, barnaverndarþjónustu og þjónustu við fatlað fólk

2604033

Tekið fyrir 3. mál af dagskrá 450. fundar bæjarráðs þann 6.05.2026: Samningur um félagsþjónustu, barnaverndarþjónustu og þjónustu við fatlað fólk.



Lögð fram drög að samningi við Suðurnesjabæ um félagsþjónustu, barnaverndarþjónustu og þjónustu við fatlað fólk auk draga að aðgerðaráætlun og minnisblaðs bæjarstjóra.



Afgreiðsla bæjarráðs:

Bæjarráð samþykkir samhljóða framlögð drög að samningi við Suðurnejsabæ um félagsþjónustu, barnaverndaþjónustu og þjónustu við fatlað fólk og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.
Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Bæjarstjórn staðfestir samhljóða framlögð drög að samningi við Suðurnesjabæ um félagsþjónustu, barnaverndarþjónustu og þjónustu við fatlað fólk og felur bæjarstjóra að undirrita samninginn fyrir hönd sveitarfélagsins.

4.Samningur um fræðsluþjónustu

1906005

Tekið fyrir 4. mál af dagskrá 450. fundar bæjarráðs þann 6.05.2026: Samningur um fræðsluþjónustu.



Lagt fram minnisblað bæjarstjóra með tillögu um að samningur sveitarfélagsins við Suðurnesjabæ um fræðsluþjónustu verði framlengdur. Sviðsstjóri fjölskyldusviðs situr fundinn undir dagskrárliðnum.



Afgreiðsla bæjarráðs:

Bæjarráð samþykkir samhljóða framlögð drög að samningi við Suðurnesjabæ um fræðsluþjónustu og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.
Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Bæjarstjórn samþykir samhljóða að framlengja samning við Suðurnesjabæ um fræðsluþjónustu með viðauka til 30. júní 2027 og felur bæjarstjóra að undirrita viðauka fyrir hönd sveitarfélagsins.

5.Viðaukar 2026

2604032

Tekið fyrir 9. mál af dagskrá 450. fundar bæjarráðs þann 06.05.2026: Viðaukar 2026.



Lögð fram tillaga að viðauka nr. 1 við fjárhagsáætlun 2026.



Rekstrarkostnaður



Aukinn kostnaður vegna viðhalds í Íþróttamiðstöð

Mál nr. 2601023

Á 446. fundi bæjarráðs var samþykkt beiðni sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs um auka fjárveitingu vegna viðhalds á saunaklefa og gangi við sundlaugina í Vogum. Áætlaður kostnaðarauki nemur um 5,6 m.kr. og er lagt til að auknum kostnaði sé mætt með lækkun á handbæru fé.



Aukinn kostnaður vegna starfsmannamála í Heilsuleikskólanum Suðurvöllum

Mál nr. 2603016

Á 447. fundi bæjarráðs var samþykkt beiðni leikskólastjórnenda og sviðsstjóra fjölskyldusviðs um að veita starfsfólki leikskólans 40% afslátt af námsgjaldi barna þeirra. Jafnframt var samþykkt breyting á undirbúningstíma leiðbeinenda og eru þær breytingar til reynslu í 1 ár. Áætlaður kostnaðarauki nemur um 5,3 m.kr. og er lagt til að auknum kostnaði sé mætt með lækkun á handbæru fé.





Fráveita og vatnsveita

Mál nr. 2604025

Á 450. fundi bæjarráðs var samþykkt tillaga sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs um tilfærslu af fráveitu og vatnsveitu yfir á aðrar deildir innan samstæðu sveitarfélagsins vegna innri viðskipta. Um er að ræða svokallaða milliverðlagningu vegna þjónustu á fráveitu og vatnsveitu sem er veitt af öðrum deildum sveitarfélagsins. Samtals nemur fjárhæðin 52,8 m.kr. samtals fyrir fráveitu og vatnsveitu og hafa viðskiptin engin áhrif á rekstrarniðurstöðu samstæðu sveitarfélagsins.



Fjárfesting

Búnaðarkaup fyrir íþróttasvæði

Mál nr. 2603026

Á 447. fundi bæjarráðs var samþykkt beiðni sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs um auka fjárveitingu til kaupa á slátturróbóta fyrir íþróttasvæði. Áætlaður kostnaðarauki nemur um 1,65 m.kr. og er lagt til að aukinni fjárfestingu sé mætt með lækkun á handbæru fé.



Aukinn kostnaður vegna fráveituframkvæmda

Mál nr. 2603027

Á 447. fundi bæjarráðs var samþykkt beiðni sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs um auka fjárveitingu vegna framkvæmda á fráveitu í Akurgerði. Áætlaður kostnaðarauki nemur um 7,7 m.kr. og er lagt til að aukinni fjárfestingu sé mætt með lækkun á handbæru fé.



Samtals áhrif á rekstrarniðurstöðu er um 11 m.kr. til lækkunar og samtals áhrif á handbært fé er um 20,3 m.kr. til lækkunar.



Afgreiðsla bæjarráðs:

Bæjarráð samþykkir samhljóða framlagðan viðauka og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.
Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs. Samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.

Til máls tók: GPÓ

6.Færanlegur kennslustofur - vor 2026

2605007

Tekið fyrir 2. mál af dagskrá 451. fundar bæjarráðs þann 13.05.2026: Færanlegur kennslustofur - vor 2026.



Lögð fram kynningargögn frá Terra Einingum ehf. auk draga að samningi um kaup á færanlegum kennslustofum við Heilsuleikskólann Suðurvelli. Sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs situr fundinn undir dagskráliðnum.



Afgreiðsla bæjarráðs:

Bæjarráð samþykkir samhljóða að ganga að samningi við Terra Einingar ehf. um kaup á færanlegum kennslustofum við Heilsuleikskólann Suðurvelli. Bæjarráð vísar málinu áfram til staðfestingar í bæjarstjórn.

Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs. Samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.

Til máls tóku: BS, EBJ, BÖÓ, GPÓ

7.Miðbæjarreitur (Skyggnisholt 16) - Framtíðarþróun

2212011

Tekið fyrir 1. mál af dagskrá 451. fundar bæjarráðs þann 13.05.2026: Miðbæjarreitur (Skyggnisholt 16) - Framtíðarþróun.



Lögð fram drög að viljayfirlýsingu við KRST lögmenn ehf. f.h óstofnaðs einkahlutafélags um skipulag og í kjölfarið úthlutun lóða til uppbyggingar verslunar og þjónustu á Miðbæjarreit. Sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs situr fundinn undir dagskrárliðnum.



Afgreiðsla bæjarráðs:

Bæjarráð samþykkir samhljóða viljayfirlýsingu við KRST lögmenn ehf. f.h. óstofnaðs einkahlutafélgs og vísar henni til staðfestingar í bæjarstjórn.
Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs og felur bæjarstjóra að undirrita viljayfirlýsinguna fyrir hönd sveitarfélagsins. Samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.

Bókun bæjarstjórnar:
Bæjarstjórn fagnar því að það hilli undir uppbyggingu verslunar og þjónustu í bænum sem er tímabært skref í stækkandi sveitarfélagi og mun stuðla að aukinni þjónustu við bæjarbúa í heimabyggð.

Til máls tóku: BS, BÖÓ

8.Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga - 451

2605004F

Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Lagt fram

9.Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga - 450

2604008F

Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Lagt fram

Bókun bæjarstjórnar vegna dagskrárliðar nr. 2:
Bæjarstjórn fagnar því að þær rekstrarlegu aðgerðir sem farið hefur verið í á kjörtímabilinu skapi nú grundvöll til að byggja við og endurbæta núverandi skólahúsnæði á myndarlegan en jafnframt skynsamlegan hátt. Skólahúsnæðið verði þannig útbúið í takt við nútímalega og fjölbreytta kennsluhætti, jafnt fyrir nemendur og starfsfólk. Þá er ekki síður ánægjulegt að sjá að aðstæður skapist fyrir samfélagslegt rými sem nýtist fyrir menningartengda viðburði og geri þannig skólann að lifandi stofnun fyrir allt samfélagið.

Til máls tók: BS

10.Fræðslunefnd Sveitarfélagsins Voga - 121

2605001F

Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Lagt fram

11.Frístunda- og menningarnefnd Sveitarfélagsins Voga - 134

2605002F

Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Lagt fram
Í lok fundar tók Björn Sæbjörnsson, formaður bæjarráðs, til máls í tilefni þess að þetta er síðasti fundur hans sem bæjarfulltrúi.

Bókun Björns Sæbjörnssonar:
Mig langar til á þessum tímamótum fyrir mig, þar sem ég er að sitja minn síðasta bæjarstjórnarfund að koma hér upp og þakka fyrir það traust sem ég ég hef fengið til starfa hér innan stjórnsýslu sveitarfélagsins.
Þetta er orðin nokkuð langur tími en það var í kosningunum 2010 sem ég var kjörinn inn sem varamaður og seinna á því kjörtímabili kom ég inn sem aðalmaður.
D listinn bauð fyrst fram í kosningunum 2014 og hef ég setið sem aðalmaður í bæjarstjórn sem og bæjarráði frá þeim tíma.
Á þessum tíma hefur gengið á ýmsu og sveitarfélagið gengið í gegnum hæðir og lægðir. Íbúfjöldinn hefur tvöfaldast og áskoranir oft verið miklar, ekki síst núna á þessu kjörtímabili sem nú er að líða undir lok, en þar höfum við setið í farsælu meirihlutasamstarfi með E lista og í góðri samvinnu við minnihluta. Það ánægjulegt að geta stigið frá borði í þeirri stöðu sem sveitarfélagið er í núna, en aldrei hefur rekstur þess gengið jafn vel.
Ég vil óska bæjarfulltrúum, starfsfólki og íbúum sveitarfélagsins gleðilegs sumars og takk fyrir mig.

Jafnframt tóku til máls Inga Sigrún Baldursdóttir, Andri Rúnar Sigurðsson og Friðrik V. Árnason

Forseti bæjarstjórnar, Birgir Örn Ólafssson, tók einnig til máls og þakkaði Birni og Ingu Sigrúnu, bæjarfulltrúa fyrir gott samstarf og störf þeirra í þágu sveitarfélagsins. Þá var þeim óskað velfarnaðar í framtíðinni. Bæjarfulltrúum eru þökkuð störf á kjörtímabilinu.

Fundi slitið - kl. 18:21.

Getum við bætt efni síðunnar?