Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga

245. fundur 29. apríl 2026 kl. 17:30 - 17:47 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
  • Birgir Örn Ólafsson forseti bæjarstjórnar
  • Björn Sæbjörnsson varaforseti
  • Eva Björk Jónsdóttir aðalmaður
  • Andri Rúnar Sigurðsson aðalmaður
  • Inga Sigrún Baldursdóttir aðalmaður
  • Ingþór Guðmundsson 1. varamaður
Starfsmenn
  • Guðrún P. Ólafsdóttir Bæjarstjóri
  • Ásta Friðriksdóttir Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Ásta Friðriksdóttir sviðsstjóri fjármála og stjórnsýslu
Dagskrá

1.Ársreikningur 2025

2603024

Tekið fyrir 5. mál af dagskrá 448. fundar bæjarráðs þann 22.04.2026: Ársreikningur 2025.



Lögð fram drög að ársreikningi Sveitarfélagsins Voga fyrir árið 2025.



Afgreiðsla bæjarráðs:

Bæjarráð vísar ársreikningi Sveitarfélagsins Voga 2025 til fyrri umræðu í bæjarstjórn og til endurskoðunar.
Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Ársreikningi Sveitarfélagsins Voga fyrir árið 2025 er vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn.

Samþykkt samhljóða með 6 atkvæðum.

Til máls tók: GPÓ

2.Deiliskipulagsbreyting við Jónsvör 3-5-7

2604010

Tekið fyrir 3. mál af dagskrá 79. fundar skipulagsnefndar þann 14.04.2026: Deiliskipulagsbreyting við Jónsvör 3, 5 og 7.



Lögð er fyrir deiliskipulagsbreyting vegna Jónsvarar 3, 5 og 7. Byggingarreitir á lóðum nr. 3, 5 og 7 við Jónsvör stækka úr 660 m2 í 729 m2. Byggingarreitirnir breikka um 2 m til norðurs og verða eftir breytingu 5,7 m frá lóðarmörkum til norðurs.



Afgreiðsla skipulagsnefndar: Það er mat skipulagsnefndar að um óverulega breytingu sé að ræða skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin felur Umhverfis- og skipulagssviði að grenndarkynna tillöguna í samræmi við 2. mgr. 43. gr. og leggur til við bæjarstjórn að fyrirliggjandi tillaga verði samþykkt með fyrirvara um niðurstöðu grenndarkynningar.
Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi tillögu að deiliskipulagsbreytingu vegna Jónsvarar 3, 5 og 7 með fyrirvara um niðurstöðu grenndarkynningar.

Samþykkt samhljóða með 6 atkvæðum.

3.Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga - 448

2604005F

Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Lagt fram

Til máls tóku: BS, ARS, EBJ, BÖÓ

Fundi slitið - kl. 17:47.

Getum við bætt efni síðunnar?