2411027
Tekið fyrir 2. mál af dagskrá 79. fundar skipulagsnefndar þann 14.04.2026: Svæðisskipulag Suðurnesja 2024-2040.
Á 57. fundi Svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja samþykkti nefndin, Svæðisskipulag Suðurnesja 2024-2040. Svæðisskipulagið samanstendur af skipulagsgreinargerð, umhverfismatsskýrslu og vatnsverndaruppdrætti, í samræmi við 1. mgr. 25. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Svæðisskipulagið er hér með lagt fram til samþykktar að hálfu Sveitarfélagsins Voga.
Afgreiðsla skipulagsnefndar: Nefndin samþykkir Svæðisskipulag Suðurnesja 2024-2040 í samræmi við 1. mgr. 25. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.
Samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum