Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga

243. fundur 25. mars 2026 kl. 17:30 - 18:12 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
  • Birgir Örn Ólafsson forseti bæjarstjórnar
  • Björn Sæbjörnsson varaforseti
  • Eva Björk Jónsdóttir aðalmaður
  • Andri Rúnar Sigurðsson aðalmaður
  • Inga Sigrún Baldursdóttir aðalmaður
  • Friðrik V. Árnason aðalmaður
  • Kristinn Björgvinsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Guðrún P. Ólafsdóttir Bæjarstjóri
  • Ásta Friðriksdóttir Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Ásta Friðriksdóttir sviðsstjóri fjármála og stjórnsýslu
Dagskrá

1.Kosning í nefndir og ráð 2026

2603028

Lögð fram tillaga að breytingu á skipan í kjörstjórn. Jón Ingi Baldvinsson hefur óskað lausnar frá störfum í kjörstjórn af persónulegum ástæðum. Lagt til að Svanborg Svansdóttir verði tilnefnd sem aðalmaður í kjörstjórn í hans stað og að Erna Margrét Gunnlaugsdóttir verði varamaður.
Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.

Fyrir hönd bæjarstjórnar þakkar forseti Jóni Inga fyrir langt og farsælt starf í kjörstjórn
sveitarfélagsins og óskar honum alls velfarnaðar.

2.Neyðarstjórn - erindisbréf

2311013

Tekið fyrir 6. mál af dagskrá 446. fundar bæjarráðs þann 18.03.2026: Neyðarstjórn - erindisbréf.



Lögð fram drög að uppfærðu erindisbréfi neyðarstjórnar sveitarfélagsins.



Afgreiðsla bæjarráðs:

Bæjarráð samþykkir samhljóða framlögð drög erindisbréfs neyðarstjórnar sveitarfélagsins og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.
Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.

3.Brunavarnaáætlun Brunavarna Suðurnesja 2026-2030

2602056

Tekið fyrir 5. mál af dagskrá 445. fundar bæjarráðs þann 04.03.2026: Brunavarnaáætlun Brunavarna Suðurnesja 2026-2030.



Lögð fram Brunavarnaáætælun Brunavarna Suðurnesja 2026- 2030 (10-02-2026 10:57).



Afgreiðsla bæjarráðs:

Bæjarráð samþykkir framlagða brunavarnaráætlun Brunavarna Suðurnesja og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.
Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.

4.Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga - 446

2603002F

Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Lagt fram

Til máls tók: BS

5.Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga - 445

2602008F

Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Lagt fram

Til máls tóku: KB, GPÓ, BÖÓ

Tillaga fulltrúa L-lista:
Er það tillaga mín að þessi auglýsing verði tekin niður og því frestað að ráða í þessa stöðu frekar verði unnið að því að nota þá reynslubolta sem við erum með og sjá hvernig gengur með innleiðingu verkbeiðnakerfis, ráða frekar starfsmann í þjónustumiðstöð til almennra verka og passa að hann sé með þau réttindi sem á þarf að halda til að sinna vinnu sinni það er að segja vinnuvélaréttindi og meirapróf til fólksflutninga. Ef það gengur ekki eftir, þá má athuga eftir ár eða svo hvort þurfi að greina þetta betur.

Tillaga er felld með sex atkvæðum gegn einu.

Bókun fulltrúa L-lista:
L-listin harmar að ekki skuli vandað betur til auglýsingar eftir verkefnastjóra þjónustumiðstöðvar þarna vantar kröfur sem ættu að vera sjálfsagðar fyrir starfsmann sem á að geta unnið á vélum og sinnt skólaakstri en til þess þarf tilskilinn réttindi. Við óttumst líka að með þessari ákvörðun að ráða í stöðu sem annar starfsmaður hefur í raun gegnt í nokkur ár geti verið hætta á að missa góða starfsmenn sem sjá fram á að þeirra starfskraftar eru ekki metnir sem skildi er kemur að stöðuhækkunum innan sveitarfélagsins.

Bókun meirihluta bæjarstjórnar:
Sveitarfélagið auglýsir að jafnaði laus störf samanber ákvæði kjarasamninga og ræður þann einstakling sem uppfyllir best hæfnisviðmið sem sett eru fram í auglýsingu um starfið. Ítarleg vinna hefur verið lögð í þarfagreiningu vegna nýs starfs verkefnastjóra þjónustumiðstöðvar sem endurspeglast í þeim færniþáttum sem settir eru fram í auglýsingu um starfið. Bæjarráð hefur verið vel upplýst um fyrirhugaðar skipulagbreytingar í þjónustumiðstöð af sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs .
Eins og fram kemur í samþykktum sveitarfélagisns, þá ræður bæjarstjórn í æðstu stjórnunarstöður hjá sveitarfélaginu en stjórnendur ráða sitt starfsfólk. Mikilvægt er að þessi mörk séu virt og að stjórnendum sé sýnt það traust að fara með starfsmannamál sinna sviða enda er ábyrgðin þeirra.

6.Skipulagsnefnd Sveitarfélagsins Voga - 78

2602006F

Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Lagt fram

Til máls tók: ARS

Fundi slitið - kl. 18:12.

Getum við bætt efni síðunnar?