Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga

1. fundur 12. janúar 2006 kl. 18:00 - 19:00 Tjarnarsal

Fundur haldinn í bæjarstjórn fimmtudaginn 12. janúar 2006, kl. 18 00 í
Tjarnarsal.
Mættir: Jón Gunnarsson, Sigurður Kristinsson, Hanna Helgadóttir, Birgir Örn
Ólafsson, Hörður Harðarson og Jóhanna Reynisdóttir, bæjarstjóri sem
jafnframt ritaði fundargerð í tölvu.

DAGSKRÁ

1. Kosning í bæjarráð – þrír aðalmenn og þrír til vara.
Borist hafa þrjár tilnefningar um aðalmenn sem eru eftirtaldir:
 Jón Gunnarsson, bæjarfulltrúi
 Sigurður Kristinsson, bæjarfulltrúi
 Birgir Örn Ólafsson, bæjarfulltrúi.
Þar sem fleiri eru ekki tilnefndir en kjósa skal, teljast þeir réttkjörnir
til setu í bæjarráði.
Borist hafa þrjár tilnefningar um varamenn sem eru eftirtaldir:
 Hanna Helgadóttir, bæjarfulltrúi
 Helga Friðfinnsdóttir, varabæjarfulltrúi
 Hörður Harðarsson, bæjarfulltrúi.
Þar sem fleiri eru ekki tilnefndir en kjósa skal, teljast þeir réttkjörnir
sem varamenn í bæjarráði.

2. Staða aðalskipulagsmála – Ómar Ívarsson frá Landslagi mætir
á fundinn.
Ómar Ívarsson frá Landslagi fór yfir og skýrði stöðu
aðalskipulagsmála. Eftir umræður var ákveðið að stefna að
kynningar- og samráðsfundi eigi síðar en í mars n.k.
Á slíkum fundi fengju íbúar tækifæri til að hafa áhrif á
skipulagsvinnuna áður en lokatillögur verða unnar.

3. Fjárhagsáætlun 2006 – seinni umræða.

2

Jóhanna fór yfir forsendur áætlunarinnar.
Eftir umræður var fjárhagsáætlunin borin upp til atkvæða og
samþykkt með þremur atkvæðum, tveir sitja hjá.
4. Samkomulag Búmanna, Trésmiðju Snorra Hjaltasonar ehf. og
Sveitarfélagsins Voga um uppbyggingu þjónustukjarna og
íbúða fyrir eldri borgara – Þorgrímur Stefánsson frá
Búmönnum mætir á fundinn.
Jón Gunnarsson kynnti rammasamkomulagið og fór yfir helstu
forsendur verksins. Undirbúningur hefur staðið yfir allt síðastliðið ár.
Með samþykkt þessa samkomulags er í fyrsta skipti ráðist í
framkvæmdir innan sveitarfélagsins sem beint miða að því að bæta
þjónustu við eldri borgara í heimabyggð.
Rammasamkomulagið var undirritað á fundinum.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 19:00

Getum við bætt efni síðunnar?