Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga

185. fundur 18. febrúar 2015 kl. 06:30 - 08:30 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
  • Ingþór Guðmundsson varaformaður
  • Inga Rut Hlöðversdóttir 1. varamaður
  • Björn Sæbjörnsson aðalmaður
  • Jóngeir Hjörvar Hlinason áheyrnarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Ásgeir Eiríksson bæjarstjóri
Dagskrá

1.Siðareglur sveitarstjórna.

1501033

Leiðbeiningar Siðanefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga um gerð og endurskoðun siðareglna. Siðareglur Sveitarfélagsins Voga fylgja með, sem og starfs- og samskiptareglur sveitarfélagsins.
Lagður fram tölvupóstur Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 30.1.2015, með honum fylgir ritið "Leiðbeiningar um gerð siðareglna og hlutverk siðanefndar". Lagt fram til kynningar.

2.Nýsköpunarverkefni sveitarfélaga

1502004

Samband íslenskra sveitarfélaga kynnir upplýsingar á vef sambandsins um nýsköpunarverkefni sveitarfélaga.
Lagður fram tölvupóstur Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 2.2.2015, þar sem kynnt er að settar hafi verið upp undirsíður á vef Sambandsins um nýsköpun í sveitarfélögum. Lagt fram til kynningar.

3.Námsferð starfsmanna BS

1502034

Afrit bréfs starfsmanna Brunavarna Suðurnesja (ódagsett, óundirritað) um afturköllunar stjórnar BS á námsferð til Finnlands. Jafnframt tölvupóstur eins stjórnarmanns um málið.
Lagt fram bréf starfsmanna BS til stjórnar fyrirtækisins um afturköllun námsferðar til Finnlands.

4.Vetrarfundur S.S.S. 2015

1501034

Stjórn SSS óskar eftir tillögum sveitarstjórnar að fundarefni vetrarfundar SSS.
Lagt fram bréf Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum dags. 21.1.2015 vegna vetrarfundar SSS. Óskað er eftir tillögum að fundarefni.

5.Mánaðarleg rekstraryfirlit 2015

1502001

Rekstraryfirlit janúarmánaðar ásamt samanburði við áætlun og minnisblaðli bæjarstjóra.
Lagt fram rekstraryfirlit janúar 2015, ásamt greiningu bæjarstjóra.

6.Beiðni um styrk

1502028

Nes, íþróttafélag fatlaðra á Suðurnesjum óskar eftir fjárstyrk og að gerður verði samstarfssamningur milli sveitarfélagsins og íþróttafélagsins.
Lagður fram tölvupóstur Ness, íþróttafélags fatlaðra á Suðurnesjum, dags. 10.2.2015. Í erindinu er óskað eftir fjárstyrk í formi samstarfssamnings. Jafnframt liggur fyrir umsögn Frístunda- og menningarfulltrúa um málið, dags. 16.2.2015.
Bæjarráð er hlynnt því að gerður verður samstarfssamningur við Nes og að veitt verði 50 þús.kr. styrkur till starfseminnar. Bæjarstjóra falið að ganga til samninga við félagið og leggja fyrir bæjarráð.

7.Upplýsingabæklingur um þjónustu og ferðaþjónustu í Vogum.

1502029

159 ehf. óskar eftir samstarfi vegna útgáfu upplýsingabæklings fyrir Sveitarfélagið Voga. Óskað var eftir áliti Markaðsstofu Suðurnesja, sem nú liggur fyrir.
Lagt fram bréf 159 ehf. dags. 10.2.2015, ósk um samstarf vegna útgáfu upplýsingabæklings fyrir sveitarfélagið Voga. Jafnframt liggur fyrir umsögn Markaðsstofu Suðurnesja dags. 12.2.2015. Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur bæjarstjóra að útfæra samning við bréfritara um verkefnið.

8.Húsnæðismál bæjarskrifstofu

1305031

Fyrir liggja nokkrar tillögur að stækkun bæjarskrifstofu.
Á fundinum eru kynnt drög að útfærslu á fyrirhuguðum breytingum á bæjarskrifstofunum. Bæjarráð leggur áherslu á að breytingum á húsnæðinu verði lokið fyrir 1. september n.k. Óskað er eftir að endanleg tillaga að útfærslu liggi fyrir á næsta fundi bæjarráðs.

9.Framkvæmdir 2015

1502036

Skipulagning og undirbúningur vegna framkvæmda í sveitarfélaginu árið 2015
Lagðar fram til kynningar kostnaðaráætlanir vegna fyrirhugaðra framkvæmda á árinu 2015. Bæjarstjóri upplýsti að unnið sé að undirbúningi útboðs verklegra framkvæmda.

10.Styrkbeiðni - Nýsköpunarkeppni grunnskóla.

1502041

Nýsköpunarkeppni grunnskóla óskar eftir fjárhagsstyrk vegna keppninnar.
Lagður fram tölvupóstur Nýsköpunarkeppni Grunnskólanemenda, dags. 11.2.2015, þar sem óskað er eftir framlagi í formi hvatningar og styrks. Jafnframt liggur fyrir álit skólastjóra Stóru-Vogaskóla um umsóknina. Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.

11.Endurskoðun vatnsverðs til Vatnsveitu Voga

1412035

Málið var á dagskrá 184. fundar bæjarráðs. Fyrir liggja drög að viðauka við eldri samning.
Lögð fram drög að viðauka við samning frá 23.maí 2001 milli Hitaveitu Suðurnesja hf (HS) og sveitarfélaganna fimm á Suðurnesjum. Í viðaukanum er gert ráð fyrir að verðið fyrir vatnið hækki frá og með 1. febrúar 2015 um 5 kr/tonn og aftur 1. janúar 2016 um 5 kr/tonn. Hækkanirnar verðbætist með sama hætti og grunnverð samningsins. Bæjarráð samþykkir viðaukann með þeim fyrirvara að staðið verði við áform um að fundinn verði nýr staður fyrir vatnsból sveitarfélagsins á síðari hluta skipulagstímabilsins í samræmi við fyrri áform.

12.Ársreikningur 2014

1502002

Fulltrúar BDO Endurskoðunar mæta á fundinn og fara yfir gerð og endurskoðun ársreiknings 2014. Engin gögn fylgja þessum dagskrárlið.
Sigrún Guðmundsdóttir og Helga Harðardóttir, fulltrúar BDO endurskoðunar mættu á fundinn og gerðu bæjarráði grein fyrir endurskoðun ársreiknings 2014, sem nú stendur yfir. Á fundinum er lagt fram óhæfisbréf BDO endurskoðunar gagnvart Sveitarfélaginu Vogum, dags. 18. febrúar 2015.

13.Umsókn um rekstrarleyfi

1502033

Sýslumaðurinn á Suðurnesjum sendir til umsagnar umsókn Arktit Rok ehf. um rekstrarleyfi, til reksturs gististaðar í fl. IV að Iðndal 1 í Vogum.
Lagt fram erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum dags. 13.2.2015, þar sem óskað er umsagnar sveitarfélagsins um umsókn Arktik Rok ehf. um rekstrarleyfi til reksturs gististaðar í fl. IV að Iðndal 1 í Vogum. Bæjarráð gerir ekki athugasemd við umsóknina.

14.237. mál frá nefndasviði Alþingis

1502018

Alþingi sendir til umsagnar frumvarp til laga um húsaleigubætur (námsmenn), 237. mál
Alþingi sendir til umsagnar frumvarp til laga um húsaleigubætur (námsmenn), 237. mál

15.416. mál til umsagnar frá nefndasviði Alþingis:

1502024

Alþingi sendir til umsagnar frumvarp til laga um félagsþjónustu sveitarfélaga (skilyrði fjárhagsaðstoðar), 416.mál
Alþingi sendir til umsagnar frumvarp til laga um félagsþjónustu sveitarfélaga (skilyrði fjárhagsaðstoðar), 416.mál

16.427. mál til umsagnar frá nefndasviði Alþingis

1502025

Alþingi sendir til umsagnar frumvarp tl laga um uppbyggingu innviða fyrir ferðamenn til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum (heildarlög), 427. mál
Alþingi sendir til umsagnar frumvarp tl laga um uppbyggingu innviða fyrir ferðamenn til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum (heildarlög), 427. mál

17.454. mál til umsagnar frá nefndasviði Alþingis:

1502023

Alþingi sendir til umsagnar frumvarp til laga um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum og málefni fatlaðs fólks (aukin vinnuvernd og notendastýrð persónuleg þjónusta), 454. mál
Alþingi sendir til umsagnar frumvarp til laga um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum og málefni fatlaðs fólks (aukin vinnuvernd og notendastýrð persónuleg þjónusta), 454. mál

18.455. mál til umsagnar frá nefndasviði Alþingis.

1502022

Alþingi sendir til umsagnar frumvarp til laga um náttúrupassa (heildarlög), 455. mál
Alþingi sendir til umsagnar frumvarp til laga um náttúrupassa (heildarlög), 455. mál

19.456. mál til umsagnar frá nefndasviði Alþingis

1501023

Allshersjar- og menntamálanefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um Menntamálastofnun (heildarlög), 456. mál.
Alþingi sendir til umsagnar frumvarp til laga um Menntamálastofnun (heildarlög), 456. mál.

20.511. mál til umsagnar frá nefndasviði Alþings.

1502026

Alþingi sendir til umsagnar frumvarp til laga um stjórn vatnamála (gjaldtaka fyrir vatnsþjónustu, EES-reglur), 511. mál
Alþingi sendir til umsagnar frumvarp til laga um stjórn vatnamála (gjaldtaka fyrir vatnsþjónustu, EES-reglur), 511. mál

21.512. mál til umsagnar frá nefndasviði Alþingis

1502027

Alþingi sendir til umsagnar frumvarp til laga um meðferð elds og varnir gegn gróðureldum (heildarlög, strangari reglur), 512. mál
Alþingi sendir til umsagnar frumvarp til laga um meðferð elds og varnir gegn gróðureldum (heildarlög, strangari reglur), 512. mál

22.Fundir Reykjanes Jarðvangs 2014

1402026

Fundargerð 14. fundar stjórnar Reykjanes jarðvagns haldinn 21. nóvember 2014
Lögð fram fundargerð 14. fundar stjórnar Reykjanes jarðvagns haldinn 21. nóvember 2014

23.Fundir Reykjanes jarðvangs 2015

1501021

Fundargerð 15. fundar stjórnar Reykjanes jarðvagns haldinn 9. janúar 2015
Lögð fram fundargerð 15. fundar stjórnar Reykjanes jarðvagns haldinn 9. janúar 2015

24.Fundargerðir Fjöldkyldu- og velferðarnefndar Sandgerðis, Garðs og Voga 2015

1501026

Fundargerð 94. fundar Fjölskyldu- og velferðarnefndar frá 15.01.2015
Lögð fram fundargerð 94. fundar Fjölskyldu- og velferðarnefndar frá 15.01.2015

25.Fundargerðir S.S.S. 2015

1501022

Fundargerð 685. fundar stjórnar SSS haldinn 21. janúar 2015
Lögð fram fundargerð 685. fundar stjórnar SSS haldinn 21. janúar 2015

26.Fundargerðir Þjónustuhóps aldraðra á Suðurnesjum 2015

1501019

Fundargerð 95. fundar Þjónustuhóps aldraðra haldinn 26. janúar 2015
Lögð fram fundargerð 95. fundar Þjónustuhóps aldraðra haldinn 26. janúar 2015

27.Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2015

1501020

Fundargerð 371. fundar Hafnasambands Íslands haldinn 16.01.2015. Undir þessum lið er ársreikningur Hafnasambandsins fyrir árið 2014lagður fram til kynningar.
Lögð fram fundargerð 371. fundar Hafnasambands Íslands haldinn 16.01.2015. Undir þessum lið er ársreikningur Hafnasambandsins fyrir árið 2014 lagður fram til kynningar.

28.Fundargerðir Kölku 2015 / Sorpeyðingarstöð Suðurnesja.

1501008

Fundargerð 456. fundar stjórnar Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja, haldinn 12. febrúar 2015.
Lögð fram fundargerð 456. fundar stjórnar Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja, haldinn 12. febrúar 2015.

29.Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2015

1502020

Fundargerð 824. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga haldinn 30. janúar 2015
Lögð fram fundargerð 824. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga haldinn 30. janúar 2015

30.Fundir Stjórnar Brunavarna Suðurnesja 2015

1502037

Fundargerð 246. fundar stjórnar BS haldinn 26. janúar 2015.
Fundargerð 247. fundar stjórnar BS haldinn 29. janúar 2015.
Lögð fram fundargerð 246. fundar stjórnar BS haldinn 26. janúar 2015.
Lögð fram fundargerð 247. fundar stjórnar BS haldinn 29. janúar 2015

Fundi slitið - kl. 08:30.

Getum við bætt efni síðunnar?