Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga

159. fundur 06. nóvember 2013 kl. 06:30 - 10:30 haldinn á bæjarskrifstofu

159.fundur

Bæjarráðs Sveitarfélagsins Voga

haldinn á bæjarskrifstofu,

miðvikudaginn 6. nóvember 2013 og hófst hann kl. 06:30

 

 

Fundinn sátu:

Kristinn Björgvinsson formaður, Oddur Ragnar Þórðarson og Bergur Álfþórsson.

 

Fundargerð ritaði: Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri

 

 

 

Dagskrá:

 

1.

1310022 - Framlög til Hafnarframkvæmda 2014

 

Lagt fram til kynningar minnisblað Hafnarsambands Íslands dags. 22. október 2013 um framlög til hafna samkvæmt frumvarpi til fjárlaga 2014.

 

 

 

2.

1308031 - Hafnir við sunnanverðan Faxaflóa

 

Lögð fram til kynningar samantekt um valkosti hafna við sunnanverðan Faxaflóa.

 

 

 

3.

1310027 - Fjárbeiðni fyrir árið 2014

 

Lagt fram dreifibréf Stígamóta til sveitarstjórna dags. 20.10.2013, þar sem óskað er eftir fjárstuðningi við starfsemina.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.

 

 

 

4.

1207002 - Fjárhagsleg viðmið sveitarstjórnarlaga.

 

Lagt fram bréf Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga dags. 23.10.2013. Bæjarráð felur bæjarstjóra að taka saman umbeðnar upplýsingar og leggja fyrir næsta fund bæjarráðs. Að lokinni umfjöllun bæjarráðs verður nefndinni sendar upplýsingarnar.

 

 

 

5.

1306028 - Umsókn um leiguíbúð Ingibjörg Þorvaldsdóttir

 

Lögð fram umsókn um leiguíbúð fyrir eldri borgara í Álfagerði. Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu með vísan til gildandi reglna um útleigu íbúða aldraðra í sveitarfélaginu.

 

 

 

6.

1309025 - Húsnæðismál Brunavarna Suðurnesja

 

Lagt fram bréf stjórnar Brunavarna Suðurnesja dags. 31.10.2013. Í bréfinu er óskað heimildar bæjarráðs um kaup á fasteign fyrir BS sbr. fyrri kynningu um málið. Bæjarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti.

 

 

 

7.

1308030 - Fjárhagsáætlun 2014 - 2018

 

Unnið að gerð fjárhagsáætlunar 2014.

 

 

 

8.

1110008 - Fiskeldi í Flekkuvík

 

Lagt fram bréf Orkustofnunar dags. 30.október 2013, umsögn um beiðni Íslenskrar Matorku um framlengingu rannsóknarleyfis á Keilisnesi. Bæjarráð telur eðlilegt að rannsóknarleyfið sé endurnýjað þegar rannsóknir fara af stað, og sér af þeim sökum ekki ástæðu til að framlengja leyfið að óbreyttu.

 

 

 

9.

1311002 - Kerfisáætlun Landsnets

 

Lagður fram tölvupóstur frá Landsneti, dags. 31.október 2013 um Kerfisáætlun Landsnets 2014-2023. Í tölvupóstinum kemur fram að unnið er í fyrsta sinn að umhverfismati á kerfisáætlun og aðilum gefinn kostur á að koma með athugasemdir eða ábendingar um áætlunina. Vísað til umsagnar Umhverfis- og skipulagsnefndar.

 

 

 

10.

1309028 - Fundargerðir Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum 2013

 

Fundargerð 666. fundar dags. 24.október 2013 lögð fram.

 

 

 

11.

1310023 - Fundargerðir Hafnarsambands Íslands

 

Fundargerð 360. fundar dags. 18. október 2013 lögð fram. Jafnframt lagt fram til kynningar svar Innanríkisráðuneytisins við erindi Hafnarsambands Íslands um löggildingu hafnarvoga.

 

 

 

12.

1310028 - Fundargerðir Heklunnar. Atvinnþróunarfélag Suðurnesja

 

Fundargerð 29. fundar dags. 13. september 2013 lögð fram.

 

 

 

13.

1309041 - Fundargerðir Náttúrustofu Suðvesturlands, 2013

 

Fundargerð 79. fundar haldinn 25.september 2013. Með fundargerðinni er einnig lagður fram ársreikningur stofnunarinnar fyrir árið 2012.

 

 

 

14.

1309031 - Fundargerðir S.Í.S. 2013

 

Fundargerð 809. fundar haldinn 25. október 2013 lögð fram.

 

 

 

15.

1309023 - Fundargerðir stjórnar Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja, Kölku 2013.

 

Fundargerð 440. fundar dags. 7. október 2013 lögð fram.
Fundargerð 441. fundar dags. 24. október 2013 lögð fram.

 

 

 

 

 

 

 

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:30

 

 

___________________________ ___________________________

 

 

 

 

___________________________ ___________________________

 

 

 

___________________________ ___________________________

 

 

 

 

___________________________ ___________________________

Getum við bætt efni síðunnar?