Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga

155. fundur 21. ágúst 2013 kl. 07:00 - 08:25 haldinn á bæjarskrifstofu

155.fundur

Bæjarráðs Sveitarfélagsins Voga

haldinn á bæjarskrifstofu,

miðvikudaginn 21. ágúst 2013 og hófst hann kl. 07:00

 

 

Fundinn sátu:

Kristinn Björgvinsson Formaður, Oddur Ragnar Þórðarson og Erla Lúðvíksdóttir.

 

Fundargerð ritaði: Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri

 

Í upphafi fundar var leitað afbrigða og samþykkt að taka á dagskrá sem 5. mál, kaup á dráttarvél fyrir sveitarfélagið (1308011). Önnur mál færast aftar á dagskrána. Samþykkt samhljóða.

 

Dagskrá:

 

1.

1308010 - Kjör formanns og varaformanns bæjarráðs

 

Formaður bæjarráðs er kjörinn Kristinn Björgvinsson, varaformaður er kjörinn Oddur Ragnar Þórðarson. Samþykkt samhljóða.

 

 

 

2.

1307011 - Þjónusta við hælisleitendur

 

Lagt fram bréf Innanríkisráðuneytisins dags. 10. júlí 2013.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.

 

 

 

3.

1303038 - Endurskoðun samþykkta sveitarfélagsins Voga

 

Samþykktir sveitarfélagsins sem nýverið voru afgreiddar af bæjarstjórn hafa verið sendar Innanríkisráðuneytinu til staðfestingar. Á fundinum er lagt fram eintak samþykktanna yfirfarið af ráðuneytinu, með leiðréttingum og frekari áréttingum um einstaka efnisatriði. Vísað til úrvinnslu hjá starfshóp bæjarstjórnar um endurskoðun samþykkta og til endanlegrar afgreiðslu á næsta fundi bæjarstjórnar.

 

 

 

4.

1207008 - Lagning hitaveitu á Vatnsleysuströnd

 

Jakob Árnason, eigandi jarðarinnar Auðna á Vatnsleysuströnd mætti á fundinn. Á fundinum var farið yfir stöðu málsins, þá valkosti sem eru í stöðunni og koma m.a. fram í úttekt Verkfræðistofunnar Mannvits sem áður hefur hefur verið lögð fram.
Bæjarráð samþykkir að óska þessu næst eftir fundi með forsvarsmönnum HS Veitna um málið.
Samþykkt samhljóða.

 

 

 

5.

1308011 - Kaup á dráttarvél fyrir sveitarfélagið

 

Bæjarráð telur mikilvægt að tryggja þjónustuöryggi sveitarfélgsins, ekki síst í vetrarþjónustu. Í ljósi þess að ekki lengur aðgengi að þeirri leiguvél sem fram til þessa hefur verið nýtt í vetrarþjónustunni felur bæjarráð bæjarstjóra að leita fjármögnunarleiða vegna kaupa á nýrri dráttarvél með fylgibúnaði samkvæmt framkomnu tilboði í slíka vél og búnað.
Samþykkt samhljóða.

 

 

 

6.

1307019 - 70. fundur Fjölskyldu- og velferðarnefndar

 

Fyrir tekið 2. mál, uppfærlsa og breytingar sérstakra húsaleigubóta. Bæjarráð samþykkir tillögu nefndarinnar um að tekjumörk í reglum um sérstakar húsaleigubætur verði uppreiknuð m.v. vísitölu neysluvreðs sbr. tillögur verkefnisstjóra að fest verði í reglur að uppreikna beri viðmiðin í janúar á ári hverju. Bæajrráð samþykkir jafnframt að hámark samtölu almennra og sérstakra húsaleigubóta hækki úr kr. 50.000 í kr. 58. 483.
Samþykkt samhljóða.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.

 

 

 

7.

1307004 - 807. fundargerð stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga

 

Fundargerðin lögð fram.

 

 

 

8.

1307001 - 86. fundur Þjónustuhóps aldraðra

 

Fundargerðin lögð fram.

 

 

 

9.

1307009 - Fundargerð stjórnar DS 4.7.2013

 

Fundargerðin lögð fram.

 

 

 

10.

1307020 - Fundargerð stjórnar DS 15.7.2013

 

Fundargerðin lögð fram.

 

 

 

11.

1307025 - Fundargerð stjórnar D.S. 22.07.2013

 

Fundargerðin lögð fram.

 

 

 

12.

1307003 - Fundur í stjórn Reykjanesfólksvangs 10. apríl 2013

 

Fundargerðin lögð fram.

 

 

 

13.

1307006 - Fundur í stjórn Reykjanesfólkvangs 12. júní 2013

 

Fundargerðin lögð fram.

 

 

 

14.

1308007 - 438. fundur Stjórnar Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja

 

Fundargerðin lögð fram.

 

 

 

15.

1307017 - 660. fundur Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum

 

Fundargerðin lögð fram.

 

 

 

 

 

 

 

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 08:25

 

 

___________________________ ___________________________

 

 

 

 

___________________________ ___________________________

 

 

 

___________________________ ___________________________

 

 

 

 

___________________________ ___________________________

 

Getum við bætt efni síðunnar?