Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga

163. fundur 15. janúar 2014 kl. 06:30 - 08:30 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
  • Kristinn Björgvinsson formaður
  • Oddur Ragnar Þórðarson
  • Bergur Álfþórsson
Fundargerð ritaði: Ásgeir Eiríksson bæjarstjóri
Dagskrá
Í upphafi fundar var leitað afbrigða og samþykkt að taka á dagskrá sem 11. mál, endurskoðun aðalskipulags (1209030). Samþykkt samhljóða.

1.Almenningssamgöngur á Suðurnesjum

1203016

Farþegatölur Vogastrætó 2013, ásamt samanburði við farþegatölur 2012.
Lagt fram minnisblað bæjarstjóra með farþegatölum Vogastrætós fyrir árið 2013, ásamt samanburði við árið 2012. Farþegafjöldinn hefur ríflega tvöfaldast á milli ára.

2.Málefni Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja

1311036

Lögð fram bókun frá 435. fundi bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar um málefni HSS.
Lögð fram bókun frá 435. fundi bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar um málefni HSS. Bæjarráð tekur undir bókun bæjarstjórnar Grindavíkur.

3.Styrkumsóknir

1401004

Minjafélag Vatnsleysustrandar leggur fram tvær styrkusmóknir. 1) Beiðni um 1,0 m.kr. styrk til fegrunar umhverfis og bætts aðgengis að gamla skólahúsinu Norðurkots á Kálfatörn. 2) Beiðni um 500 þús.kr. styrk til uppsetningar og opnun á skólasafni í Norðurkoti.
Lagðar fram tvær styrkumsóknir frá Minjafélagi Vatnsleysustrandar. Félagið sækir annars vegar um styrk að fjárhæð 1,0 m.kr. til fegrunar umhverfis og bætts aðgengis að gamla skólahúsinu Norðurkoti á Kálfatjörn, og hinsv vegar um 500 þús.kr. styrk til uppsetningar og opnun á skólasafni í Norðurkoti.
Bæjarráð samþykkir samþykkir að styrkja verkefnin um kr. 500.000, ásamt því að styrkja verkefnið með framlagi vinnuskólans samkvæmt nánara samkomulagi aðila. Fjárveitingin er tekin af lið 0589-9991, aðrir styrkir til menningarmála.

4.Suðurnesjavaktin

1401002

Suðurnesjavaktin starfar á vegum Velferðarvaktarinnar, sem var stofnuð að frumkvæði stjórnvalda 2009. Hér er lögð fram til kynningar 3. áfangaskýrslan, sem greinir frá stöðunni á Suðurnesjum fimm árum eftir efnahagshrunið haustið 2008.
Lögð fram áfangaskýrsla Suðurnesjavaktarinnar, sem starfar á vegum Velferðarráðuneytisins. Skýrslan fjallar um stöðu mála á Suðurnesjum fimm árum eftir efnahagshrunið 2008.

5.Uppbygging hjúkrunarheimila á Suðurnesjum

1302037

Lagðar fram ályktanir bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Garðs og bæjarstjórnar Reykjanesbæjar.
Lagðar fram ályktanir bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Garðs og bæjarstjórnar Reykjanesbæjar um málefni hjúkrunarheimila á Suðurnesjum.

6.FEB óskar eftir fundi við bæjarráð

1401011

Lagt fram bréf Félags eldri borgara á Suðurnesjum, dags. 13. janúar 2014. Stjórn félagsins óskar eftir samráðsfundi með sveitarstjórnarmönnum um framtíðar skipulag og uppbyggingu á hjúkrunarheimilum og þjónustu við eldri borgara á Suðurnesjum. Bæjarráð samþykkir að boða til fundar með bæjarstjórn og bréfriturum miðvikudaginn 29. janúar n.k. kl. 17:00.

7.Frístundakort - endurskoðaðar reglur

1401009

Reglur um frístundakort eru frá árinu 2011. Lögð er fram tillaga um breytingar á reglunum, til einföldunar og með hliðsjón af reynslunni.
Lagðar fram gildandi reglur um frístundakort ásamt minnisblaði með tillögu að breyttum reglum frístundakortsins. Bæjarráð samþykkir að breyta reglunum þannig að framkvæmd uppgjörs verði með þeim hætti að foreldrar framvísi reikningi sem er stimplaður með kvittun gjaldkera.. Greitt er allt að 10.500kr á ári með hverju barni. Greitt er 15.febrúar og 15. október og þá allt að 10.500kr fyrir hvert barn(skila þarf reikningum fyrir þann 1. þess mánaðar sem greitt er). Samþykkt samhljóða.

8.Bréf til bæjarráðs vegna kjara.

1401007

Lagt fram bréf nokkurra starfsmanna sveitarfélagsins sem óska eftir að ákvörðun um fyrirkomulag greiðslu vegna fatakaupa verði endurskoðuð.
Lagt fram bréf nokkurra starfsmanna sveitarfélagsins dags. 10. janúar 2014. Í bréfinu óska starfsmenn eftir að breytt fyrirkomulag á útborgun vinnufatnaðar verði endurskoðað.
Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins og felur bæjarstjóra að taka saman upplýsingar sem liggja munu til grundvallar um með hvaða hætti framkvæmd mála skuli verða.

9.Þjónustutími bæjarskrifstofu

1312013

Málið var á dagskrá 162. fundar bæjarráðs. Anna Hulda Friðriksdóttir skrifstofustjóri mætir á fundinn undir þessum lið.
Anna Hulda Friðriksdóttir skrifstofustjóri mætti á fundinn undir þessum lið. Málið var áður á dagskrá 162. fundar bæjarráðs, þar sem lagt var fram minnisblað bæjarstjóra ásamt samanburði á opnunartíma bæjarskrifstofa í nágrannasveitarfélögunum. Bæjarráð samþykkir tillögu að breyttum þjónustutíma samkvæmt tillögu sem fram kemur í minnisblaði bæjarstjóra. Breytingin er gerð til reynslu tímabundið, og skal endurmetin í september 2014 í ljósi reynslunnar.

10.Grænuborgarhverfi

0712001

Málið var áður á dagskrá 157. og 158. fundum bæjarráðs, og var lögmanni bæjarfélagsins falið að ræða frekar við fulltrúa VBS Eignasafns um frekari útfærslu samkomulagsins. Ívar Pálsson hrl. mætir á fundinn undir þessum lið og gerir grein fyrir niðurstöðum viðræðnanna.
Ívar Pálsson hrl. mætti á fundinn undir þessum lið. Ívar gerði grein fyrir niðurstöðum viðræðna við fulltrúa þrotabús Þóruskers ehf., vegna draga að samkomulagi um Grænuborgarsvæðið. Fyrir liggja drög að samkomulagi aðila um málið, með áorðnum breytingum frá fyrri drögum. Bæjarráð samþykkir drögin fyrir sitt leyti og felur lögmanni sveitarfélagsins og bæjarstjóra að ganga frá samkomulaginu í samræmi við drögin. Samþykkt samhljóða.

11.Endurskoðun aðalskipulags Sveitarfélagsins Voga 2008-2028.

1209030

Málið er tekið á dagskrá að beiðni forseta bæjarstjórnar.
Að beiðni forseta bæjarstórnar er málið tekið á dagskrá. Lagt er til að hafin verði endurskoðun aðalskipulags með það að markmiði að svæðið sem afmarkast af Knarrarnesi í vestri og Auðnum í austri verði breytt úr frístundabyggð í íbúðabyggð. Málinu vísað til Umhverfis- og skipulagsnefndar.

12.169. mál til umsagnar frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis

1401006

Umhverfis- og samgöngunefnd gefur sveitarfélaginu kost á að veita umsögn um tillögu til þingsályktunar um stofnun Hofsjökulsþjóðgarðs, 169. mál.
Lagður fram tölvupóstur frá nefndarsviði Alþingis, dags. 6. janúar 2014. Umhverfis- og samgöngunefnd gefur sveitarfélaginu kost á að vetia umsögn um tillögu til þingsályktunar um stofnun Hofsjökulsþjóðgarðs, 169. mál.

13.202. mál til umsagnar frá umhverfis og samgöngunefnd Alþingis

1401005

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis gefur sveitarfélaginu kost á að veita umsögn um tillögu til þingsályktunar um flutning stjórnsýslu um málefni hreindýra, 202. mál.
Lagður fram tölvupóstur frá nefndarsviði Alþingis, dags. 6. janúar 2014. Umhverfis- og Samgöngunefnd gefur sveitarfélaginu kost á að veita umsögn um tillögu til þingsályktunar um flutning stjórnsýslu um málefni hreindýra, 202. mál.

14.215. mál til umsagnar frá umhverfis-og samgöngunefnd Alþingis

1312004

Lögð fram drög að umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga um frumvarpið.
Lagður fram tölvupóstur frá nefndarsviði Alþingis, dags. 9. desember 2013. Umhverfis- og samgöngunefnd gefur sveitarfélaginu kost á að veita umsögn um frumvarp til laga um meðhöndlun úrgangs (verndun umhverfis og heilsu, EES-reglur), 215. mál. Einnig eru lögð fram drög að umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga um frumvarpið.

15.Tillögur að breyttum reglum um skráningu og vigtun sjávarafla

1312015

Hafnarsamband Íslands gefur aðildarhöfnum kost á að veita umsögn um tillögu að breyttum reglum um skráningu og vigtun sjávarafla.
Lagður fram tölvupóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, f.h. Hafnarsambandsins, dags. 18.12.2013. Hafnarsambandið barst beiðni um umsögn um tillögur að breyttum reglum og skrániningu og vigtun sjávarafla, og gefur nú aðildarfélögum kost á að koma að athugasemdum um málið, ef einhverjar eru.

16.Fundargerðir 2013 Reykjanesfólkvangur

1310013

Lögð fram fundargerð stjórnar Reykjanesfólkvangs frá 16. desember 2013 ásamt skýrslu landvarðar.
Lögð fram fundargerð stjórnar Reykjanesfólkvangs frá 16. desember 2013. Einnig er lögð fram skýrsla landvarðar fyrir árið 2013.

17.Fundargerðir Hafnarsambands Íslands

1310023

Lögð fram fundargerð 361. fundar Hafnarsambandsins.
Lögð fram fundargerð 361. fundar Hafnarsambandsins.

18.Fundargerðir S.Í.S. 2013

1309031

Lögð fram fundargerði 811. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Lögð fram fundargerð 811. fundar stjórnar Sambands íslenskrsa sveitarfélaga.

19.Fundargerðir Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum 2013

1309028

Lögð fram fundargerð 668. fundar stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum
Lögð fram fundargerð 668. fundar stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum.

20.Fundargerðir Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum 2013

1309028

Lögð fram fundargerð 669. fundar stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum
Lögð fram fundargerð 669. fundar stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum.

21.Fundargerðir stjórnar Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja, Kölku 2013.

1309023

Lögð fram fundargerð 443. fundar stjórnar Kölku, Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja
Lögð fram fundargerð 443. fundar stjórnar Kölku, Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja.

22.Fundir stjórnar Brunavarna Suðurnesja 2014

1401008

Lögð er fram fundargerð 230. fundar frá 7. janúar.
Lögð fram fundargerð 230. fundar stjórnar Brunavarna Suðurnesja frá 7. janúar 2014.

Fundi slitið - kl. 08:30.

Getum við bætt efni síðunnar?