Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga

162. fundur 18. desember 2013 kl. 06:40 - 08:30 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
  • Kristinn Björgvinsson formaður
  • Oddur Ragnar Þórðarson varaformaður
  • Bergur Álfþórsson aðalmaður
Fundargerð ritaði: Ásgeir Eiríksson bæjarstjóri
Dagskrá
Kristinn Björgvinsson formaður stýrir fundi.
Í upphafi fundar var leitað afbrigða og eftirtalin mál tekin á dagskrá: 5. mál (1312012): Æfinga- og áhaldahús Golfklúbbs Vatnsleysustrandar; og 6. mál: (1312013): Þjónustutími bæjarskrifsofu. Þau mál sem í fundarboði voru merkt sem 5. og 6. mál verða 7. og 8. mál. Samþykkt samhljóða.

1.Ályktanir sveitarstjórnarvettvangs EFTA

1312009

Sveitarstjórnarvettvangur EFTA fundaði í Brussel í nóvember 2013 þar sem meðfylgjandi ályktanir voru samþykktar.
Lagt fram bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 5.12.2013, þar sem kynntar eru ályktanir Sveitarstjórnarvettvangs EFTA. Ályktanirnar varða annars vegar endurskoðun evrópskra reglna um úrgangsmál og hins vegar endurskoðun tilskipunar um endurnýtingu opinberra upplýsinga. Ályktanirnar eru aðgengilegar á vef sambandsins, www. samband.is

2.Fjárhagsleg viðmið sveitarstjórnarlaga.

1207002

Lagt fram að nýju bréf eftirlitsnefndar frá október 2013, þar sem óskað er eftir upplýsingum um fjármálastjórn sveitarfélagsins. Málið var áður á dagskrá 159. fundar bæjarráðs. Bæjarstjóri hefur nú tekið saman verklagsreglur um fjármálastjórn, sem þarfnast samþykktar bæjarráðs áður en þær eru sendar eftirlitsnefndinni.
Lagt fram að nýju bréf Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga frá október 2013. Málið var áður á dagskrá 159. fundi bæjarráðs, þar sem bæjarstjóra var falið að leggja fram verklagsreglur um fjármálastjórn sveitarfélagsins. Á fundinum er lagt fram minnisblað bæjarstjóra dags. 16.12.2013 með tillögum að verklagsreglum fjármálastjórnar Sveitarfélagsins Voga. Bæjarráð samþykkir verklagsreglurnar og felur bæjarstjóra að senda þær Eftirlitsnefndinni sem svar við erindi nefndarinnar.

3.Starfsmannahandbók

1306010

Helga Jóhanna Oddsdóttir mannauðsráðgjafi sveitarfélagsins mætir á fundinn kl. 07:30 og fer yfir drög að starfsmannahandbók sveitarfélagsins, sem nú hefur verið tekin saman.
Helga Jóhanna Oddsdóttir mannauðsráðgjafi sveitarfélagsins mætti á fundinn undir þessum lið. Með fundarboði fylgdi drög að fyrstu útgáfu starfsmannahandbók sveitarfélagsins. Helga Jóhanna kynnti bæjarráði innihald starfsmannahandbókarinnar. Starfsmannahandbókin inniheldur m.a. starfsmannastefnu sveitarfélagsins, sem þarfnast staðfestingar bæjarstjórnar. Bæjarráð þakkar kynninguna, málið verður áfram til vinnslu á vettvangi bæjarráðs sem að lokum sendur starfsmannahandbókina ásamt starfsmannastefnu til staðfestingar hjá bæjarstjórn.

4.Jólahúsið 2013

1312011

Borist hafa nokkrar tilnefningar um fallega skreytt hús fyrir jólin. Á fundinum verður farið í stutta ökuferð og tilnefnd hús skoðuð áður en bæjarráð úrskurðar um jólahúsið 2013.
Borist hafa nokkrar tilnefningar um jólahúsið 2013. Bæjarráð fór í vettvangsferð og skoðaði þau hús sem tilnefnd hafa verið sem Jólahúsið 2013. Niðurstaða bæjarráðs er að tilnefnda Heiðardal 3 sem Jólahús ársins 2013 í Sveitarfélaginu Vogum.

5.Æfinga- og áhaldahús Golfklúbbs Vatnsleysustrandar

1312012

Bréf Golfklúbbs Vatnsleysustrandarhrepps vegna byggingar æfinga- og áhaldahúss fyrir starfsemi klúbbsins. Bréfið er sent í framhaldi af fundi bæjarráðs með forráðamönnum golfklúbbsins í desember 2013.
Lagt fram bréf Golfklúbbs Vatnsleysustrandar dags. 9. desember 2013, þar sem stjórn klúbbsins óskar eftir samstarfi við sveitarfélagið um uppbyggingu æfinga- og áhaldahúss fyrir klúbbinn. Bæjarráð samþykkir að styrkja verkefnið allt að kr. 6,0 m.kr. á næstu átta árum. Bæjarstjóra falið að útfæra samstarsverkefnið nánar í samráði við forsvarsmenn Golfklúbbs Vatnsleysustrandar.

6.Þjónustutími bæjarskrifstofu

1312013

Lagt fram minnisblað bæjarstjóra um þjónustutíma bæjarskrifstofu ásamt tillögu að breytingu.
Lagt fram minnisblað bæjarstjóra dags. 16.12.2013 um þjónustutíma bæjarskrifstofu. Í minnisblaðinu er tilgreindur samanburður þjónustutími á bæjarskrifstofunum í sveitarfélögunum á Suðurnesjum, ásamt því að lögð er fram tillaga að breyttum þjónustutíma bæjarskrifstofunnar í Vogum. Afgreiðslu málsins er frestað til næsta fundar bæjarráðs. Bæjarráð óskar eftir að skrifstofustjóri mæti til þess fundar.

7.239. fundur Heilbrigðisnefndar Suðurnesja

1312001

Lögð fram fundargerð 239. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurnesja, dags. 22.11.2013.

8.Fundargerðir Náttúrustofu Suðvesturlands, 2013

1309041

Lögð fram fundargerð 80. fundar Náttúrustofu Suðvesturlands.
Lögð fram fundargerð Náttúrustofu Suðvesturlands, 80. fundar sem haldinn var 16.október 2013.

Fundi slitið - kl. 08:30.

Getum við bætt efni síðunnar?