Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga

161. fundur 04. desember 2013 kl. 06:30 - 08:30 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
  • Kristinn Björgvinsson formaður
  • Oddur Ragnar Þórðarson
  • Bergur Álfþórsson
Fundargerð ritaði: Ásgeir Eiríksson bæjarstjóri
Dagskrá

1.Frá 48. sambandsþingi Ungmennafélags Íslands

1311030

Ályktun frá UMFÍ - hvatning til sveitarfélaga og íþrótta- og ungmennafélaga um að hjóla, ganga eða taka strætó til og frá íþróttaiðkun
Lögð fram ályktun frá UMFI, hvatning til sveitarfélaga og íþrótta- og ungmennafélaga um að iðkendur hjóli, gangi eða taki strætó til og frá íþróttaiðkun.

2.Styrkir til íþróttamála 2014

1312002

UMFÞ óskar eftir viðræðum við bæjarráð um endurskoðun á styrkfjárhæð til félagsins.
Lagt fram bréf formanns og framkvæmdastjóra UMFÞ dags. 28.11.2013, beiðni um viðræður um endurskoðun á styrkfjárhæð til félgasins. Bæjarráð fellst á beiðni bréfritara um fund, og býður forsvarsmönnum ungmennafélagsins að mæta á næsta fund bæjarráðs.

3.Bréf til Bæjarstjórnar 11. nóv. 2013

1311016

Hörgull ehf. býður sveitarfélaginu fyrrum húsnæði Landsbankans til leigu.
Lagt fram bréf Hörguls ehf., dags. 11. nóv. 2013. Bréfritari býður sveitarfélginu til leigu fyrrum húsnæði Landsbankans í Iðndal 2. Bæjarráð þakkar bréfritara tilboðið. Að svo stöddu sér sveitarfélagið sér ekki hag í að taka viðkomandi húsnæði á leigu.

4.Fjárhagsáætlun 2014 - 2017

1308030

Úrvinnsla bæjarráðs milli fyrri og síðari umræðu í bæjarstjórn. Með útsendum gögnum fylgir m.a. samantekt að leiktækjum á skólalóð.
Úrvinnsla bæjarráðs eftir fyrri umræðu í bæjarstjórn. Bæjarráð gekk frá tillögu sinni að fjárhagsáætlun til síðari umræðu, sem send verður út með fundarboði bæjarstjórnar.

5.Fjárhagsleg viðmið sveitarstjórnarlaga.

1207002

Lagt fram bréf frá Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga frá 18 nóvember 2013. Eftirlitsnefndin tilkynnir að ekki sé óskað frekari upplýsinga vegna fyrirspurnar nefndarinnar - málinu er því lokið.
Lagt fram bréf Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga dags. 18.11.2013. Í bréfinu kemur fram að þær upplýsingar sem nefndin hafði áður óskað eftir vegna eftirlitshlutverks síns séu fullnægjandi og að ekki sé óskað frekari upplýsinga vegna fyrirspurnar nefndarinnar.

6.Málefni Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja

1311036

Lögð fram ályktun bæjarráðs Sveitarfélagsins Garðs frá 14.11.2013 um málefni Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.
Lögð fram ályktun bæjarráðs Sveitarfélagsins Garðs frá 14.11.2013 um málefni Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. Bæjarráð tekur undir ályktunina.

7.Niðurfelling Skipholtsvegar af vegaskrá.

1309006

Afrit af bréfi Vegagerðarinnar til eiganda Skipholts um niðurfellingu Skipholtsvegar af vegaskrá.
Lagt fram afrit af bréfi Vegagerðarinnar til eiganda jarðarinnar Skipholts um niðurfellingu Skipholtsvegar af vegaskrá.

8.Styrkbeiðni. Íþróttafélag fatlaðra á Suðurnesjum

1311033

Lagt fram bréf íþróttafélgas fatlaðra á Suðurnesjum, dags. 11.11.2013, beiðni um fjárhagsstyrk til styrktar starfsemi félagsins. Bæjarráð samþykkir að styrkja starfsemina um kr. 50.000. Tekið af lið 0689-9991, styrkir til íþróttamála.

9.Ungt fólk 2013

1311031

Lagt fram bréf Mennta- og menningarmálaráðuneytisins dags. 14.11.2013, þar sem vakin er athygli á niðurstöðum rannsóknar um hagi ungs fólks 2013.

10.Hlutabréf Bláa Lónsins.

1309005

Innköllun hlutabréfa í eigu sveitarfélags
Lögð fram bréf Hótels Bláa Lónsins ehf. og Blue Lagoon International ehf., þar sem tilkynnt er um þá ákvörðun félaganna að innleysa hlutabréf sveitarfélagsins í félögunum á nafnverði. Nafnverð hlutanna er annars vegar kr. 982,- og hins vegar kr. 5.371.

11.Sala á hlutabréfum í HS Veitum

1203007

Kaupsamningur um hlut Sveitarfélasins Voga lagður fram til samþykktar. Málið var áður á dagskrá bæjarstjórnar á 90. fundi, dags. 30.10.2013, þar sem samningsdrögin voru samþykkt.
Lagður fram endanlegur kaupsamningur um hlut sveitarfélagsins í HS Veitum hf. Kaupandi er Ursus I slhf. Áður höfðu drög að kaupsamningi verið lögð fram á 90. fundi bæjarstjórnar, og þau samþykkt. Endanlegur kaupsamningur er í samræmi við áður samþykkt drög, bæjarráð samþykkir því fyrir sitt leyti kaupsamninginn, með fyrirvara um endanlegt samþykki bæjarstjórnar. Að fenginni staðfestingu bæjarstjórnar er bæjarstjóra falið að ganga frá undirritun samningsins f.h. sveitarfélagsins. Eignarhluti sveitarfélagsins í HS Veitum er samtals 1.331.573 hlutir, kaupverð hlutarins er kr. 9.099.448.

12.159. mál til umsagnar frá nefndasviði Alþingis

1311029

Lagður fram tölvupóstur frá nefndarsviði Alþingis dags. 19.11.2013, þar sem sveitarfélaginu gefst kostur á að veita umsögn um frumvarp til laga um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði (heildarlög), 159. mál.

13.160. mál til umsagnar frá Velferðarnefnd Alþingis

1311028

Lagður fram tölvupóstur frá nefndarsviði Alþingis dags. 19.11.2013, þar sem sveitarfélaginu gefst kostur á að veita umsögn um frumvarp til laga um lífssynasöfn (söfn heilbrigðisupplýinga og leitargrunnar), 160. mál.

14.167. mál til umsagnar frá nefndasviði Alþingis

1311037

Lagður fram tölvupóstur frá nefndarsviði Alþingis dags. 25.11.2013 þar sem sveitarfélaginu gefst kostur á að veita umsögn um frumvarp til laga um náttúruvernd (brottfall laganna), 167. mál.

15.186. mál til umsagnar frá velferðarnefnd Alþingis

1311038

Lagður fram tölvupóstur frá nefndarsviði Alþingis dags. 25.11.2013 þar sem sveitarfélaginu gefst kostur á að veita umsögn um frumvarp til laga um barnaverndarlög (rekstur heimila fyrir börn), 186. mál

16.Aðalskipulag Hafnarfjarðar 2005-2025

1311026

Lagður fram tölvupóstur frá skipulagsstjóra Hafnarfjarðar dags. 14.11.2013. Með tölvupóstinum fylgir skipulagsuppdráttur nýs aðalskipulags, endurskoðuð umhverfisskýrsla og bréf til umsagnaraðila. Sveitarfélaginu gefst kostur á að veita umsögn um hið nýja aðalskipulag.
Bæjarráð vísar erindinu til Umhverfis- og skipulagsnefndar.

17.Fjárhagsáætlun Sambands Sveitarfélaga á Suðurnesjum

1311039

Lögð fram fjárhagsáætlun Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum fyrir árið 2014. Niðurstöður áætlunarinnar hvað varðar sveitarfégið Voga hafa verið færðar inn í fjárhagsáætlun sveitarfélagsins. Bæjarráð samþykkir áætlunina.

18.Starfsreglur fyrir Svæðisskipulagsnefnd Suðurnesja

1311041

Lagt fram bréf formanns samvinnunefndar um svæðisskipulag á Suðurnesjum dags. 22.11.2013. Með bréfinu fylgja tillögur nefndarinnar að starfsreglum fyrir svæðisskipulagsnefnd Suðurnesja.
Bæjarráð vísar erindinu til Umhverfis- og skipulagsnefndar og óskar umsagnar nefndarinnar áður en reglurnar verða teknar til afgreiðlu og samþykktar.

19.229. fundur Stjórnar B.S.

1311032

Fundagrerð frá 11. nóvember lögð fram.
Einnig er lögð fram til samþykktar, endurbætt gjaldskrá fyrir B.S. samþykkt á sama fundi.
Lögð fram fundargerð 229. fundar stjórnar Brunavarna Suðurnesja dags. 11.11.2013. Gjaldskrá BS er vísað til bæjarstjórnar til staðfestingar.

20.238. fundur Heilbrigðisnefndar Suðurnesja

1311018

Lögð fram fundargerð 238. fundar Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja, dags. 7.11.2013.

21.Fundargerðir Fjölskyldu- og velferðarnefndar 2013

1310001

Lögð er fram 73. fundargerð fjölskyldu- og velferðarnefndar, frá 21. nóvember.
Lögð fram fundargerð 73. fundar Fjölskyldu- og verðverðarnefndar dags. 21.11.2013

22.Fundargerðir S.Í.S. 2013

1309031

Lögð fram fundargerð 810. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 22.11.2013.

23.Fundargerðir Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum 2013

1309028

Lögð er fram 667. fundargerð Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum frá 21. nóvember.
Lögð fram fundargerð 667. fundar stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum dags. 21.11.2013

24.Fundargerðir þjónustuhóps aldraðra á Suðurnesjum 2013

1309039

Lögð fram fundargerð 88. fundar Þjónustuhóps aldraðra á Suðurnesjum haldinn 28.10.2013
Lögð fram fundargerð 88. fundar Þjónustuhóps aldraðra á Suðurnesjum frá 28.10.2013.

25.Fundargerðir þjónustuhóps aldraðra á Suðurnesjum 2013

1309039

Lögð fram fundargerð m89. fundar Þjónustuhóps aldraðra á Suðurnesjum haldinn 18.11.2013 ásamt ályktun stjórnarfundar Félags eldri borgara á Suðurnesjum frá 14.11.2013
Lögð fram fundargerð 89. fundar Þjónustuhóps aldraðra á Suðurnesjum frá 18.11.2013. Með fundargerðinni fylgir ályktun stjórnarfundar Félags eldri borgara á Suðurnesjum dags. 14.11.2013

Fundi slitið - kl. 08:30.

Getum við bætt efni síðunnar?