Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga

266. fundur 05. desember 2018 kl. 06:30 - 08:45 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
  • Bergur Álfþórsson formaður
  • Ingþór Guðmundsson varaformaður
  • Björn Sæbjörnsson aðalmaður
  • Jóngeir Hjörvar Hlinason áheyrnarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Ásgeir Eiríksson bæjarstjóri
Dagskrá
Í upphafi fundar er lögð fram tillaga um að leita afbrigða og heimila að taka á dagskrá sem 16. mál fundargerð Afgreiðslufundar byggingafulltrúa frá 4.12.2018.

Afgreiðsla bæjarráðs:
Samþykkt samhljóða.

1.Breiðuholt 4. Umsókn um lóð

1811027

Einar Lárusson sækir um einbýlishúsalóðina Breiðuholt 4. Fyrir liggja tilskilin gögn um greiðslumat umsækjanda.
Afgreiðsla bæjarráðs:

Bæjarráð samþykkir umsóknina.

2.Endurskoðum sameiginlegrar menningarstefnu á Suðurnesjum.

1811035

Erindi framkvæmdastjóra SSS dags. 23.11.2018, ásamt minnisblaði verkefnastjóra. Óskað er afstöðu sveitarfélagsins til endurskoðunar sameiginlegrar menningarstefnu á Suðurnesjum.
Afgreiðsla bæjarráðs:

Bæjarráð vísar erindinu til umfjöllunar Frístunda- og menningarnefndar. Bæjarstjóra er jafnframt falið að koma Menningarstefnu sveitarfélagsins á framfæri við bréfritara.
Samþykkt samhljóða.

3.Erindi frá Landgræðslu-og skógræktarfélaginu Skógfelli. Stígur að Háabjalla.

1712014

Skógfell sækir um fjárveitingu vegna gerðar stígs að Háabjalla.
Afgreiðsla bæjarráðs:

Vísað til meðferðar við gerð fjárhagsáætlunar.

4.ósk um samstarf við sveitarfélagið um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis

1811038

Erindi Hrafnhóls ehf. dags. 28.11.2018, þar sem óskað er eftir samstarfi við sveitarfélagið um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis.
Afgreiðsla bæjarráðs:

Erindið lagt fram.

5.Reiðvegir á Vogastapa.

1711018

Erindi Vogahesta dags. 14.11.2018, þar sem óskað er eftir fjárveitingu til uppbyggingar reiðvega í sveitarfélaginu.
Afgreiðsla bæjarráðs:

Vísað til meðferðar við gerð fjárhagsáætlunar 2019.

6.Iðndalur 4. Þjónustumiðstöð í Vogum. Útboð.

1811025

Greinargerð vegna athugunar gagna frá lægstbjóðanda í verkið "Iðndalur 4, Vogum - þjónustumiðstöð."
Lögð fram greinargerð Tækniþjónustu SÁ, dags. 29. nóvember 2019. Jafnframt er lagt fram minnisblað bæjarstjóra, dags. 3.desember 2018.

Afgreiðsla bæjarráðs:

Bæjarráð staðfestir fyrri ákvörðun sína um að ganga til samninga við lægstbjóðanda, Sparra ehf., um verkið. Samþykkt samhljóða.

7.Viðaukar við fjárhagsáætlun 2018

1803007

Kaup á smátraktor í stað Bob-Cat, samkvæmt tilboði.
Lagt fram tilboð um kaup á smátraktor fyrir Umhverfisdeild, til endurnýjunar á tæki sem gengið er úr sér og ekki svarar lengur kostnaði að viðhalda.

Afgreiðsla bæjarráðs:

Bæjarráð samþykkir heimild til kaupa á vélinni samkvæmt framlögðu tilboði. Bæjarstjóra falið að útfæra viðauka vegna málsins, en fjárveiting til kaupanna rúmast innan ramma framkvæmdaáætlunar 2018.

8.Fjarskiptamál í dreibýli sveitarfélagsins

1701075

Lagning ljósleiðara í dreifbýli sveitarfélagsins
Lagt fram minnisblað bæjarstjóra um málið, dags. 3.12.2018. Í minnisblaðinu er farið yfir stöðu mála varðandi lagningu ljósleiðara í dreifbýli sveitarfélagins. Styrkur fékkst til verksins úr Fjarskiptasjóði, undir formerkjum verkefnisins "Ísland ljóstengt 2020". Sveitarfélagið hefur samstarf um verkefnið við Mílu ehf. Jafnframt er lögð fram uppreiknuð kostnaðaráætlun við verkið, byggð á áætluðum magntölum og einingaverðum verktaka.

Afgreiðsla bæjarráðs:

Lagt fram. Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti frestun framkvæmdarinnar til vors 2019. Bæjarráð leggur jafnframt til að leitað verði fleiri tilboða í verkið, og þess freistað að lækka með því kostnað við framkvæmdir. Að fengnum þeim niðurstöðum mun bæjarráð taka afstöðu til þess hvort, og þá hversu há tengigjöld verða lögð á viðkomandi staðföng. Samþykkt samhljóða.

9.Byggðakvóti fiskveiðiársins 2018-2019

1810028

Svar Atvinnu- og nýsköpunarráðuneytisins við umsókn sveitarfélagsins um byggðakvóta fiskveiðiárið 2018 - 2019
Lagt fram erindi Atvinnu- og nýsköpunarráðuneytisins dags. 30.11.2018, þar sem fram kemur að byggðakvóta verði ekki úthlutað til sveitarfélagsins á yfirstandandi fiskveiðiári. Ráðuneytið bendir sveitarfélaginu hins vegar á að óúthlutaður kvóti sé til staðar frá fyrri árum, alls 118 þorskígilidistonn, sem færa má á milli ára. Bent er á að sveitarfélaginu gefist kost á að sækja um sérreglur þar að lútandi.

Afgreiðsla bæjarráðs:
Erindið lagt fram. Bæjarráð samþykkir að sótt verði um sérreglur til ráðuneytisins. Samþykkt samhljóða.

10.Ráðning forstöðumanns íþróttamannvirkja 2018.

1811024

Tillaga um ráðningu forstöðumanns íþróttamannvirkja
Lagt fram minnisblað bæjarstjóra dags. 3.12.2018, þar sem lagt er til að Héðinn Ólafsson verði ráðinn forstöðumaður íþróttamannvirkja sveitarfélagsins. Alls bárust þrjár umsóknir um stöðuna.

Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð samþykkir að ráða Héðinn Ólafsson til starfa sem forstöðumann íþróttamannvirkja sveitarfélagsins. Samþykkt samhljóða.

11.Fjárhagsáætlun 2019 - 2022

1802078

Lokayfirferð bæjarráðs, fyrir síðari umræðu í bæjarstjórn
Vinnufundur bæjarráðs milli umræðna.

Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð lauk yfirferð á tillögu að fjárhagsáætlun 2019 - 2022. Tillagan verður tekin til síðari umræðu á fundi bæjarstjórnar þann 11. desember 2018.

12.Kerfisáætlun Landsnets

1311002

Erindi Landsnets hf. dags. 27.11.2018, sem sendir til umsagnir Kerfisáætlun 2019 - 2028
Erindi Landsnets hf. dags. 27.11.2018 lagt fram. Í erindinu vekur Landsnet hf. athygli á vinnslu kerfisáætlunar 2019 - 2028, og óskar eftir athugasemdum við verkefnis- og matslýsingu kerfisáætlunar. Frestur til að skila athugasemdum er til og með 19. desember 2018.

Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram.

13.Frá nefndasviði Alþingis - 140. mál til umsagnar

1811039

Alþingi sendir til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um húsnæðisbætur (réttur námsmanna og fatlaðs fólks), 140. mál
Afgreiðsla bæjarráðs:

Lagt fram.

14.Reglugerð um stefnumótandi áætlun um málefni sveitarfélaga í samráðsgátt

1811042

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið vekur athygli á að birt hafa verið til umsagnar drög að reglugerð um stefnumótandi áætlunar ríkisins um málefni sveitarfélaga.
Afgreiðsla bæjarráðs:

Lagt fram.

15.Fundargerðir Hafnarsambands Íslands 2018

1801032

Fundargerð 408. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands, ályktun hafnasambandsþings um öryggi í höfnum, þinggerð Hafnasambandsþings ásamt minnisblaði um stöðu landtenginga.
Afgreiðsla bæjarráðs:

Fundargerðin, þinggerðin, ályktunin og minnisblaðið lagt fram.

16.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 47

1812002F

Fundargerð 47. Afgreiðslufundar byggingafulltrúa dags. 4.12.2018 lögð fram.

Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram.
  • 16.1 1810077 Iðndalur 4. Umsókn um byggingarleyfi
    Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 47 Byggingaráformin eru samþykkt. Umsóknin samræmist aðal- og deiliskipulagi, mannvirkjalögum nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin er öryggis- og lokaúttekt byggingarfulltrúa, skv. ákvæðum 3.8. og 3.9. kafla byggingarreglugerðar. Útgáfa byggingarleyfis er háð skilyrðum 2.4.4. gr. byggingarreglugerðar.
  • 16.2 1811011 Hafnargata 23. Umsókn um byggingarleyfi
    Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 47 Afgreiðsla: Byggingaráformin eru samþykkt. Umsóknin samræmist aðal- og deiliskipulagi, mannvirkjalögum nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012. Útgáfa byggingarleyfis er háð skilyrðum 2.4.4. gr. byggingarreglugerðar. Áskilin er öryggis- og lokaúttekt byggingarfulltrúa, skv. ákvæðum 3.8. og 3.9. kafla byggingarreglugerðar.
  • 16.3 1811003 Breiðuholt 6. Umsókn um byggingarleyfi.
    Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 47 Afgreiðsla: Frestað, vísað til athugasemda byggingarfulltrúa við aðaluppdrætti.
  • 16.4 1810073 Hafnargata 4. Umsókn um byggingarleyfi.
    Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 47 Afgreiðsla: Frestað, vísað til athugasemda byggingarfulltrúa við aðaluppdrætti.
  • 16.5 1805022 Keilisholt 1-3. Umsókn um byggingarleyfi.
    Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 47 Afgreiðsla: Frestað, vísað til athugasemda byggingarfulltrúa við aðaluppdrætti.
  • 16.6 1810031 Hafnarsvæði - Deiliskipulagsbreyting
    Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 47 Afgreiðsla: Tillagan hefur verið grenndarkynnt í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Engar athugasemdir hafa verið gerðar við tillöguna. Málsmeðferð verði í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
  • 16.7 1811006 Umsókn um stöðuleyfi
    Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 47 Afgreiðsla: Stöðuleyfi er samþykkt til 31.03.2019.
  • 16.8 1811010 Umsókn um stöðuleyfi
    Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 47 Afgreiðsla: Frestað, vantar frekari gögn.

Fundi slitið - kl. 08:45.

Getum við bætt efni síðunnar?