Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga

158. fundur 23. október 2013 kl. 08:00 - 12:00 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
  • Kristinn Björgvinsson formaður
  • Oddur Ragnar Þórðarson
  • Bergur Álfþórsson
Fundargerð ritaði: Ásgeir Eiríksson bæjarstjóri
Dagskrá

1.Styrkbeiðnir 2013

1302017

Sótt er um styrk til umferðarfræðslu fyrir yngstu kynslóðina
Lagður fram tölvupóstur Önnu Bergljótar Thoroddsen dags. 22.08.2013, beiðni um styrk til umferðafræðslu Umferðaleikhússins. Bæjarráð samþykkir beiðnina, styrkfjárhæð er kr. 35.000

2.Umsókn um styrk 2013

1310014

Styrkumsókn frá samtökunum Landsbyggðin lifi
Lagt fram bréf samtakanna "Landsbyggðin lifi", dags. 2.10.2013, beiðni um styrk. Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.

3.Uppbygging hjúkrunarheimila á Suðurnesjum

1302037

Félag eldri borgara á Suðurnesjum ályktar um málefni hjúkrunarheimila á Suðurnesjum.
Lagðar fram ályktanir Félags eldri borgara á Suðurnesjum dags. 4. október 2013, ásamt ályktun um starfrækslu Garðvangs.

4.Vinnuskóli 2013

1304069

Lögð fram skýrsla um starfsemi Vinnuskólans 2013. Bæjarráð lýsir yfir ánægju sinni með starfsemi Vinnuskólans og þakkar skýrsluhöfundum skýrsluna.

5.Grænuborgarhverfi

0712001

Ívar Pálsson hrl. mætir á fundinn og fer yfir samnginsdrög aðila.
Málið var áður til umfjöllunar hjá bæjarráði á 157. fundi. Ívar Pálsson hrl. mætti á fundinn og fór yfir samkomulagsdrög sem liggja fyrir milli sveitarfélagsins og VBS Eignasafns um Grænuborgarsvæðið. Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins og felur lögmanni sveitarfélagsins að ræða frekar við fulltrúa VBS Eignasafns um frekari útfærslu samkomulagsins.

6.Fjárhagsáætlun 2014 - 2018

1308030

Vinnufundur bæjarráðs - undirbúningur að tillögu fjárhagsáætlunar 2014 til fyrri umræðu. Oddur Gunnar Jónsson frá KPMG kemur á fundinn og verður til aðstoðar.
Oddur Gunnar Jónsson frá KPMG sat fundinn undir þessum lið. Bæjarráð fór yfir fyrstu drög að fjárhagsáætlun 2014. Vinnsla áætlunarinnar er áfram til úrvinnslu hjá bæjarráði.

7.Uppbygging ferðamannastaða á Reykjanesi

1310018

Áætlun frá Reykjanes jarðvang um uppbyggingu ferðamannastaða ásamt kostnaðaráætlun
Lagt fram bréf Eggert Sólbergs Jónssonar f.h. Reykjanesjarðvangs um uppbyggingu ferðamannastaða ásamt kostnaðaráætlun. Vísað til meðferðar við gerð fjárhagsáætlunar 2014.

8.Samskipti trúfélaga og skóla

1310016

Dreifipóstur ráðuneytisins um samskipti skóla og trúfélaga
Lagður fram tölvupóstur Mennta- og menningarmálaráðuneytisins dags. 14.10.2013 um samskipti skóla og trúfélaga.

9.Ályktanir frá landsþingi Landssamtakanna Þroskahjálpar 2013

1310020

Lagðar fram ályktanir landsþings Landssamtakanna Þroskahjálpar 2013.

10.44. mál til umsagnar frá atvinnuveganefnd Alþingis

1309034

Lagt fram.

11.Fundargerðir 2013 Reykjanesfólkvangur

1310013

Lögð er fram fundargerð frá 3. október 2013
Fundargerðin lögð fram.

12.Fundargerðir Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum 2013

1309028

Lögð er fram 665. fundargerð Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum
Fundargerðin lögð fram.

Fundi slitið - kl. 12:00.

Getum við bætt efni síðunnar?