459. fundur
27. október 2026 kl. 17:00 - 21:40 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
Birgir Örn Ólafssonformaður
Kristinn Björgvinssonáheyrnarfulltrúi
Gunnar Júlíus Helgasonaðalmaður
Guðmann Rúnar Lúðvíkssonaðalmaður
Starfsmenn
Ásta FriðriksdóttirSviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Björg Ásta ÞórðardóttirBæjarstjóri
Fundargerð ritaði:Ásta Friðriksdóttirsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
Í upphafi fundar lagði formaður til að 10. og 11. mál samkvæmt útsendu fundarboði, styrkbeiðnir Norræna félagsins á Suðurnesjum og Golfklúbbs Vatnsleysustrandar vegna ársins 2027, yrðu tekin af dagskrá og beiðnirnar teknar til umfjöllunar undir sameiginlegu máli um styrkbeiðnir félagasamtaka fyrir árið 2027. Jafnframt leitaði formaður afbrigða til að taka nýtt mál, Styrkbeiðnir félagasamtaka 2027, á dagskrá sem 1. mál. Númer annarra dagskrárliða breytast til samræmis.
Tillagan samþykkt samhljóða.
1.Styrkbeiðni 2027
2610038
Lagðar fram styrkbeiðnir félagasamtaka í Sveitarfélaginu Vogum vegna ársins 2027. Beiðnir hafa borist frá:
Sóknarnefnd Kálfatjarnarkirkju. Lionsklúbbnum Keili vegna Velferðarsjóðs Voga. Ungmennafélaginu Þrótti. Norræna félaginu á Suðurnesjum. Sögu- og minjafélaginu Vatnsleysustrandar. Kvenfélaginu Fjólu. Hestamannafélaginu Mána. Golfklúbbi Vatnsleysustrandar. Félagi eldri borgara í Vogum. Björgunarsveitinni Skyggni. Lionsklúbbnum Keili. Skógræktarfélaginu Skógfelli. Kirkjukórnum.
Afgreiðsla bæjarráðs: Bæjarráð samþykkir samhljóða að vísa styrkbeiðnunum til vinnu við fjárhagsáætlun ársins 2027.
Lagt fram minnisblað bæjarstjóra ásamt fylgigögnum um mögulega þátttöku Sveitarfélagsins Voga í þróunarverkefni um smáforrit fyrir sveitarfélög, í framhaldi af fyrri afgreiðslu bæjarráðs.
Afgreiðsla bæjarráðs: Bæjarráð samþykkir að taka þátt í verkefninu með tveimur atkvæðum gegn einu. Bæjarstjóra falið að ljúka frágangi verklýsingar og samninga og undirrita þá.
Bókun A-listans: A-listinn gerir athugasemd við að raunkostnaður sveitarfélagsins sem þáttakanda í verkefninu liggur ekki fyrir og óljóst er hversu umfangsmikið starfshlutfall er að baki verkefninu að hálfu sveitarfélagsins. A-listinn telur fjármögnun sveitarfélagsins betur varið í aðra hluti og greiðir því tillögunni ekki atkvæði sitt.
Bókun meirihluta bæjarráðs: Meirihluti bæjarráðs telur að um sé að ræða hagkvæma fjárfestingu í bættri þjónustu og upplýsingagjöf til íbúa. Fyrir liggur kostnaðaráætlun ásamt áætlun um vinnuframlag starfsfólks við innleiðingu verkefnisins. Meirihlutinn telur mikilvægt að sveitarfélagið nýti tækifæri til stafrænnar þróunar og að bæði fjármunum og vinnutíma sé vel varið til að bæta þjónustu við íbúa.
Birting fundargagna: Fylgiskjöl minnisblaðs bæjarstjóra verða ekki birt, með vísan til 1. tölul. 1. mgr. 7. gr. reglna um ritun fundargerða og birtingu fundargagna hjá Sveitarfélaginu Vogum.
4.Styrkur til Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja (HSS) vegna kaupa á brjóstaskimunartæki
2610034
Lagt fram kynningarbréf Samtaka atvinnurekenda á Reykjanesi (SAR) um söfnun fyrir brjóstaskimunartæki fyrir Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Til umræðu er mögulegur styrkur Sveitarfélagsins Voga til söfnunarinnar.
Afgreiðsla bæjarráðs: Bæjarráð samþykkir að veita 300.000 kr. styrk til söfnunar vegna kaupa á brjóstaskimunartæki fyrir Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.
Bókun bæjarráðs: Bæjarráð fagnar framtakinu og leggur áherslu á að konur á Suðurnesjum geti sótt brjóstaskimun í heimabyggð. Bætt aðgengi getur auðveldað konum að nýta sér skimun og stuðlað að aukinni þátttöku. Með styrknum vill sveitarfélagið leggja sitt af mörkum til að sú þjónusta verði að veruleika.
Tekið fyrir mál um samningagerð við félagasamtök í sveitarfélaginu í framhaldi af umfjöllun frístunda- og menningarnefndar.
Afgreiðsla bæjarráðs Bæjarráð tekur undir afgreiðslu og áherslur frístunda- og menningarnefndar og felur bæjarstjóra og fulltrúa nefndarinnar að halda áfram vinnu við endurnýjun samstarfssamninga í samráði við félagasamtökin. Samningsdrög verði lögð fyrir nefndina til umfjöllunar og síðan til bæjarráðs til afgreiðslu.
Tekið fyrir mál um stofnun Voganeistans og reglur um sjóðinn sem frístunda- og menningarnefnd vísaði til bæjarráðs til frekari afgreiðslu.
Afgreiðsla bæjarráðs: Meirihluti bæjarráðs samþykkir stofnun Voganeistans og regludrög sjóðsins með tveimur atkvæðum meirihlutans en fulltrúi A-listans situr hjá. Framlag í sjóðinn verði ákveðið í fjárhagsáætlun fyrir árið 2027. Málinu er vísað til bæjarstjórnar.
Bókun A-listans: A-listinn situr hjá við atkvæðagreiðslu málsins vegna ákveðins óskýrleika en mun gera grein fyrir afstöðu sinni þegar málið verður tekið fyrir í bæjarstjórn.
Rekstrarniðurstaða fyrir tímabilið janúar til ágúst 2026 lögð fram til kynningar. Lagt fram minnisblað frá sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs með rekstrarniðurstöðu fyrstu átta mánuði ársins. Sviðsstjóri mun gera grein fyrir efnistökum þess á fundinum og svara spurningum.
Afgreiðsla bæjarráðs: Rekstraryfirlit fyrir tímabilið janúar til ágúst 2026 og minnisblað sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs lagt fram.
8.Frístundarúta og samgöngustyrkur
2606041
Tekið fyrir mál um frístundarútu og samgöngustyrk sem frístunda- og menningarnefnd tók til umfjöllunar og vísaði til bæjarráðs til frekari afgreiðslu.
Afgreiðsla bæjarráðs: Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram að útfærslu reglna um samgöngustyrk með hliðsjón af umræðum á fundinum og leggja þær að nýju fyrir bæjarráð.
9.Reglur um íþróttamann ársins, sjálfboðaliða ársins og hvatningaverðlaun
2610032
Teknar fyrir reglur um kjör íþróttamanns ársins, sjálfboðaliða ársins og hvatningarverðlaun sem frístunda- og menningarnefnd vísaði til bæjarráðs til frekari afgreiðslu.
Afgreiðsla bæjarráðs: Bæjarráð samþykkir samhljóða framlagðar reglur um kjör íþróttamanns ársins, sjálfboðaliða ársins og hvatningarverðlaun, sem hafa verið uppfærðar í samræmi við afgreiðslu frístunda- og menningarnefndar.
Tekið fyrir uppfært erindisbréf Ungmennaráðs Voga fyrir starfsárið 2026-2027 sem frístunda- og menningarnefnd vísaði til bæjarráðs til frekari afgreiðslu.
Afgreiðsla bæjarráðs: Bæjarráð samþykkir samhljóða framlagt erindisbréf Ungmennaráðs Voga fyrir starfsárið 2026-2027 og vísar því til endanlegrar afgreiðslu bæjarstjórnar.
Umhverfis- og samgöngunefnd sendir til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um Byggðastofnun, nr. 106/1999 (lagfæringar), 156. mál. Frestur til að senda inn umsögn er til og með 22. október 2026.
Umhverfis- og samgöngunefnd sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um endurskoðun laga um sjávarflóðavarnir, ofanflóðavarnir og náttúruvá, 88. mál. Frestur til að senda inn umsögn er til og með 27. október nk.
Umhverfis- og samgöngunefnd sendir til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011 (fjöldi fulltrúa í sveitarstjórn), 59. mál. Frestur til að senda inn umsögn er til og með 27. október nk.
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til loftlagslaga, 202. mál. Frestur til að senda inn umsögn er til og með 29. október nk.
15.Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026
2602002
Lögð fram fundargerð 1003. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, sem haldinn var 23. september 2026 og 1004. fundar sem var haldinn 5. október 2026.
Lögð fram fundargerð 68. fundar fjölskyldu- og velferðarráðs Suðurnesjabæjar og Voga sem haldinn var 14.10.2026. Einnig fylgja nokkur fylgiskjöl til upplýsinga.
Afgreiðsla bæjarráðs: Lagt fram til kynningar.
Birting fundargagna: Hluti fylgiskjala með fundargerðinni verður ekki birtur, með vísan til 1. tölul. 1. mgr. 7. gr. reglna um ritun fundargerða og birtingu fundargagna hjá Sveitarfélaginu Vogum.
Tillagan samþykkt samhljóða.