1.Skýrsla Deloitte um raunkostnað sjúkraflutninga á Suðurnesjum
2610012
Lögð fram skýrsla Deloitte um raunkostnað sjúkraflutninga á Suðurnesjum. Eyþór Rúnar Þórarinsson, slökkviliðsstjóri Brunavarna Suðurnesja, mætir á fundinn og kynnir helstu niðurstöður skýrslunnar.
Afgreiðsla bæjarráðs: Skýrslan lögð fram til kynningar. Bæjarráð þakkar Eyþóri Rúnari Þórarinssyni fyrir kynninguna.
Birting fundargagna: Skýrsla Deloitte um raunkostnað sjúkraflutninga á Suðurnesjum verður ekki birt með fundargerðinni, með vísan til 7. tölul. 1. mgr. 7. gr. reglna um ritun fundargerða og birtingu fundargagna hjá Sveitarfélaginu Vogum.
2.Þróunarverkefni um smáforrit fyrir sveitarfélög
2609052
Kynning frá Vanir ehf. á þróunarverkefni um smáforrit fyrir sveitarfélög. Stefán Harald Hjaltalín, framkvæmdastjóri Vanir ehf., og Brian Johanessen, tæknistjóri, mæta á fundinn og kynna verkefnið.
Afgreiðsla bæjarráðs: Meirihluti bæjarráðs felur bæjarstjóra að ræða við Vanir ehf. um mögulega þátttöku sveitarfélagsins í verkefninu. Fyrir bæjarráð verði lögð tillaga um umfang verkefnisins, kostnað, ábyrgð aðila og næstu skref áður en ákvörðun verður tekin um þátttöku.
Bókun A-listans: Fulltrúi A-listans gerir athugasemd við að ósk um mögulega þátttöku sveitarfélagsins í þróunarverkefninu hafi ekki borist með formlegum hætti en þakkar góða kynningu.
Bókun meirihlutans: Meirihluti bæjarráðs telur að skýrt hafi komið fram í kynningu fulltrúa Vanir ehf. að óskað væri eftir þátttöku sveitarfélagsins í þróunarverkefninu.
Meirihlutinn þakkar góða kynningu og leggur áherslu á að stafræn þjónusta auðveldi íbúum að nálgast upplýsingar og eiga samskipti við sveitarfélagið. Verkefnið felur í sér áhugaverða möguleika til að bæta þjónustu og upplýsingagjöf til íbúa.
3.Stjórnsýslukæra v. framkvæmdaleyfis til Landsnets vegna Suðurnesjalínu.
2607026
Lagður fram úrskurður í kærumálum vegna útgáfu viðauka við framkvæmdaleyfi til Landsnets vegna Suðurnesjalínu 2 þar sem málunum var vísað frá.
Afgreiðsla bæjarráðs: Úrskurðurinn lagður fram til kynningar.
4.Iðndalur 7 L207399 og Iðndalur 11 L209950 - spilda á milli lóða
2609022
Lagt fram mál um landspildu milli lóða við Iðndal 7 og Iðndal 11. Umhverfis- og skipulagsnefnd vísaði málinu til bæjarstjórnar til ákvörðunar um ráðstöfun spildunnar. Bæjarstjórn tók málið fyrir á fundi sínum 6. október 2026 og vísaði því til bæjarráðs. Málið er nú lagt fyrir bæjarráð til umfjöllunar um næstu skref.
Afgreiðsla bæjarráðs: Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga til samninga við lóðarhafa Iðndals 7, L207399, og Iðndals 11, L209950, um kaup þeirra á landspildu sveitarfélagsins milli lóðanna. Miðað verði við að spildan skiptist milli lóðanna og sameinist þeim í samræmi við gildandi deiliskipulag. Við samningsgerð verði gætt jafnræðis og hagsmuna sveitarfélagsins.
5.Erindi frá Knattspyrnudeild Þróttar um kaup á mannvirkjum félagsins
2607024
Tekið að nýju fyrir erindi, dagsett 26. júní 2026, frá stjórn knattspyrnudeildar Þróttar um kaup sveitarfélagsins á mannvirkjum af knattspyrnudeildinni auk verðmats löggilts fasteignasala á mannvirkjunum að fjárhæð 6 m.kr., dagsett 18. júní sl. Á fundi bæjarráðs þann 4. ágúst sl. var erindinu frestað og bæjarstjóra falið að afla frekari gagna.
Afgreiðsla bæjarráðs: Meirihluti bæjarráðs samþykkir að verða ekki við erindinu um kaup á mannvirkjunum að svo stöddu, miðað við fyrirliggjandi forsendur. Bæjarstjóra er falið að tilkynna stjórn knattspyrnudeildar og aðalstjórn Ungmennafélagsins Þróttar um niðurstöðuna. Um ábyrgð á viðhaldi og rekstri mannvirkjanna verði fjallað um við endurskoðun samninga sveitarfélagsins við félagið.
Bókun A-listans: Í ljósi þess að enginn íþróttastefna er til í sveitarfélaginu og enginn þjónustu- eða samstarfssamningur er í gildi milli sveitarfélagsins og UMFÞ eða knattspyrnudeildar þróttar (þeir runnu úr gildi 2025 og 2022), ætlar fulltrúi A-listans að sitja hjá við atkvæðagreiðslu þessa máls.
Engu að síður vill fulltrúi A-listans hvetja málsaðila til þess að setjast niður og móta stefnu í íþróttamálum og gera með sér samstarfssamning sveitarfélaginu og ungmennafélaginu til heilla.
Bókun meirihlutans: Meirihluti bæjarráðs ítrekar að endurnýjun samkomulags við Ungmennafélagið Þrótt er sjálfstætt verkefni og tengist ekki afgreiðslu þeirrar beiðni um kaup á mannvirkjum sem hér er til umfjöllunar.
Samtal er þegar hafið um endurnýjun samkomulags við félagið, auk þess sem unnið er að undirbúningi samkomulags við önnur félagasamtök. Við þá vinnu verði ábyrgð á rekstri og viðhaldi skýrð og metið hvort og með hvaða hætti sveitarfélagið geti stutt nauðsynlegt viðhald innan fjárhagsáætlunar. Jafnframt er íþrótta- og tómstundastefna í vinnslu og að henni er unnið þverfaglega, meðal annars með þátttöku fulltrúa minnihlutans.
Meirihlutinn leggur áherslu á áframhaldandi gott samstarf við Ungmennafélagið Þrótt og önnur félagasamtök um öflugt íþrótta- og tómstundastarf og bætta aðstöðu fyrir íbúa.
Óskað eftir heimild bæjarráðs til að framlengja leigusamning við GYM heilsu á meðan unnið er að auglýsingu á útleigu húsnæðis fyrir líkamsrækt í íþróttamiðstöð sveitarfélagsins.
Afgreiðsla bæjarráðs: Bæjarráð veitir bæjarstjóra heimild til að semja við GYM heilsu ehf. um framlengingu leigusamnings til eins árs. Bæjarstjóra er jafnframt falið að ljúka valkostagreiningu um framtíðarfyrirkomulag líkamsræktarinnar og leggja niðurstöður hennar fyrir bæjarráð. Endanlegur viðauki við leigusamninginn verði lagður fyrir bæjarráð til samþykktar.
Birting fundargagna: Drög að viðauka við leigusamning GYM Heilsu ehf. verður ekki birtur með fundargerðinni, með vísan til 1. tölul. 1. mgr. 7. gr. reglna um ritun fundargerða og birtingu fundargagna hjá Sveitarfélaginu Vogum.
7.Stöðumat á flutningi frístundar úr íþróttamiðstöð niður í skóla
2610008
Tillaga A-listans um stöðumat á flutningi frístundar úr íþróttamiðstöð niður í skóla.
Afgreiðsla bæjarráðs: Tillaga A-listans borin upp til atkvæðagreiðslu. Tillagan er felld með tveimur atkvæðum meirihlutans gegn einu atkvæði A-listans.
Bókun bæjarráðs: Meirihluti bæjarráðs áréttar að eftirfylgni vegna flutnings frístundar er þegar í fullum gangi. Reglulegir fundir eru haldnir með formanni fræðslunefndar, skólastjórnendum og starfsmanni fjölskyldusviðs og unnið er að úrbótum eftir því sem tilefni gefst til.
Meirihlutinn leggur áherslu á að kraftarnir nýtist til að fylgja innleiðingunni eftir og bæta starfið í þágu barnanna. Með hliðsjón af þeirri vinnu sem þegar stendur yfir telur meirihlutinn ekki þörf á sérstöku stöðumati á flutningnum. Ábyrgð meirihlutans felst í að tryggja að brugðist sé við því sem betur má fara og að líðan barna og gæði frístundastarfsins séu ávallt í fyrirrúmi
10.Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026
2602002
Lögð fram fundargerð 1002. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga sem haldinn var 11.09.2026 og fundargerð 1003. fundar sem haldinn var 23.09.2026
Afgreiðsla bæjarráðs: Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.
Skýrslan lögð fram til kynningar. Bæjarráð þakkar Eyþóri Rúnari Þórarinssyni fyrir kynninguna.
Birting fundargagna:
Skýrsla Deloitte um raunkostnað sjúkraflutninga á Suðurnesjum verður ekki birt með fundargerðinni, með vísan til 7. tölul. 1. mgr. 7. gr. reglna um ritun fundargerða og birtingu fundargagna hjá Sveitarfélaginu Vogum.