457. fundur
29. september 2026 kl. 17:00 - 18:27 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
Birgir Örn Ólafssonformaður
Kristinn Björgvinssonáheyrnarfulltrúi
Gunnar Júlíus Helgasonaðalmaður
Guðmann Rúnar Lúðvíkssonaðalmaður
Starfsmenn
Ásta FriðriksdóttirSviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Björg Ásta ÞórðardóttirBæjarstjóri
Fundargerð ritaði:Ásta Friðriksdóttirsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.Bókun heilbrigðisnefndar um verkefni HES sem verða eftir á sveitarstjórnarstigi
2609034
Bókun heilbrigðisnefndar um verkefni HES sem verða eftir á sveitarstjórnarstigi
Afgreiðsla bæjarráðs: Lagt fram erindi Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja, dags. 16. september 2026, með bókun 327. fundar heilbrigðisnefndar frá 15. september 2026 og greiningu á framtíðarfyrirkomulagi verkefna sem verða eftir á sveitarstjórnarstigi. Í bókuninni er lagt til að aðildarsveitarfélögin taki stofnun byggðasamlags til vandlegrar skoðunar og skipi starfshóp sem skili fyrstu sameiginlegu stöðuskýrslu og aðgerðaáætlun í október 2026.
Bókun bæjarráðs: Bæjarráð tekur undir mikilvægi þess að tryggja samfellda þjónustu við íbúa og fyrirtæki við fyrirhugaðar breytingar á fyrirkomulagi heilbrigðiseftirlits um næstu áramót. Bæjarráð felur bæjarstjóra að eiga samráð við aðildarsveitarfélög HES um skipan sameiginlegs starfshóps. Hópurinn meti framtíðarfyrirkomulag verkefnanna, þar á meðal stofnun byggðasamlags, ásamt kostnaði, ábyrgðarskiptingu og verkefnum vegna rekstrarskila. Stöðuskýrsla sem varðar Sveitarfélagið Voga sérstaklega, ásamt tillögum að aðgerðum fyrir sveitarfélagið, verði síðan lögð fyrir bæjarráð.
2.Ráðning sviðsstjóra fjölskyldusviðs
2609051
Lagt fram minnisblað um ráðningu sviðsstjóra fjölskyldusviðs.
Afgreiðsla bæjarráðs: Lagt fram minnisblað um ráðningu sviðsstjóra fjölskyldusviðs. Með vísan til fyrirliggjandi greinargerðar um ráðningarferlið og heildarmats á hæfni umsækjenda leggur bæjarstjóri til að Hjördís Kristinsdóttir verði ráðin í starfið.
Bókun bæjarráðs: Bæjarráð samþykkir tillögu bæjarstjóra um að ráða Hjördísi Kristinsdóttur í starf sviðsstjóra fjölskyldusviðs Sveitarfélagsins Voga. Bæjarstjóra er falið að ganga frá ráðningarsamningi við Hjördísi og semja um upphafsdag starfs.
3.Ungmennaráð Voga 2026
2601034
Lagt fram erindisbréf ungmennaráðs fyrir starfsárið 2026 - 2027.
Afgreiðsla bæjarráðs: Málinu er frestað og vísað aftur í frístunda- og menningarnefnd.
4.Áskorun frá Starfsgreinasambandi Íslands og 18 aðildarfélögum þess um þjóðarsátt um verðstöðugleika.
2609035
SGS skorar á sveitarfélög landsins að taka þátt í sameiginlegu átaki til að ná niður verðbólgu og vöxtum og stuðla þannig að því að kjarasamningar haldi.
Afgreiðsla bæjarráðs: Lögð fram áskorun Starfsgreinasambands Íslands og 18 aðildarfélaga þess, dags. 16. september 2026, um þjóðarsátt um verðstöðugleika. Óskað er eftir skriflegu svari um hvort sveitarfélagið sé reiðubúið að taka þátt og sjá til þess að gjaldskrár sveitarfélagsins og fyrirtækja í eigu þess hækki ekki um meira en 2,5% það sem eftir lifir gildandi kjarasamninga.
Bókun bæjarráðs: Bæjarráð tekur undir ályktun landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 25. september 2026 um ábyrgð sveitarfélaga í baráttunni gegn verðbólgu. Við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027 verði stefnt að því að hækkanir almennra gjaldskráa verði að hámarki 2,5%, með hliðsjón af fjárhagsstöðu sveitarfélagsins og því að tryggja lögbundna þjónustu. Bæjarráð leggur áherslu á að ríkið og stofnanir þess takmarki einnig gjaldskrárhækkanir og að verkefnum sem sveitarfélögum er falið að sinna fylgi fullnægjandi fjármögnun. Bæjarstjóra er falið að svara erindinu í samræmi við bókun og umræður á fundinum.
5.Erindi til Sveitarfélagsins Voga v. komandi kjarasamninga
2609029
Lagt fram erindi frá VR, LÍV og Fagfélögum vegna komandi kjarasamninga
Afgreiðsla bæjarráðs: Lagt fram erindi frá VR, LÍV og Fagfélögum, dags. 14. september 2026, vegna komandi kjarasamninga. Óskað er eftir afstöðu sveitarfélagsins til endurskoðunar gjaldskrárhækkana og lækkunar gjalda sem snerta barnafjölskyldur og viðkvæma hópa, aukins lóðaframboðs og hraðari húsnæðisuppbyggingar, brúunnar bilsins milli fæðingarorlofs og leikskóla og annarra aðgerða til að draga úr kostnaðarhækkunum heimila. Óskað er eftir svari eins fljótt og verða má.
Bókun bæjarráðs: Bæjarráð vísar til afstöðu sinnar undir 4. lið fundargerðarinnar um markmið við gjaldskrárgerð fyrir árið 2027. Bæjarstjóra er falið að taka saman yfirlit yfir aðgerðir sem sveitarfélagið hefur þegar ráðist í eða eru fyrirhugaðar vegna gjaldskráa, lóðaframboðs og húsnæðisuppbyggingar, brúunnar bilsins milli fæðingarorlofs og leikskóla og annarra leiða til að draga úr kostnaðarhækkunum heimila. Jafnframt verði metið svigrúm til frekari aðgerða, með sérstakri áherslu á barnafjölskyldur og viðkvæma hópa. Bæjarstjóra er falið að svara erindinu í samræmi við bókun og umræður á fundinum.
6.Mál til umsagnar frá nefndasviði Alþingis 2026
2601042
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum o.fl. (markmið, nýting eigna, framkvæmdaumsjón), 4. mál Frestur til að senda inn umsögn er til og með 1. október nk.
Afgreiðsla bæjarráðs: Lagt fram .
7.Mál til umsagnar frá nefndasviði Alþingis 2026
2601042
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 5. mál, Sveitarstjórnarlög. Frestur til að senda inn umsögn er til og með 1. október nk.
Afgreiðsla bæjarráðs: Lagt fram.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að yfirfara málið með hliðsjón af hagsmunum sveitarfélagsins og senda inn umsögn um málið fyrir lok umsagnarfrests 1. október 2026.
8.Endurskoðun stefnumótandi áætlunar í málefnum sveitarfélaga
2607010
Lögð fram drög að svari Sveitarfélagsins Voga við spurningarlista Innviðaráðuneytisins vegna vinnu við stefnumörkun í málefnum sveitarfélaga.
Afgreiðsla bæjarráðs: Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög að svari Sveitarfélagsins Voga við spurningarlista Innviðaráðuneytisins og felur bæjarstjóra að senda svarið til ráðuneytisins að teknu tilliti til umræðna á fundinum.
9.Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2026
2601044
Lögð fram fundargerð 485. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands sem haldinn var 07.09.2026
Afgreiðsla bæjarráðs: Fundargerðin lögð fram til kynningar.
10.Fundargerðir Öldungaráðs Suðurnesjabæjar og Sveitarfélagsins Voga 2026
2601041
Lögð fram fundargerð 24. fundar Öldungaráðs Suðurnesjabæjar og Sveitarfélagsins Voga sem haldinn var 06.09.2026 ásamt ýmsum fylgiskjölum.
Afgreiðsla bæjarráðs: Fundargerð og fylgiskjöl lögð fram til kynningar.
Lagt fram erindi Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja, dags. 16. september 2026, með bókun 327. fundar heilbrigðisnefndar frá 15. september 2026 og greiningu á framtíðarfyrirkomulagi verkefna sem verða eftir á sveitarstjórnarstigi. Í bókuninni er lagt til að aðildarsveitarfélögin taki stofnun byggðasamlags til vandlegrar skoðunar og skipi starfshóp sem skili fyrstu sameiginlegu stöðuskýrslu og aðgerðaáætlun í október 2026.
Bókun bæjarráðs:
Bæjarráð tekur undir mikilvægi þess að tryggja samfellda þjónustu við íbúa og fyrirtæki við fyrirhugaðar breytingar á fyrirkomulagi heilbrigðiseftirlits um næstu áramót. Bæjarráð felur bæjarstjóra að eiga samráð við aðildarsveitarfélög HES um skipan sameiginlegs starfshóps. Hópurinn meti framtíðarfyrirkomulag verkefnanna, þar á meðal stofnun byggðasamlags, ásamt kostnaði, ábyrgðarskiptingu og verkefnum vegna rekstrarskila. Stöðuskýrsla sem varðar Sveitarfélagið Voga sérstaklega, ásamt tillögum að aðgerðum fyrir sveitarfélagið, verði síðan lögð fyrir bæjarráð.