Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga

456. fundur 16. september 2026 kl. 17:00 - 19:48 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
  • Birgir Örn Ólafsson formaður
  • Kristinn Björgvinsson áheyrnarfulltrúi
  • Gunnar Júlíus Helgason aðalmaður
  • Guðmann Rúnar Lúðvíksson aðalmaður
Starfsmenn
  • Hanna Lísa Hafsteinsdóttir Sérfræðingur stjórnsýslu og verkefnastjóri menninga
  • Björg Ásta Þórðardóttir Bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Hanna Lísa Hafsteinsdóttir Sérfræðingur stjórnsýslu
Dagskrá
Formaður bæjarráðs leitaði afbrigða við að taka tillögu A-listans, umsókn Sveitarfélagsins Voga um FIFA arena knattspyrnuvöll, á dagskrá sem 8. mál. Tillagan samþykkt samhljóða.

Lagt til að mál 5 og 7 séu tekin fyrir í upphafi fundar, tillagan samþykkt samhljóða.

1.Áhyggjur af breytingum á skipulagi og fjármögnun fjarprófaþjónustu á Suðurnesjum

2609007

Lagt fram erindi frá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum og Þekkingarsetri Suðurnesja
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð tekur undir erindi Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum og Þekkingarseturs Suðurnesja og samþykkir eftirfarandi bókun. Bæjarstjóra er falið að koma bókuninni á framfæri við menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið.

Bókun bæjarráðs:
Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga tekur undir áhyggjur Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum og Þekkingarseturs Suðurnesja. Aðgengi að námi í heimabyggð skiptir miklu fyrir einstaklinga, atvinnulíf og áframhaldandi uppbyggingu samfélagsins á Suðurnesjum.

Bæjarráð telur mikilvægt að breytingar á fyrirkomulagi fjarprófaþjónustu byggist á raunverulegri þjónustuþörf, umfangi verkefnisins og sanngjarnri fjármögnun. Jafnframt verður að tryggja raunverulegt samráð við þá aðila sem þjónustunni sinna og þá sem reiða sig á hana.

Bæjarráð hvetur ráðherra til að endurskoða fyrirhugað fyrirkomulag með þessi sjónarmið að leiðarljósi.

2.Stækkun Heilsuleikskólans Suðurvalla

2605007

Lögð fram útboðsgögn, kostnaðaráætlun og tímalína fyrir framkvæmd verksins.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð samþykkir samhljóða að unnið verði áfram að stækkun Heilsuleikskólans Suðurvalla á grundvelli fyrirliggjandi útboðsgagna, kostnaðaráætlunar og tímalínu.

Bæjarstjóra er falið, í samráði við starfshóp um stækkun leikskólans og ráðgjafa verkefnisins, að fullvinna og ganga frá útboðsgögnum og hefja útboðsferli vegna framkvæmdarinnar.

3.Reglur um ritun fundargerða og birtingu fundargagna

2607014

Lagðar eru fram reglur um ritun fundargerða og birtingu fundargagna.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð samþykkir samhljóða reglur um ritun fundargerða og birtingu fundargagna og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bókun bæjarráðs:
Bæjarráð fagnar því að með reglunum séu tekin skýr skref í átt að auknu gagnsæi og samræmdari vinnubrögðum við meðferð og birtingu fundargagna sveitarfélagsins.

4.Áminning um skipulag byggðar á þekktum hættusvæðum

2608089

Lagt fram bréf frá Náttúruhamfaratryggingu Íslands dags. 27.08.2026 þar sem minnt er á áhrif 16. gr. laga nr. 55/1992 um þegar byggt er á svæðum þar sem náttúruvá er fyrirfram þekkt. Einnig fylgir bréf frá NTÍ dags. 10.09.2025
Afgreiðsla bæjarráðs:
Erindið er lagt fram til kynningar. Bæjarráð vísar erindinu til kynningar hjá umhverfis- og skipulagsnefnd og til eftirfylgni hjá umhverfis- og skipulagssviði.

5.Rekstraryfirlit 2026

2602053

Rekstrarniðurstaða fyrir tímabilið janúar til júní 2026 og janúar til júlí 2026 lögð fram til kynningar.

Lögð fram minnisblöð frá sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs með rekstrarniðurstöðu fyrstu sex og sjö mánuði ársins. Sviðsstjóri mun gera grein fyrir efnistökum þess á fundinum og svara spurningum.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Rekstraryfirlit og minnisblöð sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs lögð fram til kynningar.

6.Fyrirspurn - Hopp hjól í Vogum

2604012

Lagt fram samkomulag um rekstur Hopp - rafhlaupahjóla í Sveitarfélaginu Vogum við Hopp Reykjanesbæ ásamt umsögn Vegagerðarinnar um staðsetningu Hopp-stoppistöðva við Reykjanesbraut.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð samþykkir samhljóða að gengið verði frá samkomulagi við Hopp Reykjanesbæ um rekstur rafhlaupahjóla í Sveitarfélaginu Vogum, með þeim breytingum sem ræddar voru á fundinum og að teknu tilliti til umsagnar Vegagerðarinnar.

Bæjarstjóra er falið að ganga frá samkomulaginu á þeim grundvelli og undirrita það fyrir hönd sveitarfélagsins.

Bókun bæjarráðs:
Bæjarráð fagnar því að með samkomulaginu bætist við nýr samgöngukostur í Sveitarfélaginu Vogum. Samkomulagið stuðlar að fjölbreyttari ferðamátum, bættum tengingum og auknu aðgengi fyrir íbúa og gesti sveitarfélagsins.

7.Fjárhagsáætlun 2027 -2030

2608036

Sviðsstóri fjármála- og stjórnsýslu leggur fram minnisblað um helstu forsendur í fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árin 2027-2030.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð samþykkir samhljóða fyrirliggjandi forsendur fjárhagsáætlunar Sveitarfélagsins Voga fyrir árin 2027-2030 sem grundvöll áframhaldandi fjárhagsáætlunarvinnu, með fyrirvara um þær breytingar sem kunna að verða nauðsynlegar við áframhaldandi vinnslu áætlunarinnar.

8.Tillaga A-listans um umsókn Sveitarfélagsins Voga um FIFA Arena-knattspyrnuvöll

2609033

Afgreiðsla bæjarráðs:

Bæjarráð tekur jákvætt í tillögu A-listans og samþykkir að Sveitarfélagið Vogar sæki um FIFA Arena-knattspyrnuvöll.

Bæjarráð tekur jafnframt fram að vegna þess skamma tíma sem gefist hefur til undirbúnings hefur málið ekki fengið hefðbundna málsmeðferð innan sveitarfélagsins og liggja því ekki fyrir allar þær forsendur sem almennt væri æskilegt að lægju fyrir áður en ákvörðun af þessu tagi er tekin.

Bæjarstjóra er falið að undirbúa og skila umsókn innan umsóknarfrests, með fyrirvara um endanlega afstöðu sveitarfélagsins til staðsetningar, fjármögnunar og annarra skuldbindinga sem kunna að fylgja verkefninu.

Afgreiðslan felur ekki í sér endanlega ákvörðun um staðsetningu vallar, fjárveitingu eða aðrar fjárhagslegar skuldbindingar sveitarfélagsins. Slík atriði komi eftir atvikum til sérstakrar afgreiðslu síðar og staðsetning verði jafnframt háð viðeigandi skipulagslegri meðferð.

9.Fundargerðir Farsældarráðs Suðurnesja 2025 og 2026

2609001

Lagðar fram fundargerðir 1. fundar Farsældarráðs Suðurnesja sem haldinn var 20.11.2025 og 2. fundar sem haldinn var 11.05.2026 ásamt ýmsum fylgiskjölum.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.

Bókun bæjarráðs:

Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga lýsir áhyggjum af því að fyrirhugað sé að fella niður framlag til innleiðingar farsældarlaganna. Framlagið hefur verið mikilvægur þáttur í innleiðingu farsældarlaganna og fyrir Sveitarfélagið Voga nam framlagið 5,0 m.kr. á árinu 2026.

Bæjarráð telur mikilvægt að tryggt verði áframhaldandi og fyrirsjáanlegt fjármagn til sveitarfélaga vegna þeirra verkefna og þess umframkostnaðar sem framkvæmd farsældarlaganna hefur í för með sér og hvetur til þess að fyrirhuguð niðurfelling framlagsins verði endurskoðuð.

10.Fundargerðir Almannavarna Suðurnesja utan Grindavíkur 2026

2602019

Lagðar fram fundargerðir nr. 78. og 79 frá Almannavörnum Suðurnesja utan Grindavíkur.
Fyrri fundurinn var haldinn 22.05.2026 og sá seinni þann 24.08.2026
Afgreiðsla bæjarráðs:
Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.

Bókun bæjarráðs:

Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga tekur undir bókun Almannavarnarnefndar Suðurnesja utan Grindavíkur um mikilvægi þess að staða almannavarnarfulltrúa á Suðurnesjum verði tryggð til framtíðar.

Á Suðurnesjum hefur mikið mætt á sveitarfélögunum og viðbragðsaðilum vegna viðvarandi almannavarnaástands síðustu ára. Reynslan af starfi almannavarnarfulltrúa hefur verið mjög góð og sýnt með skýrum hætti mikilvægi þess að fyrir hendi sé staðbundin þekking, samfella og öflug samhæfing viðbragða.

Bæjarráð telur því brýnt að staða almannavarnarfulltrúa verði tryggð til framtíðar og hvetur ríkið til að styðja sveitarfélögin á Suðurnesjum við að tryggja áframhaldandi starf á þessu sviði.

11.Fundargerðir fjölskyldu og velferðarráðs 2026

2601036

Lögð fram fundargerð 66. fundar Fjölskyldu- og velferðarráðs Suðurnesjabæjar og Sveitarfélagsins Voga ásamt nokkrum fylgiskjölum. Fundurinn var haldinn 20.08.2026
Afgreiðsla bæjarráðs:
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

12.Fundargerðir Brunavarna Suðurnesja 2026

2602055

Lögð fram fundargerð 103. fundar stjórnar Brunavarna Suðurnesja sem haldinn var 31.08.2026
Afgreiðsla bæjarráðs:
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

13.Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026

2602002

Lögð fram fundargerð 1001. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga sem haldinn var 28.08.2026.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

14.Fundargerðir Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum 2026

2602037

Lögð fram fundargerð 826. fundar Stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum sem haldinn var 09.09.2026.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

15.Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2026

2601044

Lögð fram fundargerð 484. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands sem haldinn var 19.08.2026
Afgreiðsla bæjarráðs:
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 19:48.

Getum við bætt efni síðunnar?