2608051
Lögð eru fram drög að samningi milli Barna- og fjölskyldustofu og Sveitarfélagsins Voga um fjármögnun sérhæfðrar þjónustu við börn með fjölþættar stuðningsþarfir sem búsett eru utan heimilis á árinu 2026. Jafnframt er lögð fram kostnaðaráætlun vegna þeirrar þjónustu sem samningurinn tekur til fyrir árið 2026.
Inn á fundinn undir þessum lið kemur Hilmar Jón Stefánsson, teymisstjóri barnaverndarþjónustu Suðurnesjabæjar, sviðsstjóri velferðarsviðs Suðurnesjabæjar, og gerir grein fyrir málinu.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög að samningi Barna- og fjölskyldustofu og Sveitarfélagsins Voga um fjármögnun sérhæfðrar þjónustu við börn með fjölþættar stuðningsþarfir ásamt kostnaðaráætlun fyrir árið 2026. Bæjarstjóra er falið að ganga frá samningnum fyrir hönd sveitarfélagsins.