Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga

454. fundur 04. ágúst 2026 kl. 17:00 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
  • Birgir Örn Ólafsson formaður
  • Kristinn Björgvinsson áheyrnarfulltrúi
  • Gunnar Júlíus Helgason aðalmaður
  • Guðmann Rúnar Lúðvíksson aðalmaður
Starfsmenn
  • Björg Ásta Þórðardóttir Bæjarstjóri
  • Ásta Friðriksdóttir Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Ásta Friðriksdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá

1.Rekstraryfirlit 2026

2602053

Rekstrarniðurstaða fyrir tímabilið janúar til maí 2026 lögð fram til kynningar.

Lagt fram minnisblað frá sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs með rekstrarniðurstöðu fyrstu fimm mánuði ársins. Sviðsstjóri mun gera grein fyrir efnistökum þess á fundinum og svara spurningum.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Rekstraryfirlit fyrir tímabilið janúar til maí 2026 lagt fram til kynningar.

2.Stækkun Heilsuleikskólans Suðurvalla

2605007

Lögð fram rýmisgreining VSS vegna fyrirhugaðrar stækkunar Heilsuleikskólans Suðurvalla sem byggist á greinargerð vinnuhóps um stækkun leikskólans og verður grunnur að fyrirhuguðu útboði.

Þá eru lögð fram tilboð í framkvæmd útboðsins og eftirlit með framkvæmdinni til afgreiðslu. Leitað var tilboða frá þremur aðilum, VSB ehf., Strending ehf. og VSS og Consensa sameiginlega.

Atli Geir Júlíusson, framkvæmdastjóri Verkfræðistofu Suðurnesja, situr fundinn í gegnum fjarfundarbúnað undir kynningu á rýmisgreiningu VSS.
Afgreiðsla bæjarráðs:

Rýmisgreining vegna stækkunar lögð fram til kynningar.

Bæjarráð samþykkir samhljóða sameiginlegt tilboð VSS og Consensa í gerð útboðsgagna, ráðgjöf og eftirlit með framkvæmdinni og felur bæjarstjóra að ganga frá samningi og vinna málið áfram.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að skipa starfshóp um stækkun Heilsuleikskólans Suðurvalla. Hópinn skipa fulltrúi leikskólans, starfsmaður umhverfis- og skipulagssviðs, formaður umhverfis- og skipulagsnefndar, formaður fræðslunefndar og einn fulltrúi A-listans í bæjarstjórn. A-listanum er falið að tilnefna sinn fulltrúa. Verkefnisstjórn og framkvæmd verði áfram á ábyrgð bæjarstjóra og stjórnsýslu sveitarfélagsins með aðkomu ráðgjafa verkefnisins.

3.Heiðarholt 1 - Viðauki við lóðarleigusamning

2606023

Lögð fram beiðni um framlengingu fokheldisákvæðis í lóðarleigusamningi Sveitarfélagsins Voga við Vana menn ehf. um Heiðarholt 1, til allt að 4. júní 2029 auk verk- og tímaáætlunar verksins. Þá eru lögð fram drög að viðauka við lóðarleigusamning auk minnisblaðs bæjarstjóra um málið.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Beiðni um framlengingu frests til fokheldis til 4. júní 2029 samþykkt samhljóða og fyrirliggjandi viðauki við lóðarleigusamning staðfestur.

Bókun bæjarráðs:
Bæjarráð leggur áherslu á að styðja við áframhaldandi uppbyggingu og atvinnustarfsemi í sveitarfélaginu og að Sveitarfélagið Vogar sé góður samstarfsaðili fyrirtækja og frumkvöðla. Þar sem framkvæmdir eru hafnar, umtalsvert fjármagn hefur þegar verið lagt í verkefnið og fyrir liggja málefnalegar skýringar vegna breyttra markaðs- og fjármögnunaraðstæðna telur bæjarráð rétt að veita hæfilegt en skýrt afmarkað viðbótarsvigrúm til að ljúka framkvæmdinni. Uppbyggingarskylda lóðarhafa stendur eftir sem áður óbreytt.

4.Beiðni frá Knattspyrnudeild Þróttar um kaup á mannvirkjum félagsins

2607024

Lagt fram erindi, dagsett 26. júní 2026, frá stjórn knattspyrnudeildar Þróttar um kaup sveitarfélagsins á mannvirkjum af knattspyrnudeildinni auk verðmats löggilts fasteignasala á mannvirkjunum að fjárhæð 6 m.kr., dagsett 18. júní sl.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Afgreiðslu erindisins er frestað og bæjarstjóra er falið að afla frekari gagna.

5.Fyrirspurn - Hopp hjól í Vogum

2604012

Lögð fram fyrirspurn eiganda Hopp Reykjanesbær ehf. um að koma með Hopp hjól í Sveitarfélagið Voga.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur bæjarstjóra að afla gagna og vinna málið áfram.

6.Sveitarfélagið Vogar og almyrkvinn 2026

2607025

Kynning á stöðu undirbúnings fyrir Almyrkva 12. ágúst 2026.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Minnisblað verkefnastjóra vegna almyrkva og framkvæmdaáætlun sveitarfélagsins lagt fram. Bæjarstóri kynnti verkefnið.

Bókun bæjarráðs:
Bæjarráð þakkar þeim sem komið hafa að undirbúningnum og leggur áherslu á öryggi íbúa og gesta sem og góða samhæfingu við viðbragðs- og samstarfsaðila. Bæjarráð hvetur íbúa til að njóta upplifunarinnar.

7.Fjölskyldudagar 2026

2602031

Kynning á stöðu undirbúnings fyrir 30 ára afmælisár fjölskyldudaga Sveitarfélagsins Voga.

Hanna Lísa Hafsteinsdóttir, verkefnastjóri á fjármála- og stjórnsýslusviði, sat fundinn undir þessum lið.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Minnisblað lagt fram.

Bókun bæjarráðs:
Bæjarráð fagnar þeirri fjölbreyttu dagskrá sem unnið er að og þakkar starfsfólki, félagasamtökum, fyrirtækjum og öðrum þátttakendum fyrir mikilvægt framlag til hátíðarinnar og að gera 30 ára afmælishátíðina enn veglegri.

8.Stöðumat og umbætur í starfsmannamálum Sveitarfélagsins Voga

2607016

Lögð fram að nýju tillaga minnihlutans um að leggja fyrir bæjarráð og/eða bæjarstjórn heildstætt stöðumat á starfsmannamálum sveitarfélagsins. Málinu var frestað á síðasta fundi bæjarráðs.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Afgreiðslu málsins er frestað til næsta fundar.

9.Umhverfis- og skipulagsnefnd Sveitarfélagsins Voga - 1

2607002F

Afgreiðsla bæjarráðs:
Lögð fram.

Fundi slitið.

Getum við bætt efni síðunnar?