Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga

453. fundur 14. júlí 2026 kl. 17:00 - 22:00 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
  • Birgir Örn Ólafsson formaður
  • Kristinn Björgvinsson áheyrnarfulltrúi
  • Gunnar Júlíus Helgason aðalmaður
  • Guðmann Rúnar Lúðvíksson aðalmaður
Starfsmenn
  • Ásta Friðriksdóttir Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Ásta Friðriksdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá

1.Skammtímadvöl í Heiðarholti

2606007

Lagt fram minnisblað, dagsett 10.05.2026, frá Guðrúnu Björgu Sigurðardóttur sviðsstjóra velferðasviðs Suðurnesjabæjar.
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs, sat fundinn undir þessum lið ásamt Guðrúnu Björgu Sigurðardóttur, sviðsstjóra velferðarsviðs Suðurnesjabæjar. Hólmfríður og Guðrún Björg gerðu grein fyrir málinu. Bæjarráð þakkar Hólmfríði og Guðrúnu fyrir góða yfirferð.

Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð tekur undir það mat að brýnt sé að auka þjónustu skammtímadvalar við börn og ungmenni með fötlun og bregðast við þeim biðlista sem myndast hefur eftir þjónustunni.

Bæjarráð samþykkir þátttöku Sveitarfélagsins Voga í auknum rekstri skammtímadvalar í Skerjaborg, í samræmi við framlagt minnisblað. Bæjarráð felur bæjarstjóra að leggja fram viðauka við fjárhagsáætlun vegna þátttöku sveitarfélagsins þegar endanlegt kostnaðarmat og kostnaðarskipting liggja fyrir.

2.Stækkun Heilsuleikskólan Suðurvalla

2605007

Lagt fram minnisblað og tillaga vinnuhóps um stækkun Heilsuleikskólans Suðurvalla.
Atli Geir Júlíusson, verkefnastjóri og ráðgjafi hjá Verkfræðistofu Suðurnesja, og Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs, sátu fundinn undir þessum lið og gerðu grein fyrir vinnu vinnuhópsins og framlagðri tillögu. Bæjarráð þakkar Atla Geir og Hólmfríði fyrir góða yfirferð og vinnuhópnum fyrir góð störf.

Afgreiðsla bæjarráðs:
Tillaga vinnuhóps um stækkun Heilsuleikskólans Suðurvalla er samþykkt með tveimur atkvæðum meirihlutans en minnihlutinn situr hjá.

Bókun minnihluta:
Þar sem greinargerð vinnuhóps um stækkun Suðurvalla barst minnihlutanum ekki fyrr en sólarhring fyrir bæjarráðsfund er minnihlutinn ekki tilbúinn að greiða tillögunni atkvæði. Minnihlutinn telur nauðsynlegt að rýna vel í tillöguna, leita álits og svara við þeim spurningum sem er ósvarað svo hægt sé að taka upplýsta ákvörðun.

3.Viðaukar 2026

2604032

Lagður fram viðauki nr. 2 sem snýr að stækkun Heilsuleikskólans Suðurvalla.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt er til að afgreiðslu málsins verði frestað. Samþykkt samhljóða.

4.Aðgerðir vegna stöðu í leikskólamálum

2607015

Lagt fram minnisblað bæjarstjóra um aðgerðir vegna stöðu í leikskólamálum.
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs, sat fundinn undir þessum lið. Bæjarstjóri gerði grein fyrir framlögðum tillögum minnisblaðsins. Bæjarráð þakkar fyrir góða yfirferð.

Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð samþykkir þær tillögur að aðgerðum til stuðnings barnafjölskyldum sem fram koma í minnisblaðinu og felur bæjarstjóra að vinna nánari útfærslu þeirra, ásamt endanlegu kostnaðarmati og tillögu um fjármögnun.

Útfærðar tillögur verði lagðar fyrir bæjarráð til afgreiðslu í ágúst 2026, með það að markmiði að breytingar á heimgreiðslum og niðurgreiðslum vegna barna 18 mánaða og eldri hjá dagforeldrum taki gildi 1. september 2026.

Samþykkt samhljóða

5.Tillaga vegna stöðu leikskólamála í sveitarfélaginu

2607017

Lögð fram tillaga minnihlutans vegna þeirrar stöðu sem komin er upp í leikskólamálum.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram.

Bókun minnihluta:
A-listinn dregur tillögu sína tilbaka þar sem hún rúmaðist innan dagskrárliðar nr. 2 og 4.

6.Ráðning sviðsstjóra

2607013

Lagt fram minnisblað bæjarstjóra vegna ráðningu sviðsstjóra á umhverfis- og skipulagssviði og fjölskyldusviði.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð staðfestir ráðningarferli vegna stöðu sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs og samning við Hagvang um umsjón með ráðningarferlinu á grundvelli fyrirliggjandi tilboðs.

Bæjarráð veitir bæjarstjóra jafnframt umboð til að hefja ráðningarferli vegna stöðu sviðsstjóra fjölskyldusviðs og ganga til samninga við Hagvang um umsjón með ráðningarferlinu á grundvelli sama tilboðs og þeirra kjara og forsendna sem þar koma fram.

Samþykkt samhljóða.

7.Undirskriftalisti v. beiðni um lagfæringu á bilaðri dælu í sundlaug.

2607009

Lagður fram undirskriftarlisti frá íbúum vegna bilaðrar dælu í heita pottinum í sundlaug.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð þakkar fyrir framkomið erindi og undirskriftalista og leggur áherslu á að búnaður sundlaugarinnar sé í lagi.

Upplýst er að málið sé komið í farveg og umhverfis- og skipulagssviði falið að klára verkið.

8.Stöðumat og umbætur í starfsmannamálum Sveitarfélagsins Voga

2607016

Lögð fram tillaga minnihlutans um að leggja fyrir bæjarráð og/eða bæjarstjórn heildstætt stöðumat á starfsmannamálum sveitarfélagsins.
Afgreiðsla bæjarráðs:

Dagskrárlið frestað til næsta fundar.

Samþykkt samhljóða.


9.Ársreikningur Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum vegna ársins 2025

2606029

Lagður fram til kynningar ársreikningur SSKS vegna ársins 2025
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram.

10.Erindi frá Landssambandi eldri borgara

2606031

Lagt fram erindi frá Landssambandi eldri borgara, annars vegar um skipan í öldungarráð og hins vegar kröfugerð sambandsins vegna kosninga 2026.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram.

11.Ársskýrsla og ársreikningur Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum vegna ársins 2025

2607012

Lagður fram ársreikningur og ársskýrsla MSS vegna ársins 2025.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Ársskýrsla og ársreikningur Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum vegna ársins 2025 eru lögð fram til kynningar.

Bókun bæjarráðs:
Bæjarráð fagnar því fjölbreytta og mikilvæga starfi sem unnið er á vegum MSS og framlagi stofnunarinnar til fræðslu, ráðgjafar og aukinna tækifæra fyrir íbúa á Suðurnesjum.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að kanna, í samtali við forsvarsmenn MSS, hvort tækifæri séu til aukins samstarfs og til að færa afmarkaða þjónustu og fræðslu nær íbúum Sveitarfélagsins Voga.

12.Endurskoðun stefnumótandi áætlunar í málefnum sveitarfélaga

2607010

Lagt fram erindi og spurningalisti frá innviðaráðuneyti um endurskoðun stefnumótandi áætlunar í málefnum sveitarfélaga þar sem fyrsta skrefið er gerð grænbókar um málefnið. Óskað er eftir því að sveitarfélögin veiti upplýsingar inn í þessa vinnu og svari meðfylgjandi spurningum fyrir 21. september nk.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram.

Bókun bæjarráðs:
Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirbúa drög að svörum Sveitarfélagsins Voga við spurningalista innviðaráðuneytisins vegna endurskoðunar stefnumótandi áætlunar í málefnum sveitarfélaga.

Drögin verði lögð fyrir bæjarráð til afgreiðslu áður en svarfrestur rennur út 21. september 2026.

13.Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2026

2601044

Lagðar fram fundargerðir 482. og 483. funda stjórnar Hafnasambands Íslands sem haldnir voru 13.04.2026 og 29.05.2026.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram.

14.Fundargerðir Brunavarna Suðurnesja 2026

2602055

Lögð fram fundargerð 102. fundar stjórnar Brunavarna Suðurnesja sem haldinn var 12.06.2026
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram.

15.Fundargerðir Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum 2026

2602007

Lagðar fram fundargerðir 89., 90. og 91. funda stjórnar Samtaka á köldum svæðum sem haldnir voru 18.02.2026, 18.03.2026 og 15.06.2026
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram.

16.Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja 2026

2602016

Lögð fram fundargerð 325. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurnesja sem haldinn var 07.07.2026.

Einnig fylgir viðauki 1 við fundargerð 320. fundar
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram.

Fundi slitið - kl. 22:00.

Getum við bætt efni síðunnar?