Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga

452. fundur 23. júní 2026 kl. 17:00 - 20:13 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
  • Birgir Örn Ólafsson formaður
  • Kristinn Björgvinsson áheyrnarfulltrúi
  • Gunnar Júlíus Helgason aðalmaður
  • Guðmann Rúnar Lúðvíksson aðalmaður
Starfsmenn
  • Björg Ásta Þórðardóttir Bæjarstjóri
  • Hanna Lísa Hafsteinsdóttir Sérfræðingur stjórnsýslu og verkefnastjóri menninga
Fundargerð ritaði: Hanna Lísa Hafsteinsdóttir Sérfræðingur stjórnsýslu
Dagskrá
Í upphafi fundar leitaði formaður afbrigða um að taka inn mál nr. 18, Samantekt ums stöðu HES, á dagskrá. Samþykkt samhljóða með 4 atkvæðum.

1.Boð um umsögn v. áforma um frumvarp til laga um breytingu á hafnarlögum

2605038

Lagt fram boð um umsögn frá Innviðaráðuneytinu v. áforma um frumvarp til laga um breytingu á hafnarlögum (gjaldaákvæði hafnarlaga). Umsagnarfrestur er t.o.m. 19.6.2026.
Bæjarráð tekur undir mikilvægi þess að gjaldaákvæði hafnalaga verði endurskoðuð með það að markmiði að lagaumhverfi um gjaldtöku hafna verði skýrt, gagnsætt og raunhæft. Skýr lagaheimild til gjaldtöku er mikilvæg forsenda þess að hafnir geti staðið undir rekstri, viðhaldi, endurnýjun og nauðsynlegri uppbyggingu hafnarmannvirkja.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að fylgjast með framgangi málsins og leggja mat á möguleg áhrif fyrir Sveitarfélagið Voga þegar drög að frumvarpi liggja fyrir.

2.Staða húsnæðisuppbyggingar í Sveitarfélaginu Vogum

2605040

Lagt fram yfirlit Húsnæðis- og mannvirkjastofnunnar vegna stöðu húsnæðisuppbyggingar í sveitarfélaginu.
Samkvæmt samantekt HMS hefur íbúðauppbygging í sveitarfélaginu á árunum 2023-2025 verið meiri en metin ný íbúðaþörf á sama tímabili og tilgreindar byggingarhæfar lóðir í húsnæðisáætlun sveitarfélagsins eru taldar nægja til að mæta áætlaðri íbúðaþörf næstu ára.

Bæjarráð leggur áherslu á að áframhaldandi húsnæðisuppbygging í sveitarfélaginu verði metin í samhengi við skipulag, innviði, grunnþjónustu og fjárhagslega getu sveitarfélagsins. Bæjarráð felur bæjarstjóra að fylgja málinu eftir í tengslum við fyrirhugað samtal HMS við sveitarfélagið um húsnæðis- og skipulagsmál.

3.Kosning í fulltrúaráð EBÍ ásamt nýjum samþykktum fyrir Eignarhaldsfélagið

2606004

Lagt fram bréf frá EBÍ v. kosninga í fulltrúaráð ásamt nýjum samþykktum fyrir Eignarhaldsfélagið.
Bréf EBÍ vegna kosninga í fulltrúaráð ásamt nýjum samþykktum EBÍ lagt fram. Kosning í fulltrúaráð EBÍ fór fram á 247. fundi bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Voga þann 11. júní 2026.

4.Tilnefning fulltrúa FEBS í Öldungaráð

2606016

Lagt fram erindi frá Félagi eldri borgara á Suðurnesjum er varðar tilnefningu fulltrúa í Öldungaráð Suðurnesjabæjar og Voga.
Bæjarráð samþykkir að fresta afgreiðslu málsins. Bæjarstjóra er falið að eiga samtal við Suðurnesjabæ, Félag eldri borgara á Suðurnesjum og Félag eldri borgara í Vogum um tilnefningar í ráðið, með það að markmiði að tilnefningar endurspegli með skýrum hætti stöðu félaga eldri borgara á þjónustusvæði ráðsins.

5.Heiðarland Vogajarða

2105028

Lagt fram erindi frá Íslenskum fasteignum um lok viljayfirlýsingar vegna Heiðarlands Voga.
Í erindinu kemur fram að viljayfirlýsing um gerð skipulags og lóðarleigusamnings vegna lóða undir verslunar- og þjónustukjarna í Heiðarlandi Vogajarða, sem undirrituð var 11. febrúar 2025, hafi runnið út 1. júní 2026. Jafnframt kemur fram að Íslenskar fasteignir óski ekki eftir framlengingu viljayfirlýsingarinnar.

Bæjarráð tekur erindið til skoðunar og leggur áherslu á að skoða framtíðarþróun svæðisins í samhengi við áherslur sveitarfélagsins.

6.Ársreikningur 2025-Keilir miðstöð vísinda

2606008

Lögð fram ársskýrsla og ársreikningur Keilis, miðstöðvar vísinda, fræða og atvinnulífs.
Lagt fram.

7.Samantekt um stöðu HES

2606030

Lagt fram minnisblað, viðauki og kynning um stöðu mála og áherslur í rekstri HES til ársloka 2026 frá Ásmundi E. Þorskellsyni, framkvæmdastjóra HES.
Bæjarráð vísar í bókun bæjarstjórnar á fundi nr. 242 sem haldinn var 25. febrúar 2026. Bæjarráð lýsir yfir vonbrigðum með undirbúning og framkvæmd á þeim breytingum sem nú hafa verið lögfestar á mikilvægum eftirlitsverkefnum sem varða sveitarfélagið, íbúa þess og atvinnulíf. Bæjarráð telur verulegt áhyggjuefni að svo umfangsmiklar kerfisbreytingar komi til framkvæmda með svo skömmum fyrirvara og raun ber vitni.

Bæjarráð tekur málið til umfjöllunar og leggur áherslu á að tryggja þurfi lögbundna þjónustu til ársloka, örugga yfirfærslu verkefna og gagna, skýra upplýsingagjöf til starfsfólks og vandað fjárhagslegt uppgjör vegna breytinganna.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram í samráði við Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja og aðildarsveitarfélögin, þar á meðal með það að markmiði að kortleggja hvaða verkefni verða áfram hjá sveitarfélögunum eftir 1. janúar 2027 og tryggja óslitna framkvæmd opinberra eftirlitsverkefna. Jafnframt lýsir bæjarráð yfir vilja til samstarfs við önnur sveitarfélög um þau verkefni sem eftir standa.


8.Framkvæmdaleyfi Suðurnesjalína 2

2104113

Lagður fram dómur frá Hæstarétti dags. 27. maí 2026 og erindi Landsnets til sveitarfélagsins í kjölfar þess, dags. 2. júní 2026.
Lagt fram bréf lögmanns Landsnets hf., dags. 2. júní 2026, um staðfestingu á eignarnámi og viðauka við framkvæmdaleyfi vegna Suðurnesjalínu 2.

Byggingarfulltrúa falið að gefa út viðauka við framkvæmdaleyfi Suðurnesjalínu 2 þegar staðfesting á umráðatöku hinna eignarnumdu réttinda liggur fyrir af hálfu Landsnets hf.

9.Færanlegar kennslustofur - vor 2026

2605007

Lagt fram minnisblað bæjarstjóra um stækkun Heilsuleikskólans Suðurvalla og stöðu mála.
Bæjarráð tekur málið til umfjöllunar og leggur áherslu á að unnið verði hratt og markvisst að því að fjölga leikskólarýmum í sveitarfélaginu til að mæta fyrirsjáanlegri þörf barna og fjölskyldna.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram, í samráði við verkefnastjóra verkefnisins.

10.Kosningar í ráð og nefndir 2026

2606024

Kosningar í ráð og nefndir sem falla undir d. lið 47. gr. uppfærðrar samþykktar um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Voga.
Úthlutunarnefnd uppbyggingarsjóðs SSS:
Tilnefnd eru Magnús G. Jónsson Núpan og Gunnar Richter sem aðalmenn og Alexandra Líf Ingþórsdóttir og Snædís Ósk Guðjónsdóttir sem varamenn.

Stjórn Svæðisskipulags suðurnesja:
Tilnefnd eru Andri Rúnar Sigurðsson og skipulagsfulltrúi Sveitarfélagsins Voga sem aðalmenn og Ingþór Guðmundsson og Jóna Kristbjörg Stefánsdóttir sem varamenn.

11.Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku, nr. 982004 (jöfnunargjald)

2606025

Lögð fram umsögn Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum um frumvarp til laga um breytingu á lögum um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku, nr. 98/2004 (jöfnunargjald).
Lagt fram.

12.Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026

2602002

Lagðar fram fundargerðir 997, 998, 999 og 1000. funda stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga sem haldnir voru 17.04.2026, 08.05.2026, 28.05.2026 og 09.06.2026
Lagt fram.

13.Fundargerðir Brunavarna Suðurnesja 2026

2602055

Lögð fram fundargerð frá 101. fundi Brunavarna Suðurnesja bs. sem haldinn var 21.5.2026.
Lagt fram.

14.14. ársfundur Þekkingarseturs Suðurnesja

2605041

Lögð fram fundargerð 14. ársfundar Þekkingarseturs Suðurnesja 2026 sem haldinn var 21.05.2026.
Lagt fram.

15.Fundargerðir Þekkingarseturs Suðurnesja 2026

2603023

Lögð fram fundargerð 60. fundar stjórnar Þekkingarseturs Suðurnesja sem haldinn var 21.05.2026.
Lagt fram.

16.Reykjanes jarðvangur ses fundargerðir 2026

2601046

Lögð fram fundargerð 96. fundar stjórnar Reykjnes jarðvangs ses. sem haldinn var 26.05.2026.
Lagt fram.

17.Fundargerðir Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum 2026

2602037

Lagðar fram fundargerðir 823. og 824. funda sem haldnir voru 13.05.2026 og 10.06.2026
Lagt fram.

18.Fundargerðir stjórnar Kölku 2026

2604028

Lagðar fram fundargerðir 578., 579. og 580. funda stjórnar Kölku sem haldnir voru 10.03.2026, 14.04.2026 og 12.05.2026
Lagt fram.

Fundi slitið - kl. 20:13.

Getum við bætt efni síðunnar?