Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga

451. fundur 13. maí 2026 kl. 16:30 - 17:15 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
  • Björn Sæbjörnsson formaður
  • Birgir Örn Ólafsson varaformaður
  • Friðrik V. Árnason varamaður
  • Kristinn Björgvinsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðrún P. Ólafsdóttir Bæjarstjóri
  • Ásta Friðriksdóttir Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Ásta Friðriksdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá

1.Miðbæjarreitur (Skyggnisholt 16) - Framtíðarþróun

2212011

Lögð fram drög að viljayfirlýsingu við KRST lögmenn ehf. f.h óstofnaðs einkahlutafélags um skipulag og í kjölfarið úthlutun lóða til uppbyggingar verslunar og þjónustu á Miðbæjarreit. Sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs situr fundinn undir dagskrárliðnum.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð samþykkir samhljóða viljayfirlýsingu við KRST lögmenn ehf. f.h. óstofnaðs einkahlutafélgs og vísar henni til staðfestingar í bæjarstjórn.

2.Færanlegur kennslustofur - vor 2026

2605007

Lögð fram kynningargögn frá Terra Einingum ehf. auk draga að samningi um kaup á færanlegum kennslustofum við Heilsuleikskólann Suðurvelli. Sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs situr fundinn undir dagskráliðnum.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð samþykkir samhljóða að ganga að samningi við Terra Einingar ehf. um kaup á færanlegum kennslustofum við Heilsuleikskólann Suðurvelli. Bæjarráð vísar málinu áfram til staðfestingar í bæjarstjórn.

3.Útboð á skólamáltíðum

2605019

Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs leggur fram minnisblað vegna fyrirhugaðs útboðs á innkaupum á skólamáltíðum auk draga að samningi um útboðsþjónustu ásamt kostnaðaráætlun og þjónustuskilmálum frá Consensa.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð samþykkir samhljóða að staðfesta samning við Consensa vegna útboðs á innkaupum á skólamáltíðum og að niðurstaða útboðs verði lögð fyrir bæjarráð.

4.Fundargerðir HES 2026

2602016

Lögð fram fundargerð frá 324. fundi Heilbrigðisnefndar Suðurnesja sem haldinn var 6.5.2026.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram

5.Fundargerðir Brunavarna Suðurnesja 2026

2602055

Lögð fram fundargerð 100. fundar stjórnar Brunavarna Suðurnesja sem haldinn var 30.04.2026
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram

Fundi slitið - kl. 17:15.

Getum við bætt efni síðunnar?