Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga

450. fundur 06. maí 2026 kl. 17:00 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
  • Björn Sæbjörnsson formaður
  • Birgir Örn Ólafsson varaformaður
  • Eva Björk Jónsdóttir aðalmaður
  • Kristinn Björgvinsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðrún P. Ólafsdóttir Bæjarstjóri
  • Ásta Friðriksdóttir Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Ásta Friðriksdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá

1.Ársreikningur Kölku 2025

2605009

Lagt fram til kynningar, áreikningur Kölku 2025.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram

2.Starfshópur um uppbyggingu við Stóru-Vogaskóla

2510013

Lögð fram greinargerð starfshóps um uppbyggingu við Stóru-Vogaskóla með tillögu um að bæjarráð veiti heimild til að hefja forhönnun, skipulagsgreiningu og frekari kostnaðarmat vegna áfangaskiptrar uppbyggingar með viðbyggingu Við Stóru-Vogaskóla.



Jafnframt lögð fram fram greinargerð með þarfagreiningu ásamt viðauka frá JeES arkitektum og fundargerðir starfshópsins.



Sviðsstjóri fjölskyldusviðs og sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs sitja fundinn undir þessum dagskrárlið.
Afgreiðsla bæjarráðs:

Bæjarráð samþykkir samhljóða tillögu starfshóps sem er eftirfarandi:

,,Niðurstaða starfshópsins er í samræmi við greinargerð JeES arkitekta um að leggja til við bæjarráð að meginlína áfangaskiptrar uppbyggingar með viðbyggingu sbr. viðauka a. sé samþykkt. Jafnframt að bæjarráð veiti sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs heimild til að hefja undirbúning vegna forhönnunar, skipulagsgreiningar á lóð og frekari kostnaðargreininga í samræmi við niðurstöður starfshópsins. Starfshópur leggur áherslu á að greint sé sérstaklega hvort fjárhagslega hagkvæmt sé að steypa upp báða áfanga viðbyggingar, þ.e. áfanga 4 og og 6, þegar framkvæmdir hefjast þótt að framkvæmdir við áfanga 6 bíði að öðru leyti þar til þörf krefur“.

Bæjarráð fagnar því að þær rekstrarlegu aðgerðir sem farið hefur verið í á kjörtímabilinu skapi nú grundvöll til að byggja við og endurbæta núverandi skólahúsnæði á myndarlegan en jafnframt skynsamlegan hátt. Skólahúsnæðið verði þannig útbúið í takt við nútímalega og fjölbreytta kennsluhætti, jafnt fyrir nemendur og starfsfólk. Þá er ekki síður ánægjulegt að sjá að aðstæður skapist fyrir samfélagslegt rými sem nýtist fyrir menningartengda viðburði og geri þannig skólann að lifandi stofnun fyrir allt samfélagið.

3.Samningur um félagsþjónustu, barnaverndarþjónustu og þjónustu við fatlað fólk

2604033

Lögð fram drög að samningi við Suðurnesjabæ um félagsþjónustu, barnaverndarþjónustu og þjónustu við fatlað fólk auk draga að aðgerðaráætlun og minnisblaðs bæjarstjóra.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð samþykkir samhljóða framlögð drög að samningi við Suðurnejsabæ um félagsþjónustu, barnaverndaþjónustu og þjónustu við fatlað fólk og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.

4.Samningur um fræðsluþjónustu

1906005

Lagt fram minnisblað bæjarstjóra með tillögu um að samningur sveitarfélagsins við Suðurnesjabæ um fræðsluþjónustu verði framlengdur. Sviðsstjóri fjölskyldusviðs situr fundinn undir dagskrárliðnum.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð samþykkir samhljóða framlögð drög að samningi við Suðurnesjabæ um fræðsluþjónustu og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.

5.Færanlegur kennslustofur - vor 2026

2605007

Lögð fram tillaga um kaup á færanlegum kennslustofum við Heilsuleikskólann Suðurvelli. Sviðsstjóri fjölskyldusviðs og sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs sitja fundinn undir dagskrárliðnum auk fulltrúa frá Terra-einingum.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð samþykkir að ganga til samninga vð Terra einingar ehf. um kaup á stofum fyrir stækkun leikskóla.

6.Miðbæjarreitur (Skyggnisholt 16) - Framtíðarþróun

2212011

Lögð fram drög að viljayfirlýsingu um uppbyggingu þjónustu og verslunar á miðbæjarreit.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Frestað

7.Fráveita og vatnsveita

2604025

Lagt fram minnisblað sviðsstjóra fjármála og stjórnsýslu varðandi vatnsveitu og fráveitu með tillögu um tilfærsluviðauka á milli deilda
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð samþykkir samhljóða tillögu að tilfærsluviðauka og vísar til dagskráliðar nr. 9 þar sem viðaukar eru teknir fyrir.

8.Viðhald og framkvæmdir 2026

2601023

Lagt fram að nýju minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs ásamt minnisblaði sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs varðandi ósk um viðauka vegna framkvæmda í tengslum við viðhald saunaklefa í íþróttamiðstöð.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð samþykkir samhljóða tillögu að viðauka og vísar til dagskráliðar nr. 9 þar sem viðaukar eru teknir fyrir.

9.Viðaukar 2026

2604032

Lögð fram tillaga að viðauka nr. 1 við fjárhagsáætlun 2026.



Rekstrarkostnaður



Aukinn kostnaður vegna viðhalds í Íþróttamiðstöð

Mál nr. 2601023

Á 446. fundi bæjarráðs var samþykkt beiðni sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs um auka fjárveitingu vegna viðhalds á saunaklefa og gangi við sundlaugina í Vogum. Áætlaður kostnaðarauki nemur um 5,6 m.kr. og er lagt til að auknum kostnaði sé mætt með lækkun á handbæru fé.



Aukinn kostnaður vegna starfsmannamála í leikskólanum Suðurvellir

Mál nr. 2603016

Á 447. fundi bæjarráðs var samþykkt beiðni leikskólastjórnenda og sviðsstjóra fjölskyldusviðs um að veita starfsfólki leikskólans 40% afslátt af námsgjaldi barna þeirra. Jafnframt var samþykkt breyting á undirbúningstíma leiðbeinenda og eru þær breytingar til reynslu í 1 ár. Áætlaður kostnaðarauki nemur um 5,3 m.kr. og er lagt til að auknum kostnaði sé mætt með lækkun á handbæru fé.



Fráveita og vatnsveita

Mál nr. 2604025

Á 450. fundi bæjarráðs var samþykkt tillaga sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs um tilfærslu af fráveitu og vatnsveitu yfir á aðrar deildir innan samstæðu sveitarfélagsins vegna innri viðskipta. Um er að ræða svokallaða milliverðlagningu vegna þjónustu á fráveitu og vatnsveitu sem er veitt af öðrum deildum sveitarfélagsins. Samtals nemur fjárhæðin 52,8 m.kr. samtals fyrir fráveitu og vatnsveitu og hafa viðskiptin engin áhrif á rekstrarniðurstöðu samstæðu sveitarfélagsins.





Fjárfesting



Búnaðarkaup fyrir íþróttasvæði

Mál nr. 2603026

Á 447. fundi bæjarráðs var samþykkt beiðni sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs um auka fjárveitingu til kaupa á slátturróbóta fyrir íþróttasvæði. Áætlaður kostnaðarauki nemur um 1,65 m.kr. og er lagt til að aukinni fjárfestingu sé mætt með lækkun á handbæru fé.



Aukinn kostnaður vegna fráveituframkvæmda

Mál nr. 2603027

Á 447. fundi bæjarráðs var samþykkt beiðni sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs um auka fjárveitingu vegna framkvæmda á fráveitu í Akurgerði. Áætlaður kostnaðarauki nemur um 7,7 m.kr. og er lagt til að aukinni fjárfestingu sé mætt með lækkun á handbæru fé.



Samtals áhrif á rekstrarniðurstöðu er um 11 m.kr. til lækkunar og samtals áhrif á handbært fé er um 20,3 m.kr. til lækkunar.

Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð samþykkir samhljóða framlagðan viðauka og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.

10.Keilisnes - þróun og uppbygging iðnaðarsvæðis

2305063

Lagt fram minnisblað Katrínar Júlíusdóttur, ráðgjafa hjá Athygli ehf., um stöðu verkefnis um uppgbyggingu á Keilisnesi auk sviðsmyndagreiningar.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram

11.Aðalfundur og hluthafafundur Keilis maí 2026

2605013

Lagt fram fundarboð vegna aðalfundar og hluthafafundar Keilis miðstöðvar vísinda, fræða og atvinnulífs 12.05.2026.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð felur bæjarstjóra að sækja aðalfund og hluthafafund Keilis miðstöðvar vísinda, fræða og vísinda og fara með atkvæði Sveitarfélagsins Voga á fundunum.

12.Mál til umsagnar frá nefndasviði Alþingis 2026

2601042

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar, mál nr. 595., frumvarp til Loftlagslaga. Frestur til að senda inn umsögn er til og með 8. maí nk.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram

13.Reykjanes jarðvangur ses fundargerðir 2026

2601046

Lögð fram fundargerð 95. fundar stjórnar Reykjanes jarðvangs ses sem haldinn var 20. apríl 2026.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram

Fundi slitið.

Getum við bætt efni síðunnar?