Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga

449. fundur 27. apríl 2026 kl. 17:00 - 18:18 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
  • Björn Sæbjörnsson formaður
  • Birgir Örn Ólafsson varaformaður
  • Eva Björk Jónsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Guðrún P. Ólafsdóttir Bæjarstjóri
  • Ásta Friðriksdóttir Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Ásta Friðriksdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá

1.Rekstraryfirlit 2026

2602053

Rekstrarniðurstaða fyrir tímabilið jan/feb 2026 lögð fram til kynningar.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram.

2.Boð á aðalfund Eignarhaldsfélags Suðurnesja HF.

2604030

Boð á aðalfund Eignarhaldsfélags Suðurnesja þann 5. maí 2026 sem haldinn verður að Skógarbraut 945 kl. 16:00 lagt fram til kynningar.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð felur bæjarstjóra að sækja aðalfundinn fyrir hönd sveitarfélagsins.

3.Endurskoðun samþykkta um stjórn Sveitarfélagsins Voga

2312018

Lögð fram drög að erindisbréfum nefnda í tenglsum við endurskoðun samþykkta auk tillögu að breytingu á samþykkt.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð samþykkir drög að uppfærðum erindsbréfum nefnda auk uppfærðrar tillögu að breytingu á samþykkt og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.

4.Endurskoðun samninga um félags- og fræðsluþjónustu

2509044

Skólastjóra Stóru-Vogaskóla og Heilsuleikskólans Suðurvalla boðið til fundar í tengslum við samningagerð um fræðsluþjónustu.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð þakkar skólastjórum Stóru-Vogaskóla og Heilsuleikskólans Suðurvalla fyrir komuna. Bæjarstjóra og sviðsstjóra fjölskyldusviðs falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.

5.Fráveita og vatnsveita

2604025

Lagt fram minnisblað sviðsstjóra fjármála og stjórnsýslu varðandi vatnsveitu og fráveitu með tillögu um tilfærsluviðauka á milli deilda.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Frestað.

6.Fundargerðir stjórnar Kölku 2026

2604028

Lögð fram fundargerð 577. fundar stjórnar Kölku sem haldinn var 10.02.2026 og fundargerð 576. fundar stjórnar Kölku sem haldinn var 13.01.2026.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram.

7.Fundargerðir aðalfundar Landskerfis bókasafna 2026

2604029

Lögð fram fundargerð aðalfundar Landskerfis bókasafna 2026 ásamt skýrslu stjórnar vegna ársins 2024
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram.

8.Fundargerðir Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum 2026

2602037

Lögð fram fundargerð frá 822. fundi Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram.

9.Fundargerðir fjölskyldu og velferðarráðs 2026

2601036

Lögð fram fundargerð 65. fundar Fjölskyldu- og velferðarráðs, sem haldinn var 16. apríl 2026, ásamt fylgiskjölum.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram.

Fundi slitið - kl. 18:18.

Getum við bætt efni síðunnar?