448. fundur
22. apríl 2026 kl. 17:00 - 19:30 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
Björn Sæbjörnssonformaður
Birgir Örn Ólafssonvaraformaður
Eva Björk Jónsdóttiraðalmaður
Eðvarð Atli Bjarnasonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Guðrún P. ÓlafsdóttirBæjarstjóri
Ásta FriðriksdóttirSviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði:Ásta Friðriksdóttirsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.Starfshópur um uppbyggingu við Stóru-Vogaskóla
2510013
Vinnuhugmyndir starfshóps um uppbyggingu við Stóru-Vogaskóla kynntar. Jón Stefán Einarsson, arkitekt og Ólafur Melsted, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs sitja fundinn undir dagskrárliðnum.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs falið að klára lokagögn með niðurstöðum starfshóps um uppbyggingu við Stóru-Vogaskóla til framlagningar í bæjarráði.
2.Rekstraryfirlit 2026
2602053
Rekstrarniðurstaða fyrir tímabilið jan/feb 2026 lögð fram til kynningar.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Frestað
3.Bréf frá umboðsmanni barna
2604019
Lagt fram til kynningar bréf frá umboðsmanni barna í tengslum við sveitarstjórnarkosningar 2026 og lýðræðislega þátttöku barna.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Umboðsmaður barna hvetur sveitarstjórn til að koma á umræðufundi með fulltrúum framboða og nemendum grunnskóla í sveitarfélaginu fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Bæjarráð tekur undir hvatninguna.
4.Boð á ársfund Brunavarna Suðurnesja bs
2604017
Lagt fram til kynningar boð á ársfund Brunarvarna Suðurnesja bs. sem fram fer fimmtudaginn 30. apríl nk.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram
5.Ársreikningur 2025
2603024
Lög fram drög að ársreikningi Sveitarfélagsins Voga fyrir árið 2025.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð vísar ársreikningi Sveitarfélagsins Voga 2025 til fyrri umræðu í bæjarstjórn og til endurskoðunar.
Lögð fram tillaga Jees arkitekta ehf. að breytingum innanhúss í Heilsuleikskólanum Suðurvöllum. Jón Stefán Einarsson arkitekt kynnir tillöguna. Ólafur Melsted, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs situr fundinn undir dagskrárliðnum.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð leggur ríka áherslu á að öll börn 18 mánaða og eldri komist inn í leikskólann næst komandi haust. Unnið er að lausn til að svo megi verða. Sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs falið að vinna að lausn málsins í samræmi við umræður á fundinum.
Gunnar og Jón Bjarni Kristjánssynir kynna fyrir bæjarráði tillögur um þjónustubyggingu á miðbæjareit. Sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs situr einnig fundinn undir dagskrárliðnum.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.
8.Fráveita og vatnsveita
2604025
Fráveita & Vatnsveita - minnisblað frá sviðsstjóra fjármála og stjórnsýslu með tillögu um tilfærsluviðauka á milli deilda.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Frestað
9.Mál til umsagnar frá nefndasviði Alþingis 2026
2601042
Umhverfis-og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 582. mál - Einföldun regluverks og aukin skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum (einföldun eftirlits)
Umsagnir skal senda í gegnum umsagnagátt Alþingis.
Frestur til að senda inn umsögn er til og með 16. apríl nk.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram
10.Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2026
2601044
Lögð fram fundargerð 481. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands sem haldinn var 17 mars 2026
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram
11.Fundargerðir Öldungaráðs Suðurnesjabæjar og Sveitarfélagsins Voga 2026
2601041
Lögð fram fundargerð 23. fundar Öldungaráðs Suðurnesjabæjar og Sveitarfélagsins Voga sem haldinn var 13.apríl.2026.
Sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs falið að klára lokagögn með niðurstöðum starfshóps um uppbyggingu við Stóru-Vogaskóla til framlagningar í bæjarráði.