Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga

447. fundur 08. apríl 2026 kl. 17:00 - 19:05 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
  • Björn Sæbjörnsson formaður
  • Birgir Örn Ólafsson varaformaður
  • Eva Björk Jónsdóttir aðalmaður
  • Kristinn Björgvinsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðrún P. Ólafsdóttir Bæjarstjóri
  • Ásta Friðriksdóttir Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Ásta Friðriksdóttir Sviðsstjóri fjármála og stjórnsýslu
Dagskrá

1.Endurskoðun samninga um félags- og fræðsluþjónustu

2509044

Lögð fram til kynningar gögn í tengslum við samningagerð um fræðsluþjónustu auk minnisblaðs sviðsstjóra fjölskyldusviðs. Sviðsstjóri fjölskyldusviðs situr fundinn undir dagskrárliðnum.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjóra fjölskyldusviðs að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.

2.Tillaga að leikskólamódeli

2603020

Lagt fram minnisblað leikskólastjórnenda varðandi leikskólamódel. Sviðsstjóri fjölskyldusviðs situr fundinn undir dagskrárliðnum.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð felur sviðsstjóra fjölskyldusviðs að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.

3.Ársskýrsla BS 2025

2603033

Ársskýrsla Brunavarna Suðurnesja 2025 lögð fram til kynningar.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram.

4.Erindisbréf Stjórnar Brunavarna Suðurnesja bs

2603034

Lagt fram til kynningar erindisbréf fyrir Brunavarnir Suðurnesja.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram.

5.Endurskoðun samþykkta um stjórn Sveitarfélagsins Voga

2312018

Lögð fram uppfærð tillaga að breytingu á gildandi samþykkt Sveitarfélagsins Voga.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð samþykkir samhljóða framlagðar tillögur að breytingum á samþykktum sveitarélagsins og vísar til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

6.Starfsmannamál Suðurvellir

2603016

Lagt fram minnisblað leikskólastjórnenda varðandi bættar starfsaðstæður í leikskóla auk minnisblaðs sviðsstjóra fjölskyldusviðs. Sviðsstjóri fjölskyldusviðs situr fundinn undir dagskrárliðnum.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð samþykkir samhljóða að veita starfsfólki leikskólans 40% afslátt af námsgjaldi barna þeirra og samþykkir einnig breytingu á undirbúningstíma leiðbeinenda. Breytingarnar eru til reynslu í 1 ár. Sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs er jafnframt falið að útbúa viðauaka þess efnis. Annari tillögu vísað til frekari vinnslu við gerð mannauðsstefnu fyrir sveitarfélagið.

7.Máltíðir eldri borgara í Álfagerði

2604005

Lagt fram minnisblað sviðsstjóra fjölskyldusviðs varðandi breytingar á máltíðum eldri borgara í Álfagerði. Sviðsstjóri fjölskyldusviðs situr fundinn undir dagskrárliðnum.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð felur sviðsstjóra fjölskyldusviðs að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.

8.Fráveituframkvæmdir 2026

2603027

Lagt fram minnisblað ÓJS verkfræðistofu og sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs varðandi fráveituframkvæmdir við Akurgerði. Sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs situr fundinn undir dagskráliðnum.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð samþykkir samhljóða tillögur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagsviðs og felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að útbúa viðauka þess efnis.

9.Stapavegur - endurgerð götu

2602048

Lagt fram að nýju minnisblað Tækniþjónustu SÁ auk minnisblaðs sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs varðandi Stapaveg-endurgerð götu. Sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs situr fundinn undir dagskrárliðnum.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð felur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagsviðs að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.

10.Slátturróbóti fyrir íþróttasvæði

2603026

Lagt fram minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs varðandi kaup á slátturróbóta fyrir íþróttasvæði. Sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs situr fundinn undir dagskrárliðnum.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð samþykkir samhljóða tillögur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagsviðs um kaup á slátturóbóta og felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að útbúa tilfærsluviðauka í samræmi við tillögur.

11.Styrkbeiðni í tengslum við Dance World Cup 2026

2604003

Lögð fram styrkbeiðni fjögurra foreldra stúlkna sem eru á leið á heimsmeistamót í dansi, World Dance Cup, auk minnisblaðs sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð samþykkir samhljóða að styrkja ferð stúlknanna á heimsmeistaramótið og óskar þeim jafnframt góðs gengis.

12.Stór sólmyrkvagleraugu

2604004

Lögð fram gögn varðandi stærri sólmyrkvagleraugu í sveitarfélaginu í tengslum við almyrkva á sólu þann 12. ágúst nk.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð samþykkir að taka þátt í verkefninu.

13.Mál til umsagnar frá nefndasviði Alþingis 2026

2601042

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 565.mál - verndar- og orkunýtingaráætlun (vindorka og verndarflokkur).

Frestur til að senda inn umsögn er til og með 14.apríl nk.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram.

14.Mál til umsagnar frá nefndasviði Alþingis 2026

2601042

Atvinnuveganefnd Alþingis sendir tvö mál til umsagnar:

529.mál - Lagareldi og 530. mál - Lax- og silungsveiði o.fl (bætt lagaumgjörð)

Frestur til að senda inn umsögn er til og með 10.apríl n.k.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram.

15.Mál til umsagnar frá nefndasviði Alþingis 2026

2601042

Atvinnuveganefnd Alþingis sendir til umsagnar 568. mál - Stofnun atvinnuveganna

Umsagnir skal senda í gegnum umsagnagátt Alþingis.

Frestur til að senda inn umsögn er til og með 15. apríl nk.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram.

16.Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026

2602002

Lögð fram fundargerð 995. fundar stjórnar Sambands Íslenskra Sveitarfélaga sem haldinn var 10. mars 2026.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram.

17.Fundargerðir Brunavarna Suðurnesja 2026

2602055

Lögð fram fundargerð 99. fundar stjórnar Brunavarna Suðurnesja sem haldinn var 19.3.2026.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram.

18.Fundargerðir HES 2026

2602016

Lögð fram fundargerð 323. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurnesja sem haldinn var 25.mars. 2026.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram.

19.Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026

2602002

Lögð fram fundargerð 996. fundar stjórnar Sambands Íslenskra Sveitarfélaga sem haldinn var 20. mars 2026.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram.

20.Reykjanes jarðvangur ses fundargerðir 2026

2601046

Lögð fram fundargerð 94. fundar stjórnar Reykjanes jarðvangs ses sem haldinn var 16.mars.2026.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram.

Fundi slitið - kl. 19:05.

Getum við bætt efni síðunnar?