Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga

446. fundur 18. mars 2026 kl. 17:00 - 18:57 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
  • Björn Sæbjörnsson formaður
  • Birgir Örn Ólafsson varaformaður
  • Eva Björk Jónsdóttir aðalmaður
  • Kristinn Björgvinsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðrún P. Ólafsdóttir Bæjarstjóri
  • Ásta Friðriksdóttir Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Ásta Friðriksdóttir Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá

1.Rekstraryfirlit 2026

2602053

Lögð fram rekstrarniðurstaða janúar 2026.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram.

2.Áskorun til sveitarstjórna frá Siglingasambandi Íslands

2603008

Lagt fram bréf frá Siglingasambandi Íslands með áskorun til sveitarstjórna frá Siglingasambandi Íslands varðandi strandlengju landsins, aðgengi almennings að sjó og stuðning við íþróttafélög og starfsemi við sjó.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram.

3.Skammtímadvöl Heiðarholt

2603012

Lagt fram minnisblað frá sviðsstjóra velferðarsviðs Suðurnesjabæjar vegna skammtímadvalar í Heiðarholti.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð samþykkir samhljóða framlagðar tillögur.

4.Viðhald og framkvæmdir 2026

2601023

Lagt fram minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs í tengslum við viðhald saunaklefa í íþróttamiðstöð.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram.

5.Endurskoðun samþykkta um stjórn Sveitarfélagsins Voga

2312018

Lagt fram minnisblað bæjarstjóra og Guðjóns Bragasonar hjá GB ráðgjöf varðandi samþykktir sveitarfélagsins auk tillögu um breytingu á gildandi samþykkt Sveitarfélagsins Voga. Guðjón situr fundinn undir dagskrárliðnum.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð samþykkir samhljóða að vísa tillögu um breytingu á gildandi samþykkt til frekari vinnslu á vettvangi bæjarstjórnar. Guðjóni Bragasyni er þakkað fyrir greinargóða yfirferð.

6.Neyðarstjórn - erindisbréf

2311013

Lögð fram drög að uppfærðu erindisbréfi neyðarstjórnar sveitarfélagsins.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð samþykkir samhljóða framlögð drög erindisbréfs neyðarstjórnar sveitarfélagsins og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.

7.Fundarboð aðalfundar Lánasjóðs sveitarfélaga 20.03.2026

2603007

Lagt fram fundarboð vegna aðalfundar Lánasjóðs sveitarfélaga 20.03.2026.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram.

8.Styrkbeiðni DansKompaní 2026

2602017

Lögð fram beiðni um styrk frá foreldrafélagi DansKompaní vegna heimsmeistaramótsins: Dance World Cup.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram.

9.Styrkbeiðni -Eldey kór eldri borgara á Suðurnesjum.

2603018

Lögð fram beiðni um styrk frá Eldey kór eldri borgara á Suðurnesjum.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram.

10.Styrkbeiðni-Sterkari út í lífið

2603019

Lögð fram beiðni frá hópi sálfræðinga um styrk í tengslum við verkefnið Sterkari út í lífið.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram.

11.Mál til umsagnar frá nefndasviði Alþingis 2026

2601042

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 499. mál- varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum og Vegagerðin, framkvæmdastofnun samgöngumála (markmið nýting eigna, framkvæmdaumsjón).

Frestur til að senda inn umsögn er til og með 19. mars nk.



Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram.

12.Mál til umsagnar frá nefndasviði Alþingis 2026

2601042

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 505. mál - Sveitarstjórnarlög.

Frestur til að senda inn umsögn er til og með 20. mars nk.



Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram.

13.Frumvarp til nýrra sveitarstjórnarlaga

2509035

Lagt fram bréf frá Innviðaráðuneytingu með hvatningu um að sveitarfélög og landshlutasamtök kynni sér frumvarp til nýrra sveitarstjórnarlaga.

Frestur til að skila umsögn um frumvarpið er 20. mars nk



Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram.

14.Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026

2602002

Lögð fram fundargerð 994. fundar stjórnar Sambands Íslenskra Sveitarfélaga sem haldinn var 3. mars 2026.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram.

15.Fundargerðir fjölskyldu og velferðarráðs 2026

2601036

Lögð fram fundargerð 64. fundar Fjölskyldu- og velferðarráðs sem haldinn var 26. febrúar 2026 ásamt fylgiskjölum.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram.

16.Fundargerðir Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum 2026

2602037

Lögð fram fundargerð frá 821. fundi Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram.

17.Fundargerðir Þekkingarseturs Suðurnesja 2026

2603023

Lögð fram fundargerð 59. fundar stjórnar Þekkingarseturs Suðurnesja sem haldinn var 19.2.2026
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram.

Fundi slitið - kl. 18:57.

Getum við bætt efni síðunnar?