Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga

445. fundur 04. mars 2026 kl. 17:00 - 20:25 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
  • Björn Sæbjörnsson formaður
  • Birgir Örn Ólafsson varaformaður
  • Eva Björk Jónsdóttir aðalmaður
  • Kristinn Björgvinsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðrún P. Ólafsdóttir Bæjarstjóri
  • Ásta Friðriksdóttir Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Ásta Friðriksdóttir Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá

1.Keilisnes - þróun og uppbygging iðnaðarsvæðis

2305063

Farið yfir stöðu verkefnis um uppbyggingu á Keilisnesi. Katrín Júlíusdóttir, ráðgjafi hjá Athygli og sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs sitja fundinn undir dagskrárliðnum.
Afgreiðsla bæjarráðs:

Bæjarráð þakkar Katrínu kærlega fyrir komuna.

2.Framkvæmdayfirlit 2026

2602054

Lagt fram framkvæmdayfirlit umhverfis- og skipulagssviðs fyrir árið 2026. Sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs situr fundinn undir dagskrárliðnum.
Afgreiðsla bæjarráðs:

Lagt fram

3.Endurskoðun samþykkta um stjórn Sveitarfélagsins Voga

2312018

Lögð fram til umfjöllunar vinnugögn í tengslum við endurskoðun samþykkta sveitarfélagsins.
Afgreiðsla bæjarráðs:

Lagt fram

4.Stapavegur - endurgerð götu

2602048

Lagt fram minnisblað Tækniþjónustu SÁ varðandi Stapaveg-endurgerð götu. Sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs situr fundinn undir dagskrárliðnum.
Afgreiðsla bæjarráðs:

Sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.

5.Brunavarnaáætlun Brunavarna Suðurnesja 2026-2030

2602056

Lögð fram Brunavarnaáætælun Brunavarna Suðurnesja 2026- 2030 (10-02-2026 10:57).
Afgreiðsla bæjarráðs:

Bæjarráð samþykkir framlagða brunavarnaráætlun Brunavarna Suðurnesja og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.

6.Skipulag þjónustumiðstöð

2601049

Lagðar fram greinargerðir sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs varðandi skipulag þjónustumiðstöðvar. Sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs situr fundinn undir dagskrárliðnum.
Afgreiðsla bæjarráðs:

Bæjarráð felur sviðsstjóra umhverfis og skipulagssviðs að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.

7.Umsókn um lóð - Tjarnargata 11

2602051

Eignhaldsfélagið Normi ehf. sækir um lóðina Tjarnargötu 11. Óskað er eftir breyttu skipulagi lóðarinnar úr fjögrra íbúða fjölbýli í raðhús. Sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs situr fundinn undir dagskrárliðnum.
Afgreiðsla bæjarráðs:

Bæjarráð vísar málinu til skipulagsnefndar.

8.Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026

2602002

Lögð fram til kynningar 993. fundargerð Sambands Íslenskra Sveitarfélaga til kynningar.
Afgreiðsla bæjarráðs:

Lagt fram

9.Reykjanes jarðvangur ses fundargerðir 2026

2601046

Lögð fram fundargerð 93. fundar stjórnar Reykjanes jarðvangs ses sem haldinn var 23.02.2026.
Afgreiðsla bæjarráðs:

Lagt fram

10.Fundargerðir Brunavarna Suðurnesja 2026

2602055

Lögð fram fundargerð 98. fundar stjórnar Brunavarna Suðurnesja sem haldinn var 19.02.2026.
Afgreiðsla bæjarráðs:

Lagt fram

11.Fundargerðir Svæðisskipulags Suðurnesja 2026

2603001

Lögð fram fundargerð 56. fundar Svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja sem haldinn var 26.2.2026
Afgreiðsla bæjarráðs:

Lagt fram

12.Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2026

2601044

Lögð fram fundargerð 480. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands sem haldinn var 16.febrúar 2026
Afgreiðsla bæjarráðs:

Lagt fram

Fundi slitið - kl. 20:25.

Getum við bætt efni síðunnar?