444. fundur
18. febrúar 2026 kl. 17:00 - 18:26 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
Björn Sæbjörnssonformaður
Birgir Örn Ólafssonvaraformaður
Eva Björk Jónsdóttiraðalmaður
Kristinn Björgvinssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Guðrún P. ÓlafsdóttirBæjarstjóri
Ásta FriðriksdóttirSviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði:Ásta FriðriksdóttirSviðsstjóri fjármála og stjórnsýslu
Dagskrá
1.Húsnæðisáætlun 2026
2601052
Lagt fram til kynningar drög að húsnæðisáætlun 2026 auk minnisblaðs skipulagsfulltrúa og bæjarstjóra. Skipulagsfulltrúi og sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs sitja fundinn undir dagskrárliðnum.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð samþykkir samhljóða að vísa húsnæðisáætlun 2026 til staðfestingar í bæjarstjórn.
2.Rekstrar- og fjárfestingayfirlit 2025
2505038
Lögð fram lokastaða framkvæmdaáætlunar 2025. Sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs situr fundinn undir dagskrárliðnum.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram
3.Bréf til dómsmálaráðherra vegna jarðhræringa
2509042
Lagt fram bréf frá Almannavarnardeild ríkislögreglustjóra varðandi viðbragð við jarðhræringum.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram
4.Bréf Samkeppniseftirlitsins til sveitarfélaga des 2025
2601024
Lagt fram bréf frá Samkeppniseftirlitinu dags. 17.12.25 með beiðni um upplýsingar og gögn í tengslum við rannsókn á því hvort Terra umhverfisþjónusta hf og Kubbur ehf. hafi brotið gegn samkeppnislögum. Jafnframt lagt fram sameiginlegt svarbréf sveitarfélaga á Suðurnesjum.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram
5.Hafðu áhrif - taktu þátt Átak til hvatningar framboða
2602036
Lagt fram erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og innviðaráðuneytinu í tengslum við sameiginlegt átak sem miðar að því að styrkja lýðræðið á sveitarstjórnastigi í kringum sveitarstjórnarkosningar 2026.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram
6.Breyting á eftirliti með matvælum, hollustuháttum og mengunarvörnum
2602041
Lögð fram kynnning Sambands íslenskra sveitarfélaga og kynning Atvinnuvegaráðuneytisins og Umhverfis- orku- og loftslagráuneytisins í tengslum við fyrirhugaðar breytingar á eftirliti með matvælum, hollustuháttum og mengunarvörnum. Auk þess lagt fram uppfært minnisblað frá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð lýsir yfir alvarlegum áhyggjum af fyrirhuguðum breytingum á fyrirkomulagi heilbrigðiseftirlits, þar sem gert er ráð fyrir að færa verkefni heilbrigðisnefnda sveitarfélaga til ríkisins frá 1. janúar 2027, að frátöldum fáeinum en mikilvægum verkefnum sem flytjast á forræði sveitarfélaga.
Bæjarráð telur að fyrirliggjandi frumvarp og undirbúningur málsins uppfylli ekki þær kröfur sem gera verður til vandaðrar löggjafar, heildstæðrar greiningar og raunhæfrar innleiðingar. Ekki liggur fyrir fullnægjandi mat á áhrifum breytinganna á lýðheilsu, matvælaöryggi, viðbragðsgetu eftirlits, þjónustu við íbúa og rekstraraðila, né fjárhagsleg áhrif á sveitarfélög. Látið er hjá líða að ávarpa raunverulega hættu á þjónusturofi og slælegu eftirliti sem gæti varað í nokkur misseri. Þá er ekki hugað nægilega vel að möguleikum sveitarfélaga til gjaldtöku og íhlutunar vegna þeirra verkefna sem þau munu hafa með höndum, verði frumvarpið að lögum.
Bæjarráð bendir á að fyrirhugað fyrirkomulag felur í sér uppbrot eftirlits milli ríkisstofnana, lengri boðleiðir, aukna hættu á tvíverknaði og verulega áhættu á þjónusturofi á sviðum sem varða lífsgæði og öryggi almennings. Slíkt er að mati bæjarráðs í andstöðu við meginmarkmið laga um hollustuhætti og mengunarvarnir og laga um matvæli, þar sem lögð er áhersla á forvarnir, nærþjónustu og skýra ábyrgð.
Bæjarráð telur sérstaklega alvarlegt að fyrirhugað sé að færa tekjuberandi verkefni til ríkisins á meðan kostnaðarsöm verkefni sem ekki gefa af sér tekjur eru skilin eftir hjá sveitarfélögunum, án þess að fyrir liggi skýr mynd af verkaskiptingu, fjármögnun eða ábyrgð.
Bæjarráð hafnar því að ráðist verði í svo róttæka kerfisbreytingu á jafn skömmum tíma og við núverandi óvissu. Bæjarráð hvetur stjórnvöld eindregið til að staldra við, draga frumvörpin til baka í núverandi mynd og beina kröftum að því að efla og bæta núverandi fyrirkomulag heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga með markvissri samræmingu, skýrari reglum og faglegum stuðnings ríkisstofnana. Bæjarráð telur að slík leið sé bæði skynsamlegri, hagkvæmari og öruggari með hagsmuni íbúa, atvinnulífs og lýðheilsu að leiðarljósi.
7.Hlévangur Faxabraut 13 Reykjanesbæ
2602015
Tekið fyrir erindi frá Reykjanesbæ er varðar rekstur á húsnæði er sveitafélögin Suðurnesjabær, Reykjanesbær og Vogar eiga í sameiningu.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjaráð tekur jákvætt í erindið og felur bæjarstjóra að vinna málið áfram.
8.Neyðarstjórn - erindisbréf
2311013
Lögð fram drög að uppfærðu erindisbréfi neyðarstjórnar sveitarfélagsins.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Máli frestað.
9.Erindi frá Ungmennafélaginu Þrótti varðandi umsjón á vallarsvæði
2510024
Lagt fram tilboð UMFÞ varðandi umsjón á vallarsvæði, erindi frá félaginu, auk minnisblaðs sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs. Sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs situr fundinn undir dagskrárliðnum.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð þakkar UMFÞ erindið og felur umhverfis- og skipulagssviði að vinna málið áfram.
10.Fundargerðir HES 2026
2602016
Lögð fram fundargerð 322. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurnesja sem haldinn var 04.02.2026.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram
11.Fundargerðir Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum 2026
2602037
Lögð fram fundargerð frá 820. fundi Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram
12.Fundargerðir SSKS 2026
2602007
Lögð fram fundargerð 88. fundar stjórnar Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum sem haldinn var 21.01.2026.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram
13.Aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum 2025
2511009
Lögð fram fundargerð 50. aðalfundar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum sem haldinn var 09.12.2025
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram
14.Almannavarnir Suðurnesja utan Grindavíkur fundagerðir 2026
2602019
Lögð fram fundagerð 77. fundar Almannavarna Suðurnesja utan Grindavíkur.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að vísa húsnæðisáætlun 2026 til staðfestingar í bæjarstjórn.