443. fundur
04. febrúar 2026 kl. 17:00 - 19:14 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
Birgir Örn Ólafssonvaraformaður
Andri Rúnar Sigurðssonvaramaður
Friðrik V. Árnasonvaramaður
Eðvarð Atli Bjarnasonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Guðrún P. ÓlafsdóttirBæjarstjóri
Ásta FriðriksdóttirSviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði:Ásta Friðriksdóttirsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.Bréf frá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja vegna frumvarps til laga um að heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga verði lagt niður
2601055
Lagt fram bréf frá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja vegna frumvarps til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuhætti og mengunarvarnir (S-3/2026)
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð kallar eftir ítarlegra samráði og upplýsingagjöf frá stjórnvöldum um framkvæmd breytinga á starfsemi Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja samanber frumvarpsdrög og framlagt bréf. Mikilvægt er að breytingarnar hafi sem minnstan kostnað í för með sér fyrir sveitarfélögin og staðinn verði vörður um þau lífsgæði íbúa sem felast í heilnæmu umhverfi og öruggum matvælum.
2.Uppgjör landbóta v. lagningar Suðurnesjalínu 2 og Kolviðarhólslínu 2
2602003
Lögð fram til kynnningar bréf frá Magna lögmönnum fyrir hönd Landsnets hf. um uppgjör landbóta til sveitafélagsins vegna jarðanna Heiðarlands Vogajarða og Suðurkots Neðra 3 í tengslum við lagningu Suðurnesjalínu 2 og Kolviðarhólslínu2.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram
3.Atvinnustefna Suðurnesja 2026-2030
2602005
Lögð fram uppfærð drög að atvinnustefnu Suðurnesja 2026-2030.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram
4.Bréf - breyting á 4. gr. fylgiskjals I með reglugerð 22.12.2025
2602006
Lagt fram til kynningar bréf frá Innviðaráðuneytinu varðandi breytingu á 4. gr. fylgiskjals I með reglugerð 12/12.2025 um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram
5.Skipulag þjónustumiðstöð
2601049
Lögð fram greinargerð sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs varðandi skipulag þjónustumiðstöðvar. Sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs situr fundinn undir dagskrárliðnum.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð samþykkir samhljóða að fela sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs að útfæra tillögur í samræmi við framlagða greinargerð og umræður á fundinum.
6.Heiðarholt 3 - skammtímaleigusamningur
2601047
Lögð fram drög að skammtímaleigusamningi um hluta lóðar við Heiðarholt 3 við Linde Gas ehf. Sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs situr fundinn undir dagskrárliðnum.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð samþykkir samhljóða framlögð samningsdrög og felur bæjarstjóra og sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs að ganga frá skammtíma samningi við Linde Gas ehf. í samræmi við umræður á fundinum.
7.Keilisnes - þróun og uppbygging iðnaðarsvæðis
2305063
Lögð fram drög að þjónustusamningi við Athygli ehf. varðandi ráðgjöf í tengslum við atvinnuuppbyggingu á Keilisnesi.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð samþykkir samhljóða framlögð samningsdrög og felur bæjarstjóra að undirrita samninginn fyrir hönd sveitarfélagsins.
8.Mál til umsagnar frá nefndasviði Alþingis 2026
2601042
Nefnda- og greiningasvið Alþingis sendir til umsagnar 3 mál: Mál nr. 305 Framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn, mál nr 311 Réttindavernd fatlaðs fólks og mál nr. 312 Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir (stytting bótatímabils o.fl.)
Takið eftir að frestur til að senda inn umsagnir er til og með 11. febrúar nk. á öllum málunum.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram
9.Mál til umsagnar frá nefndasviði Alþingis 2026
2601042
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 322. mál Samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 ásamt fimm ára aðgerðaráætlun fyrir árin 2026-2030
Umsagnarfrestur er til og með 9. febrúar n.k.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram
10.Boð um þátttöku í samráði um drög að frumvarpi til laga um leiðarmerki og öryggi siglinga
2601043
Lagt fram boð um þátttöku í samráði við Innviðarráðuneytið um drög að frumvarpi til laga um leiðarmerki og öryggi siglinga.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram
11.Fundargerðir fjölskyldu og velferðarráðs 2026
2601036
Lögð fram fundargerð 63. fundar fjölskyldu- og velferðarráðs sem haldinn var 15.01.2026 ásamt fylgiskjölum.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram
12.Reykjanes jarðvangur fundargerðir 2024
2403026
Lagðar fram fundargerðir 78.,79.,80.,og 81. fundar stjórnar Reykjanes jarðvangs ses.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram
13.Fundargerðir Öldungaráðs Suðurnesjabæjar og Sveitarfélagsins Voga 2026
2601041
Lögð fram fundargerð 22. fundar Öldungaráðs Suðurnesjabæjar og Sveitarfélagsins Voga sem haldinn var 13.01.2026. Einnig fylgir með kynning á stefnu Suðurnesjabæjar í málefnum eldri borgara: Farsæl eldri ár
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram
14.Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2025
2502001
Lagðar fram fundargerðir 476., 477. og 478. funda stjórnar Hafnasambands Íslands. Einnig fylgir með skýrsla um framtíðarstefnu hafna
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram
15.Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2026
2601044
Lögð fram fundargerð 479. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands sem haldinn var 19.01.2026
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram
16.Reykjanes jarðvangur fundargerðir 2024
2403026
Lagðar fram fundargerðir 78., 79., 80., og 81. funda stjórnar RGP sem haldnar voru 2024
Fundargerðir þessar bárust í dag 26.01.26
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram
17.Reykjanes jarðvangur ses fundargerðir 2025
2601045
Lagðar fram fundargerðir 82.-91. funda stjórnar Reykjanes jarðvangur ses sem haldnir voru árið 2025
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram
18.Reykjanes jarðvangur ses fundargerðir 2026
2601046
Lögð fram fundargerð 92. fundar stjórnar Reykjanes jarðvangs ses sem haldinn var °19.01.2026
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram
19.Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026
2602002
Lögð fram fundargerð 992. fundar stjórnar Sambands Íslenskra sveitarfélaga sem haldinn var 23.01.2026
Bæjarráð kallar eftir ítarlegra samráði og upplýsingagjöf frá stjórnvöldum um framkvæmd breytinga á starfsemi Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja samanber frumvarpsdrög og framlagt bréf. Mikilvægt er að breytingarnar hafi sem minnstan kostnað í för með sér fyrir sveitarfélögin og staðinn verði vörður um þau lífsgæði íbúa sem felast í heilnæmu umhverfi og öruggum matvælum.