Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga

204. fundur 03. febrúar 2016 kl. 06:30 - 08:30 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
  • Bergur Álfþórsson formaður
  • Ingþór Guðmundsson varaformaður
  • Björn Sæbjörnsson aðalmaður
  • Jóngeir Hjörvar Hlinason áheyrnarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Ásgeir Eiríksson bæjarstjóri
Dagskrá

1.Umsókn um leyfi til leitar og rannsóknar á málmum á Reykjanesi.

1601024

Orkustofnun óskar eftir umsögn Iceland Resources ehf. um leyfi til leitar og rannsókna á málmum á Reykjanesi. Umsagnargögn eru bundin trúnaði sbr. 23.gr. laga nr. 57/1998, með vísan til þess eru umsagnaraðilar beðnir um að virða þann trúnað.
Erindi Orkustofnunar dags. 22.01.2016 ásamt fylgigögnum, beiðni um umsögn um umsókn Iceland Resources ehf. um leyfi til leitar og rannsókna á málmum á Reykjanesskaga.

Umsögn bæjarráðs:
Ekki er gerð athugasemd við erindið. Sveitarfélagið áréttar þó að það áskilur sér allan rétt til að taka afstöðu til einstakra rannsókna, framkvæmda eða vinnslu m.t.t. áhrifa þeirra á viðkomandi svæði. Þá áréttar sveitarfélagið að umsækjandi þarf, áður en til nokkurra rannsókna eða framkvæmda kemur, að ná samningum við landeigendur um rannsóknir og eða framkvæmdir á eignarlandi.

2.Til umsagnar 400. mál frá nefndasviði Alþingis.

1601042

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um vatnsveitur sveitarfélga (skilgreining og álagning vatnsgjalds), 400 mál.
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um vatnsveitur sveitarfélaga (skilgreining og álagning vatnsgjalds), 400 mál.
Erindið lagt fram.

3.Til umsagnar 404. mál frá nefndasviði Alþingis

1601048

Umhverfis- og samgöngunefnd sendir til umsagnar frumvarp til laga um uppbyggingu og rekstur fráveitna (gjaldtökuheimildir, réttindi og skyldur fráveitna), 404. mál
Umhverfis- og samgöngunefnd sendir til umsagnar frumvarp til laga um uppbyggingu og rekstur fráveitna (gjaldtökuheimildir, réttindi og skyldur fráveitna), 404. mál.
Erindið lagt fram.

4.Til umsagnar 13. mál frá nefndasviði Alþingis

1601051

Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis sendir til umagnar frumvarp til laga um verslun með áfengi og tóbak o.fl. (smásala áfengis), 13. mál
Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um verslun með áfengi og tóbak o.fl. (smásala áfengis), 13. mál.
Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga leggst gegn frumvarpinu.

5.Fundargerðir 2016 Fjölskyldu- og velferðarnefndar Sandgerðis, Garðs og Voga

1602001

Fundargerð 109. fundar Fjölskyldu- og velferðarnefndar.
Fundargerð 109. fundar Fjölskyldu- og velferðarnefndar.
Fundargerðin er lögð fram.

6.Fundir Stjórnar Brunavarna Suðurnesja 2015

1502037

Fundargerð 6. fundar stjórnar Brunavarna Suðurnesja bs.
Fundargerð 6. fundar stjórnar Brunavarna Suðurnesja bs. Með fundargerðinni fylgir erindi Jóns Guðlaugssonar slökkviliðsstjóra, dags. 21.01.2016, ásamt gjaldskrá BS fyrir árið 2016 sem samþykkt hefur verið í stjórn BS.
Fundargerðin lögð fram. Bæjarráð staðfestir fyrir sitt leyti gjaldskrá Brunavarna Suðurnesja 2016.

7.Fundir Brunavarna Suðurnesja bs. 2016.

1601037

Fundargerð 7. fundar stjórnar Brunavarna Suðurnesja bs.
Fundargerð 7. fundar stjórnar Brunavarna Suðurnesja bs.
Fundargerðin lögð fram.

8.Fundargerðir Kölku 2016 / Sorpeyðingarstöð Suðurnesja

1601016

Fundargerð 466. fundar stjórnar Kölku, Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja
Fundargerð 466. fundar stjórnar Kölku, Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja.
Fundargerðin lögð fram.

9.Fjárhagsleg endurskipulagning Búmanna

1505013

Bréf Búmanna um aðgerðir í kjölfar samþykktar nauðasamninga félagsins
Tilkynning Búmanna dags. 29.01.2016, til þeirra sem áttu búseturétt í innlausnarkerfi Búmanna og sem töldust því vera kröfuhafa í nauðasamningi félagsins og fjalla um aðgerðir í kjölfar staðfestingar nauðasamnings Búmanna.
Lagt fram.

10.Móttökuáætlanir sveitarfélaga vegna innflytjenda.

1509016

Fjölmenningasetur spyrst fyrir um áform sveitarfélagsins varðandi móttökuáætlun fyrir innflytjendur.
Tölvupóstur Fjölmenningarseturs dags. 05.01.2016 ásamt erindi, þar sem óskað er eftir upplýsingum um mótttökuáætlanir sveitarfélaga vegna innflytjenda.
Erindið er lagt fram. Sveitarfélagið hyggst að svo stöddu ekki móta sér móttökuáætlun fyrir innflytjendur.

11.Lóð fyrir ÍSAGA ehf.

1204009

Yfirferð á stöðu málsins, staða í viðræðum um kaup á landi.
Bæjarstjóri fór yfir og upplýsti stöðu málsins, m.a. um stöðu í viðræðum um kaup á landi.

12.Heiðursborgari sveitarfélagsins Voga

1208032

Drög að reglugerð um val á heiðursborgara Sveitarfélagsins Voga
Á fundinum eru lögð fram til umræðu drög að reglum um val og útnefningu heiðursborgara Sveitarfélagsins Voga. Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög.

13.Námskeið í skyndihjálp fyrir íbúa sveitarfélagsins

1601049

Upplýsingar frá Rauða Krossinum vegna hugsanlegs námskeiðs í skyndihjálp fyrir íbúa sveitarfélagsins
Tölvupóstur frá Rauða krossinum dags. 19.01.2016. Í tölvupóstinum eru upplýsingar um námskeið í skyndihjálp, sem hugsanlega stendur til að bjóða upp á fyrir íbúa sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir að auglýst verði námskeið í skyndihjálp fyrir íbúa sveitarfélagsins og þeim með því gefinn kostur á að sækja slíkt námskeið í boði sveitarfélagsins.

14.Húsnæðismál grunnskólans

1404060

Skýrsla Verkfræðistofunnar EFLU um ástand skólahúsnæðisins. Kostnaðaráætlun flutnings færanlegrar kennslustofu frá leikskóla á grunnskólalóð. Minnisblað skólastjóra um stöðu húsnæðismála.
Fyrir liggur skýrsla Verkfræðistofunnar EFLU unnin í október og nóvember 2015, um ástand húsnæðis í Stóru-Vogaskóla. Skólastjóri Stóru-Vogaskóla hefur tekið saman minnisblað dags. 29.01.2016, þar sem farið er yfir stöðu mála þar sem m.a. er lögð til sú lausn að ónotuð færanleg kennslustofa sem er staðsett við leikskólann verði færð á lóð grunnskólans. Einnig liggur fyrir áætlun Tækniþjónustu SÁ ásamt viðbótarupplýsingum frá forstöðumanni Umhverfis- og eigna um kostnað vegna flutnings kennslustofunnar.
Gögnin lögð fram. Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að vinna áfram að skoðun málsins.

15.Fjárhagsaðstoð 2016

1602010

Bréf Félagsþjónustunnar, upphæðir fjárhagsaðstoðar 2016
Tölvupóstur Félagsþjónustunnar dags. 26.01.2016 vegna upphæða fjárhagsaðstoðar fyrir árið 2016. Með tölvupóstinum fylgir samantekt Félagsþjónstunnar þar sem m.a. kemur fram samanburður upphæða fjárhagsáætlunar við önnur sveitarfélög sem standa að hinni sameiginlegu félagsþjónustu sveitarfélaganna Garðs, Sandgerðis og Voga, ásamt upplýsingum up upphæðir almannatrygginga 2015 og 2016.
Bæjarráð staðfestir að fjárhæðir fjárhagsaðstoðar verði þær sömu fyrir árið 2016 og 2015.

Fundi slitið - kl. 08:30.

Getum við bætt efni síðunnar?