Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga

203. fundur 20. janúar 2016 kl. 06:30 - 08:30 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
  • Bergur Álfþórsson formaður
  • Ingþór Guðmundsson varaformaður
  • Björn Sæbjörnsson aðalmaður
  • Jóngeir Hjörvar Hlinason áheyrnarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Ásgeir Eiríksson bæjarstjóri
Dagskrá

1.Gjaldtaka í höfnum.

1512088

Tilmæli Umhverfis- og auðlindaráðuneytisins um að sett verði inn ákvæði reglugerðar um gjaldtöku í höfnum vegna losunar, móttöku meðhöndlungar og förgunar í gjaldkrá Vogahafnar.
Erindi Umhverfis- og auðlindaráðuneytisins dags. 28.12.2015: Gjaldtaka í höfnum vegna losunar, móttöku, meðhöndlunar og förgunar úrgangs og farmleifa frá skipum. Ráðuneytið beinir þeim tilmælum til Vogahafnar að sett verði ákvæði um gjaldtökuna inn í gjaldskrá hafnarinnar í samræmi við 2. mgr. 1. gr. reglugerðar 1201/2014 hið allra fyrsta hafi það ekki þegar verið gert.
Bæjarráð vísar málinu til úrvinnslu hjá bæjarstjóra.

2.Jafnréttisáætlun sveitarfélaga.

1510028

Drög að Jafnréttisáætlun Sveitarfélagsins Voga
Tekið fyrir að nýju bréf Jafnréttisstofu, dags. 12.10.2015, beiðni um afhendingu á jafnréttisáætlun ásamt framkvæmdaáætlun. Fyrir fundinum liggja drög að jafnréttisáætlun Sveitarfélagsins Voga, sem tekin hefur verið saman.
Bæjarráð samþykkir áætlunina og felur bæjarstjóra að senda hana til staðfestingar hjá Jafnréttisstofu.

3.Reglur um Tjarnarsal

1501002

Tillaga um breytingu á reglum um Tjarnarsal, vegna útleigu til félagasamtaka sem hafa gert samstarfssamning við sveitarfélagið.
Minnisblað bæjarstjóra með tillögu að viðbótarákvæði við 4.gr. gildandi reglna um Tjarnarsal. Í ákvæðinu er félagasamtökum innan sveitarfélagsins sem eru með gildan samstarfssamning við sveitarfélagið undanþegin ákvæði um að salurinn sé leigður út ásamt starfsmanni.
Bæjarráð samþykkir tillöguna.

4.Starfsleyfi Vatnsveitu Voga.

1511019

Starfsleyfi Vatnsveitu Voga er útrunnið og þarnfast endurnýjunar.
Erindi Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja dags. 12.11.2015, Starfleyfi Vatnsveitu Voga. Starfsleyfi veitunnar er útrunnið og ber því að sækja um starfsleyfi að nýju. Bæjarstjóri upplýsti á fundinum að unnið hefur verið að málinu frá því erindið barst. Nú stendur yfir vinna við gerð innra eftirlits veitunnar, að öðru leyti er umsóknin tilbúin. Umsóknin verður send Heilbrigðiseftirlitinu um leið og þeirri vinnu er lokið. Bæjarstjóra er falin áframhaldandi úrvinnsla málsins.

5.Umsókn um styrk - barnakór

1509015

Styrkumsókn vegna starfsemi barnakórs á vorönn 2016.
Erindi Kjartans Jónssonar sóknarprests, dags. 22.12.2015. Farið er fram á styrk fyrir launum stjórnanda barnakórs Kálfatjarnarkirkju á vormisseri 2016, kr. 320.000.
Bæjarráð samþykkir að styrkja verkefnið um kr. 320.000. Fjárveitingin bókast á lið 0589-9991.

6.Þjónustusamningur um málefni fólks með fötlun

1411029

Minnisblað eftir fund bæjarstjóranna á Suðurnesjum í Velferðarráðuneytinu með ráðherra
Sameiginlegt minnisblað bæjarstjóra sveitarfélaganna á Suðurnesjum eftir fund þeirra með Eygló Harðardóttur ráðherra velferðarmála þ. 16.12.2015. Í minnisblaðinu eru tilgreindar tillögur að breyttu fyrirkomulagi í fjórum liðum, sem nú hafa verið samþykktar í nágrannasveitarfélögunum. Bæjarráð samþykkir tillögurnar fyrir sitt leyti.

7.Til umsagnar 399. mál frá nefndarsviði Alþingis.

1512086

Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um húsaleigulög (réttarstaða leigjenda og leigusala), 399. mál. Umsagnarfrestur var til 14. janúar 2016.
Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um húsaleigulög (réttarstaða leigjenda og leigusala), 399. mál. Lagt fram.

8.Til umsagnar 407. mál frá nefndarsviði Alþingis.

1512085

Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um húsnæðisbætur (heildarlög), 407. mál. Umsagnarfrestur var til 14. janúar 2016.
Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um húsnæðisbætur (heildarlög), 407. mál. Lagt fram.

9.Til umsagnar 435. mál frá nefndarsviði Alþingis.

1512087

Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um almennar íbúðir (heildarlög), 435. mál. Umsagnarfrestur var til 14. janúar 2016.
Velferðarenfd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um almennar íbúðir (heildarlög), 435. mál. Lagt fram.

10.Fundargerðir Almannavarna Suðurnesja 2015

1512074

Fundargerð Almannavarna Suðurnesja frá 2. desember 2015.
Fundargerð Almannavarnarnefndar Suðurnesja frá 2. desember 2015.
Fundargerðin lögð fram.

11.Fundargerðir Fjölskyldu- og velferðarnefndar Sandgerðis, Garðs og Voga 2015

1501026

Fundargerð 108. fundar Fjölskyldu- og velferðarnefndar.
Fundargerð 108. fundar Fjölskyldu- og velferðarefndar.
Fundargerðin lögð fram.

12.Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2015

1501020

Fundargerð 380. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands
Fundargerð 380. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands.
Fundargerðin lögð fram.

13.Fundargerðir Kölku 2015 / Sorpeyðingarstöð Suðurnesja.

1501008

Fundargerð 465. fundar stjórnar Kölku, Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja
Fundargerð 465. fundar stjórnar Kölku, Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja.
Fundargerðin lögð fram.

14.Fundargerðir S.S.S. 2015

1501022

Fundargerð 698. fundar stjórnar SSS
Fundargerð 698. fundar stjórnar SSS.
Fundargerðin lögð fram.

15.Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2015

1502020

Fimdargerð 834. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Fundargerð 834. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Fundargerðin lögð fram.

Fundi slitið - kl. 08:30.

Getum við bætt efni síðunnar?