Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga

334. fundur 15. júlí 2021 kl. 06:30 - 07:30 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
  • Bergur Álfþórsson formaður
  • Birgir Örn Ólafsson 2. varamaður
  • Björn Sæbjörnsson aðalmaður
  • Jóngeir Hjörvar Hlinason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Ásgeir Eiríksson bæjarstjóri
Dagskrá
Í upphafi fundar var leitað afbrigða og samþykkt að taka á dagskrá sem 12.mál: 2107024 Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála-Tilkynning um kæru

1.Ályktun um fasteignaskatt á atvinnuhúsnæði

2107016

Félag atvinnurekenda sendir sveitarstjórnum ályktun sína um fasteignaskatta á atvinnuhúsnæði
Lagt fram
Afgreiðsla bæjarráðs:

Erindið er lagt fram.

2.Fráveitustyrkur - umsókn styrkur vegna fráveituframkvæmda

2104223

Niðurstaða Umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, styrkumsókn samþykkt
Lagt fram
Sótt var um styrk til fráveituframkvæmda hjá Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu. Ráðuneytið hefur nú samþykkt umsóknina og styrkir fráveituframkvæmdir sveitarfélagsins 2020 og 2021 um 30% af kostnaði.

Afgreiðsla bæjarráðs:

Erindið lagt fram.

3.Barnvænt Sveitarfélag

2104039

Minnisblað íþrótta- og tómstundafulltrúa um stöðu verkefnisins
Lagt fram
Sveitarfélagið er þátttakandi í verkefninu "Barnvænt sveitarfélag", í samstarfi við UNICEF á Íslandi. Í minniblaði íþrótta- og tómstundafulltrúa kemur fram að verkefnið sé í biðstöðu, en að hafist verði handa að nýju við innleiðinguna í haust.

Afgreiðsla bæjarráðs:

Minnisblaðið lagt fram.

4.Framkvæmdir 2021

2104116

Staða framkvæmda 13.7.2021
Lagt fram
Í yfirlitinu kemur fram staða nýframkvæmda og viðhaldsverkefna, sem í öllum megin atriðum eru í samræmi við verk- og tímaáætlanir.

Afgreiðsla bæjarráðs:

Yfirlitin lögð fram.

5.Mánaðarleg rekstraryfirlit 2021

2104142

Drög að uppgjöri pr. 30.06.2021 (rekstrarreikningur 1.1.- 30.6.2021; efnahagsreikningur 30.6.2021, sjóðstreymisyfirlit 1.1.-30.6.2021, ásamt sundurliðunum).
Lagt fram
Í uppgjörinu kemur m.a. fram að þrátt fyrir innbyrðis sveiflur í rekstrinum, þ.e. frávik frá samþykktri áætlun, er reksturinn í heild sinni samkvæmt áætlun.

Afgreiðsla bæjarráðs:

Uppgjörið og yfirlitin lögð fram.

6.Viðaukar við fjárhagsáætlun 2021

2104118

Viðaukar við fjárhagsáætlun 2021 nr. 5, 6, 7, 8, 9, 10, 11 og 12 lagðir fram til samþykktar.
Samþykkt
Eftirfarandi viðaukar eru lagðir fram til afgreiðslu bæjarráðs:

Viðauki nr. 5: Styrkur frá styrktarsjóði Eignarhaldsfélags BÍ til viðgerðar á Arahólsvörðu, kr. 500.000. Tekjur eignasjóðs hækka sem þessu nemur og kemur til hækkunar á handbæru fé.

Viðauki nr. 6: Styrkur frá Félagsmálaráðuneytinu að fjárhæð kr. 579.590, annars vegar styrkur til að efla virkni eldri borgara (kr. 207.400) og hins vegar styrkur til að efla virkni, vellíðan og félagsfærni barna í viðkvæmri stöðu (kr. 372.190) Styrkirnir verða nýttir til námskeiðshalds og eru viðkomandi gjaldalyklar hækkaðir sem því nemur. Viðaukinn hefur ekki áhrif á handbært fé.

Viðauki nr. 7: Jöfnunarsjóður sveitarfélaga hefur endurskoðað áætlun framlaga vegna lækkunar á tekjum af fasteignaskatti, í hlut sveitarfélagsins kemur kr. 2.844.283. Kemur til hækkunar á handbæru fé.

Viðauki nr. 8: Jöfnunarsjóður sveitarfélaga hefur samþykkt að styrkja sveitarfélagið vegna ráðgjafaverkefna í tengslum annars vegar við valkostagreiningu (kr. 3.000.000) og vegna úttektar á rekstri og fjárhag sveitarfélagsins (kr. 4.546.133). Framlögin koma til hækkunar á tekjum frá Jöfnunarsjóði og til hækkunar á viðkomandi útgjaldaliðum. Engin áhrif á handbært fé.

Viðauki nr. 9: Samkvæmt ábendingum Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja var sveitarfélaginu gert að fjarlægja asbest úr fasteigninni Hafnargötu 101. Kostnaður við verkefnið var kr. 3.189.903, og kemur til lækkunar á handbæru fé.

Viðauki nr. 10: Tekjur sveitarfélagsins af staðgreiðslu (útsvari) fyrstu 6 mánuði ársins reynast vera talsvert hærri en áætlun gerir ráð fyrir, eða sem nemur um 31 m.kr. Miðað við sömu þróun gerir framreikningur ráð fyrir að útsvarstekjur ársins vegna staðgreiðslu hækki um 67 m.kr. Kemur til hækkunar á handbæru fé.

Viðauki nr. 11: Launakostnaður grunnskóla og tónlistarskóla er hærri en samkvæmt áætlun, m.a. vegna langtímaveikinda og afleiddra þátta. Hækka þarf áætlun í heild sinni um kr. 68.353.327, sem kemur til lækkunar á handbæru fé.

Viðauki nr. 12: Niðurstaða eftirágreiddrar álagningar útsvars liggur nú fyrir. Samkvæmt niðurstöðunni er áætlunin 10 m.kr. hærri en áætlun sveitarfélagsins gerði ráð fyrir, og kemur hún því til hækkunar á handbæru fé.


Afgreiðsla bæjarráðs:

Viðaukarnir samþykktir samhljóða.

7.Fjárhagsáætlun 2022-2026

2106039

Fyrsta umfjöllun bæjarráðs um fjárhagsáætlun 2022 - 2026. Drög að verk- og tímaáætlun lögð fram til kynningar og samþykktar.
Samþykkt
Afgreiðsla bæjarráðs:

Bæjarráð samþykkir verk- og tímaáætlunina.

8.Beiðni um styrk til heilsueflingar

2105012

Áætlun HSS um kostnað við verkefnið.
Hafnað
Málið var áður á dagskrá bæjarráðs, en frestað þar til viðbótarupplýsingar hefðu borist.

Afgreiðsla bæjarráðs:

Bæjarrráð telur sér ekki fært að verða við erindinu að þessu sinni.

9.Umsókn um lóð - Breiðuholt 1A

2107017

Ástríkur ehf. sækir um einbýlishúsalóðina Breiðuholt 1a. Umsækjandinn uppfyllir skilyrði úthlutunarskilmála.
Samþykkt
Afgreiðsla bæjarráðs:

Bæjarráð samþykkir umsóknina

10.Umsókn um lóð - Skyggnisholt 1

2107019

Ástríkur ehf. sækir um lóðina Skyggnisholt 1. Umsækjandi uppfyllir skilyrðu úthlutunarskilmála.
Samþykkt
Afgreiðsla bæjarráðs:

Bæjarráð samþykkir umsóknina.

11.Umsókn um lóð - Skyggnisholt 3

2107020

Ástríkur ehf. sækir um lóðina Skyggnisholt 3. Umsækjandi uppfyllir skilyrði um úthlutunarskilmála.
Samþykkt
Afgreiðsla bæjarráðs:

Bæjarráð samþykkir umsóknina.

12.Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála-Tilkynning um kæru

2107024

Lagt fram
Afgreiðsla bæjarráðs:

Erindið lagt fram. Lögfræðingi sveitarfélagsins hefur verið falið að vinna að málinu fyrir hönd sveitarfélagsins.

Fundi slitið - kl. 07:30.

Getum við bætt efni síðunnar?