Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga

191. fundur 16. júní 2015 kl. 06:30 - 08:30 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
  • Bergur Álfþórsson formaður
  • Ingþór Guðmundsson varaformaður
  • Guðbjörg Kristmundsdóttir 1. varamaður
  • Jóngeir Hjörvar Hlinason áheyrnarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Ásgeir Eiríksson bæjarstjóri
Dagskrá

1.Kæra nr: 41/2015 Kæra vegna ákvörðunar Sveitarf. Voga að veita framkvæmdaleyfi til Landsnets hf. vegna lagningar Suðurnesjalínu 2.

1506006

Kæra til Úrskurðarnefndar Umhverfis- og auðlindamála vegna veitingu framkvæmdaleyfis til Landsnets hf. vegna lagningar Suðurnesjalínu 2
Lagt fram erindi Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, kæra 41_2015 vegna lagningu Suðurnesjalínu 2, með kröfu um stöðvun framkvæmda. Umbeðin gögn hafa þegar verið send nefndinni.

2.Mál nr. 40/2015. Kæra vegna ákvörðunar Sveitarf. Voga að veita framkvæmdaleyfi til Landsnets hf. vegna lagningar Suðurnesjalínu 2.

1506005

Kæra til Úrskurðarnefndar Umhverfis- og auðlindamála um veitingu framkvæmdaleyfis vegna Suðurnesjalínu 2
Lagt fram erindi Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, kæra 40_2015 vegna lagningu Suðurnesjalínu 2, með kröfu um stöðvun framkvæmda. Umbeðin gögn hafa þegar verið send nefndinni.

3.Stjórnsýslukæra, Ágústs S. Guðmundssonar

1409016

Úrskurður í kærumálinu liggur fyrir.
Lagður fram úrskurður Innanríkisráðuneytisins dags. 3.júní 2015 í stjórnsýslumáli nr. IRR14080078, kæra Ágústs Sævars Guðmundssonar á stjórnsýslu sveitarfélagsins Vogum. Í úrskurði ráðuneytisins er kæru vegna álagningar og innheimtu sveitarfélagsins Voga á fasteignagjöldum 2014 vísað frá. Lagt fram til kynningar.

4.Húsnæðismál bæjarskrifstofu

1305031

Fyrir liggur kostnaðaráætlun um breytingar á húsnæði bæjarskrifstofunnar.
Lögð fram kostnaðaráætlun um breytingar á húsnæði bæjarskrifstofunnar. Málið er áfram til úrvinnslu hjá bæjarstjóra.

5.Sameiginlegt beitarhólf á Reykjanesskaga

1505020

Erindi Landgræðslunnar vegna sameiginlegs beitarhólfs á Reykjanesskaga
Lagt fram erindi Landgræðslunnar dags. 22.05.2015 varðandi beit í sameiginlegu beitarhólfi á Reykjanesskaga.

6.Sóknaráætlun Suðurnesja 2015-2019

1506001

Beiðni um tilnefningu í nefnd
Lagt fram erindi framkvæmdastjóra SSS v/ Sóknaráætlunar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum 2015 - 2019. Óskað er eftir tilnefningu 3 - 4 einstaklinga frá hverju sveitarfélagi til þátttöku í verkefninu. Málið er þegar afgreitt.

7.Stofnun byggðasamlags um brunavarnir á Suðurnesjum

1406031

Undirritað samkomulag um stofnun byggðasamlags um starfsemi Brunavarna Suðurnesja
Lagt fram undirritað samkomulag um stofnun byggðasamlags um starfsemi Brunavarna Suðurnesja, dags. 27.5.2015, ásamt fylgigögnum, þ.m.t. stofnsamnings um Brunavarnir Suðurnesja bs. Bæjarráð fagnar þessum áfanga, og samþykkir stofnsamninginn fyrir sitt leyti, og mun tilnefna mann í stjórn byggðasamlagsins á fundi bæjarstjórnar 24. júní 2015.

8.Viðbygging Fjölbrautarskóla Suðurnesja

1504018

Fyrir liggur útreikningur á kostnaðarhlutdeild sveitarfélagsins við verkefnið
Lagður fram útreikningur á kostnaðarhlutfalli vegna fyrirhugaðrar stækkunar Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Hlutdeild Sveitarfélagsins Voga er kr. 1.948.080. Bæjarráð tekur jákvætt í erindið, sem jafnframt er vísað til meðferðar við gerð fjárhagsáætlunar 2016 - 2019.

9.Fluglestin

1506014

Runólfur Ágústsson og Kjartan Eiríksson eru gestir fundarins og kynna áform um Fluglestina, þ.e. lest milli Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar og höfuðborgarsvæðisins.
Gestir fundarins, Runólfur Ágústsson og Kjartan Eiríksson, kynntu verkefni um lagningu hraðlestar milli Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar og höfuðborgarsvæðisins.

10.Beiðni um umsögn vegna rekstrarleyfis.

1505001

Breyting frá fyrri umsókn, ný beiðni um umsögn
Lögð fram að nýju umsókn um rekstrarleyfi vegna heimagistingar í Akurgerði 15. Breyting er frá fyrri umsókn þess efnis að sótt er um gististað í flokki I (heimagisting). Bæjarráð gerir ekki athugasemd við umsóknina.

11.Fundargerðir Heklunnar 2015

1502066

Fundargerð 43. fundar stjórnar Heklunnar, Atvinnuþróunarfélags Suðurnesja
Lögð fram fundargerð 43. fundar stjórnar Heklunnar, Atvinnuþróunarfélags Suðurnesja.

12.Fundargerðir Dvalarheimilis aldraðra á Suðurnesjum 2015

1504001

Fundargerð aðalfundar DS frá 22.04.2015 ásamt tillögu sem afgreidd var á fundinum.
Lögð fram fundargerð aðalfundar DS frá 22.04.2015, ásamt tillögu sem afgreidd var á fundinum.

13.Fundargerðir Fjölskyldu- og velferðarnefndar Sandgerðis, Garðs og Voga 2015

1501026

Fundargerð 100. fundar Fjölskyldu- og velferðarnefndar
Lögð fram fundargerð 100. fundar Fjölskyldu- og velferðarnefndar.

14.Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2015

1501020

Fundargerð 375. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands
Lögð fram fundargerð 375. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands

15.Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Suðurnesja 2015

1503019

Fundargerð 250. fundar stjórnar HES. Sveitarfélagið þarf að staðfesta ákvörðun nefndarinnar um gjaldskrárbreytingu.
Lögð fram fundargerð 250. fundar stjórnar HES. Bæjarráð staðfestir fyrir sitt leyti ákvörðun nefndarinnar um hækkun tímagjalds útseldrar vinnu HES, sbr. 3. mál fundargerðarinnar.

16.Fundargerðir Kölku 2015 / Sorpeyðingarstöð Suðurnesja.

1501008

Fundargerð aðalfundar Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja 2015. Fundargerð 459. fundar stjórnar SS
Lögð fram fundargerð aðalfundar Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja 2015.
Lögð fram fundargerð 459. fundar stjórnar SS.

17.Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2015

1502020

Fundargerð 828. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Lögð fram fundargerð 828. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.

18.Fundargerðir Svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja

1502021

Fundargerð 4. fundar Svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja
Lögð fram fundargerð 4. fundar Svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja.

19.Fundargerðir Þekkingarseturs Suðurnesja 2015

1504048

Fundargerð þriðja ársfundar Þekkingarseturs Suðurnesja
Lögð fram fundargerð þriðja ársfundar Þekkingarseturs Suðurnesja.

20.Fundargerðir Þjónustuhóps aldraðra á Suðurnesjum 2015

1501019

Fundargerð 98. fundar þjónustuhóps aldraðra
Lögð fram fundargerð 98. fundar þjónustuhóps aldraðra.

21.Fundir Reykjanes jarðvangs 2015

1501021

Fundargerð 18. fundar stjórnar Reykjanes jarðvangs
Fundargerð 19. fundar stjórnar Reykjanes jarðvangs
Lögð fram fundargerð 18. fundar stjórnar Reykjanes jarðvangs.
Lögð fram fundargerð 19. fundar stjórnar Reykjanes jarðvangs.

22.Fundir Stjórnar Brunavarna Suðurnesja 2015

1502037

Fundargerð 250. fundar stjórnar BS
Lögð fram fundargerð 250. fundar stjórnar BS.

Fundi slitið - kl. 08:30.

Getum við bætt efni síðunnar?