Ingvar Jónsson hönnuður sækir um byggingarleyfi fyrir hönd Guðnýu Svövu Guðmundsdóttir með umsókn dags. 16.01.2026 til að byggja 273,6 m2 einbýlishús ásamt bílskúr, lóðarstærð er 896 m2 og nýtingarhlutfall 0.31.
Byggingaráformin eru samþykkt. Umsóknin samræmist aðal- og deiliskipulagi, mannvirkjalögum nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012. Útgáfa byggingarleyfis er háð skilyrðum 2.4.4. gr. byggingarreglugerðar. Áskilin er öryggis- og lokaúttekt byggingarfulltrúa, skv. ákvæðum 3.8. og 3.9. kafla byggingarreglugerðar. Byggingarleyfi verður gefið út þegar búið er að skila inn tilskyldum hönnunargögnum, tryggingum og byggingarleyfisgjöld greidd.
2.Byggingarleyfi Stapavegur 1
2601040
Þórhallur Garðarsson hönnuður sækir um byggingarheimild fyrir hönd Benchmark Genetics Iceland hf. með umsókn dags. 21.01 2026 til að byggja viðbyggingu sem hýsir starfsmannaaðstöðu alls 17m2
Byggingaráformin eru samþykkt. Umsóknin samræmist aðal- og deiliskipulagi, mannvirkjalögum nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012. Útgáfa byggingarleyfis er háð skilyrðum 2.4.4. gr. byggingarreglugerðar. Áskilin er öryggis- og lokaúttekt byggingarfulltrúa, skv. ákvæðum 3.8. og 3.9. kafla byggingarreglugerðar. Byggingarleyfi verður gefið út þegar búið er að skila inn tilskyldum hönnunargögnum, tryggingum og byggingarleyfisgjöld greidd.
3.Byggingarleyfi Brekkugata 3
2511007
Róbert Svavarsson hönnuður sækir um byggingarheimild fyrir hönd Sveins Eyfjörð Jakobssonar með umsókn dags. 03.11 2025 til að byggja viðbyggingu milli íbúðarhúss og bílskúrs ásamt viðbyggingu á suðvestur hluta húss. Málið hefur hlotið grendarkynningu án athugasemda.
Byggingaráformin eru samþykkt. Umsóknin samræmist aðal- og deiliskipulagi, mannvirkjalögum nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012. Útgáfa byggingarleyfis er háð skilyrðum 2.4.4. gr. byggingarreglugerðar. Áskilin er öryggis- og lokaúttekt byggingarfulltrúa, skv. ákvæðum 3.8. og 3.9. kafla byggingarreglugerðar. Byggingarleyfi verður gefið út þegar búið er að skila inn tilskyldum hönnunargögnum, tryggingum og byggingarleyfisgjöld greidd.
4.Flekkuvík 2 - Húsarústir eftir bruna
2508009
Ríkiseignir(þ.m.t jarðeignir ríkisins) óska eftir byggingarleyfi fyrir niðurrifi brunarústa íbúðarhússins að Flekkuvík 2. Húseigandi mun ekki sækja um leyfi til endurbyggingar á íbúðarhúsinu. Málið hefur áður hlotið jákvæða umsögn skipulagsnefndar sveitafélagsins.
Umsókn er samþykkt. Útgáfa byggingarleyfis er háð skilyrðum 2.4.4 gr. Áskilin er úttekt við lok niðurrifs mannvirkis skv. 16.gr. mannvirkjalaga nr. 123/2010. Verkið skal framkvæma að höfðu samráði við eftirlitsmann sveitafélagsins.
Leyfið tekur gildi þegar byggingastjóri ásamt tryggingu er komin á verkið og tilskylin gjöld hafa verið greidd. Tilkynna skal leyfisveitanda þegar niðurrifi er lokið og mun úttekt fara fram við lok niðurrifs.