Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

78. fundur 02. desember 2022 kl. 11:00 - 11:15 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
  • Harpa Rós Drzymkowska
Starfsmenn
  • Davíð Viðarsson ritari
Fundargerð ritaði: Davíð Viðarsson skipulags- og byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi umfangsflokkur 2 Skyggnisholt 1

2211034

Ragnar Magnússon sækir um samþykkt byggingaráforma og byggingarleyfi fyrir eiganda, Ástríkur ehf. kt: 610115-0120 skv. umsókn dags. 27.09.2022. Sótt er um fyrir 6 íbúða fjölbýlishúsi skv. aðaluppdráttum 27.09.2022, gerða af I62 kt: 650808-0960.
Byggingaráformin eru samþykkt. Umsóknin samræmist aðal- og deiliskipulagi, mannvirkjalögum nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012. Útgáfa byggingarleyfis er háð skilyrðum 2.4.4. gr. byggingarreglugerðar. Áskilin er öryggis- og lokaúttekt byggingarfulltrúa, skv. ákvæðum 3.8. og 3.9. kafla byggingarreglugerðar.

2.Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi umfangsflokkur 2 Skyggnisholt 3

2211035

Ragnar Magnússon sækir um samþykkt byggingaráforma og byggingarleyfi fyrir eiganda, Ástríkur ehf. kt: 610115-0120 skv. umsókn dags. 21.10.2022. Sótt er um fyrir 8 íbúða fjölbýlishúsi skv. aðaluppdráttum 20.10.2022, gerða af I62 kt: 650808-0960.
Byggingaráformin eru samþykkt. Umsóknin samræmist aðal- og deiliskipulagi, mannvirkjalögum nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012. Útgáfa byggingarleyfis er háð skilyrðum 2.4.4. gr. byggingarreglugerðar. Áskilin er öryggis- og lokaúttekt byggingarfulltrúa, skv. ákvæðum 3.8. og 3.9. kafla byggingarreglugerðar.

Fundi slitið - kl. 11:15.

Getum við bætt efni síðunnar?