Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

66. fundur 05. ágúst 2021 kl. 11:30 - 11:45 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
  • Harpa Rós Drzymkowska
  • Davíð Viðarsson ritari
Fundargerð ritaði: Davíð Viðarsson skipulags- og byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Breiðuholt 3 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

2104146

Stefán Þ Ingólfsson sækir um samþykkt byggingaráforma og byggingarleyfi fyrir eiganda Hönnu Lísu Hafsteinsdóttur skv. umsókn dags. 05.01.2021. Sótt er um fyrir einbýlishúsi skv. aðaluppdráttum dags.02.11.2020, gerða af Mannvirkjameistarnum ehf.
Samþykkt
Afgreiðsla: Byggingaráformin eru samþykkt. Skipulagsnefnd hefur afgreitt óverulegt frávik skv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna nýtingarhlutfalls. Umsóknin samræmist mannvirkjalögum nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012. Útgáfa byggingarleyfis er háð skilyrðum 2.4.4. gr. byggingarreglugerðar. Áskilin er öryggis- og lokaúttekt byggingarfulltrúa, skv. ákvæðum 3.8. og 3.9. kafla byggingarreglugerðar.

2.Grænaborg vinnubúðir - umsókn um stöðuleyfi

2108003

Jáverk ehf sækir um fyrir vinnubúðum á Grænuborgasvæðinu. Vinnubúðir eru úr gámaeiningum samtals 8 gámum. Staðsetning er við Gíslaborg.
Samþykkt
Afgreiðsla: Stöðuleyfi fyrir vinnubúðum er samþykkt.

Fundi slitið - kl. 11:45.

Getum við bætt efni síðunnar?