Skipulagsnefnd Sveitarfélagsins Voga

79. fundur 14. apríl 2026 kl. 17:30 - 19:05 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
  • Andri Rúnar Sigurðsson formaður
  • Ingþór Guðmundsson aðalmaður
  • Friðrik V. Árnason aðalmaður
  • Guðmundur Kristinn Sveinsson aðalmaður
  • Gísli Stefánsson áheyrnarfulltrúi
  • Inga Sigrún Baldursdóttir varamaður
Starfsmenn
  • Davíð Viðarsson Skipulagsfultrúi
  • Ólafur Melsted Sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs
Fundargerð ritaði: Davíð Viðarsson Skipulagsfulltrúi
Dagskrá

1.Miðbæjarreitur (Skyggnisholt 16) - Framtíðarþróun

2212011

Málið tekið fyrir að nýju. Áhugasamir aðilar um lóðina kynna fyrir nefndinni mögulegar tillögur þjónustubygginga á lóðinni.
Afgreiðsla skipulagsnefndar: Nefndin tekur vel í erindið og þakkar Gunnari og Jóni Bjarna Kristjánssonum fyrir kynninguna og samtalið. Lagt er til að þeir kynni erindið fyrir bæjarráði.

2.Svæðisskipulag Suðurnesja 2024-2040

2411027

Á 57. fundi Svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja samþykkti nefndin, Svæðisskipulag Suðurnesja 2024-2040. Svæðisskipulagið samanstendur af skipulagsgreinargerð, umhverfismatsskýrslu og vatnsverndaruppdrætti, í samræmi við 1. mgr. 25. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.



Svæðisskipulagið er hér með lagt fram til samþykktar að hálfu Sveitarfélagsins Voga.
Afgreiðsla skipulagsnefndar: Nefndin samþykkir Svæðisskipulag Suðurnesja 2024-2040 í samræmi við 1. mgr. 25. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.

3.Deiliskipulagsbreyting við Jónsvör 3, 5 og 7

2604010

Lögð er fyrir deiliskipulagsbreyting vegna Jónsvarar 3, 5 og 7. Byggingarreitir á lóðum nr. 3, 5 og 7 við Jónsvör stækka úr 660 m2 í 729 m2. Byggingarreitirnir breikka um 2 m til norðurs og verða eftir breytingu 5,7 m frá lóðarmörkum til norðurs.
Afgreiðsla skipulagsnefndar: Það er mat skipulagsnefndar að um óverulega breytingu sé að ræða skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin felur Umhverfis- og skipulagssviði að grenndarkynna tillöguna í samræmi við 2. mgr. 43. gr. og leggur til við bæjarstjórn að fyrirliggjandi tillaga verði samþykkt með fyrirvara um niðurstöðu grenndarkynningar.

4.Fyrirspurn vegna stækkunar á byggingarreit - Hvammsdalur 1

2604011

Óskað er eftir stækkun á byggingarreit til vesturs skv. meðfylgjandi gögnum.
Afgreiðsla skipulagsnefndar: Skipulagsnefnd óskar eftir teikningum af fyrirhugaðri stækkun áður en frekari ákvörðun er tekin.

5.Innviðalóð undir tækjahús

2407029

Lögð fram tillaga að útfærslu svæðis norðan Hafnargötu og sunnan tjaldsvæðis þar sem komið er fyrir innviðalóð fyrir tækjahús auk þess sem núverandi gámasvæði er fest í sessi, á hluta svæðis þar sem nú er skilgreint bílastæði í gildandi deiliskipulagi.
Afgreiðsla skipulagsnefndar: Skipulagsnefnd tekur jákvætt í fyrirliggjandi tillögu og felur skipulagsfulltrúa að láta vinna að breytingu á deiliskipulagi „Íþróttasvæði við Hafnargötu og Aragerði“ í samræmi við fyrirliggjandi tillögu.

6.Fyrirspurn - Hopp hjól í Vogum

2604012

Hopp Reykjanesbær ehf. hefur áhuga á að koma með Hopp hjól í Voganna.
Afgreiðsla skipulagsnefndar: Nefndin felur umhverfis- og skipulagssviði að ræða við aðila nánar um málið.

7.Fyrirspurn um breytingar á deiliskipulagi í Gíslaborg

2604013

Sú breyting sem lögð er til að á lóðunum Gíslaborg 1-5, 7, 10, 12, 14, 16 og 18 verði heimilt að byggja tveggja hæða sex íbúða fjölbýlishús og þá er lagt til að á lóðunum við Gíslaborg 9, 11, 13, 15 og 17 verði heimilað að byggja 4-5 íbúða raðhús á einni hæð.
Afgreiðsla skipulagsnefndar: Tekið er vel í erindið og óskar nefndin eftir að fá skipulagsuppdrátt með fyrirhuguðum breytingum til umfjöllunar. Nefndin vil ítreka að Grænabyggð ehf. er með ákveðin fjölda íbúða á svæðinu.

Fundi slitið - kl. 19:05.

Getum við bætt efni síðunnar?