Skipulagsnefnd Sveitarfélagsins Voga

78. fundur 17. mars 2026 kl. 17:30 - 19:30 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
  • Guðrún Sigurðardóttir varaformaður
  • Andri Rúnar Sigurðsson formaður
  • Ingþór Guðmundsson aðalmaður
  • Friðrik V. Árnason aðalmaður
  • Guðmundur Kristinn Sveinsson aðalmaður
  • Eðvarð Atli Bjarnason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Davíð Viðarsson Skipulagsfultrúi
  • Ólafur Melsted Sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs
  • Pálmar Halldórsson Byggingarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Davíð Viðarsson Skipulagsfulltrúi
Dagskrá

1.Umhirðuáætlun 2026

2502021

Farið yfir umhirðumál í sveitarfélaginu. Aðilar frá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja koma á fundinn.
Afgreiðsla skipulagsnefndar: Nefndin þakkar aðilum frá Heilbrigðiseftirlitnu fyrir komuna á fundinn og fyrir gott samtal um umhirðumál í sveitarfélaginu. Nefndin hvetur íbúa sveitarfélagsins til að halda umhverfi sínu snyrtilegu.

2.Umsókn um lóð - Tjarnargata 11

2602051

Erindinu er vísað til nefndarinnar en sótt erum um lóð að Tjarnargötu 11 og óskað er eftir breyttu skipulag lóðarinnar ásamt öðrum lóðum sem viðkomandi hefur til umráða.
Afgreiðsla skipulagsnefndar: Nefndin tekur vel í erindið og óskar eftir frekari gögnum.

3.Fyrirspurn vegna stækkunar - Jónsvör 5

2602046

Óskað er eftir stækkun umfram það sem heimilt er í skipulagi. Stækkun að 10 metrum að breidd og 30 metra samtals 300 fermetrar.
Afgreiðsla skipulagsnefndar: Nefndin tekur vel í erindið. Óskað er fullnægjandi gagna vegna skipulag lóða.

4.Umsókn um byggingarheimild Hvassahraun 22A

2602049

Lagt er fyrir nefndina aðaluppdrættir vegna umsóknar um byggingarheimild við Hvassahraun 22A.
Afgreiðsla skipulagsnefndar: Nefndin hafnar erindinu. Það er mat nefndarinnar að fyrirhuguð áform séu ekki skv. deiliskipulagi. Um sé að ræða þjónustu í stærri skala en heimilað er þar sem hámarksfjöldi gesta er 8 manns í húsi. Yfirbragð húsa á að vera í anda frístundabyggðar skv. deiliskipulagi og kvaðir í skipulagi settar til að takmarka umferð um svæði og að ónæði haldist í lágmarki.

5.Innviðalóð undir tækjahús

2407029

Aðilar Mílu hf. koma á fund nefndarinnar vegna vegna tillaga um staðsetningu masturs og tækjahúss fyrir Mílu fyrir þéttbýlið.
Afgreiðsla skipulagsnefndar: Nefndin þakkar aðilum frá Mílu fyrir komuna á fundinn. Nefndin samþykkir tillögu Mílu um staðsetningu masturs og húss við grenndargáma við Hafnargötu.

Fundi slitið - kl. 19:30.

Getum við bætt efni síðunnar?