Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja kemur á fundinn vegna umhirðumál í sveitarfélaginu.
Afgreiðsla skipulagsnefndar: Málinu er frestað þar sem aðilar HES afboðuðu sig.
2.Innviðalóð undir tækjahús
2407029
Strendingur ehf. leggur fram tillögur að staðsetningu masturs og tækjahús fyrir Mílu hf.
Afgreiðsla skipulagnefndar: Nefndin óskar eftir því að fá aðila frá Mílu á fund nefndarinnar.
3.Fyrirspurn um byggingarmála - Hafnargata 28
2602038
Óskað er eftir að breyta einbýlishúsi í parhús. Áætlað byggingarmagn viðbyggingar yrði 150-220 fm. Núverandi byggingarmagn er 175 fm. Nýtingarhlutfall eftir stækkun áætlað um 0,3 af lóð.
Afgreiðsla skipulagsnefndar: Fyrirspurn samræmist aðalskipulagi en deiliskipulag liggur ekki fyrir og er í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Samþykkt er að grenndarkynna þegar fullnægjandi gögn hafa borist í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 áður. Erindið skal kynna aðliggjandi lóðum, Hafnargötu 26 og 30, Kirkjugerði 2,3 og 4 og Heiðargerði 4.