Skipulagsnefnd Sveitarfélagsins Voga

46. fundur 17. janúar 2023 kl. 17:30 - 18:38 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
  • Guðrún Sigurðardóttir varaformaður
  • Ingþór Guðmundsson aðalmaður
  • Friðrik V. Árnason aðalmaður
  • Guðmundur Kristinn Sveinsson aðalmaður
  • Gísli Stefánsson áheyrnarfulltrúi
  • Inga Sigrún Baldursdóttir varamaður
Starfsmenn
  • Davíð Viðarsson sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs
  • Gunnar Axel Axelsson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Davíð Viðarsson Sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs
Dagskrá

1.Umsókn um framkvæmdaleyfi Suðurnesjalína 2

2104113

Málið er tekið fyrir að nýju. Sveitarfélagið hefur yfirfarið nýjustu gögn Landsnets í málinu. Fyrir liggur greinargerð Dr. Ástu Rutar Hjartardóttur um bergsprungur í nágrenni Voga og minnisblað Lotu verkfræðistofu um rýni á mekanísku þoli jarðstrengja. Einnig liggur fyrir umsögn Landsnets vegna framangreindra gagna.
Afgreiðsla skipulagsnefndar:
Áður en tekin verður endanleg ákvörðun í málinu óskar skipulagsnefnd eftir að Landsnet upplýsi um eftirfarandi atriði:

1. Hver kostnaðarmunur er á valkosti B (jarðstreng með Reykjanesbraut) og valkosti C (loftlínu meðfram núverandi línu).
2. Nánari gögnum sem geri á hlutlægan hátt grein fyrir þeim áhrifum á kerfi Landsnets að leggja Suðurnesjalínu 2 sem jarðstreng þ.m.t. upplýsingum um hvar þörf sé á að leggja slíka strengi í framtíðinni sem mögulega geti haft áhrif á ráðstöfun jarðstrengja vegna Suðurnesjalínu 2.

Auk framangreinds telur nefndin, í ljósi þess að goshrina er nú hafin á Reykjanesi, þ.e. gosið hefur tvisvar eftir að skýrsla um umhverfismat og álit Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar var unnið, og að í málinu liggja fyrir gögn óháðra vísindamanna um að sú goshrina kalli á endurskoðun fyrri áætlana um staðsetningar á mikilvægum innviðum eins og Suðurnesjalínu 2, auk þess sem fyrir liggja misvísandi upplýsingar að mati nefndarinnar um öryggi valkosts C miðað við aðra valkosti m.t.t. náttúruvár, að nauðsynlegt sé, áður en endanleg ákvörðun verður tekin í málinu, að óska álits Skipulagsstofnunar á því, skv. 28. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum framkvæmda og áætlana nr. 111 frá 2021, hvort endurskoða þurfi umhverfismat framkvæmdarinnar í heild eða hluta. Nauðsynlegt sé að það liggi fyrir mat óháðs aðila á jarðvá á svæðinu m.t.t. þeirra valkosta sem uppi eru.

Óháð framangreindu en í tengslum við málið vill nefndin taka fram að hún undrast mjög framgöngu Landsnets síðustu vikur. sbr. m.a. fréttatilkynningu sem fyrirtækið sendi út þann 21 .desember sl. sem er ekki hægt að túlka sem neitt annað en áróður og tilraun fyrirtækisins til að fría sig ábyrg á þeim langvarandi töfum sem hafa orðið á lagningu Suðurnesjalínu 2 og með röngu að varpa ábyrgðinni á því yfir á Sveitarfélagið Voga. Slík framkoma sæmi ekki opinberu fyrirtæki.

Í því samhengi vill nefndin benda á að Landsnet hf. er opinbert fyrirtæki, stofnað með lögum, starfar samkvæmt sérleyfi og er háð opinberu eftirliti. Fyrirtækið er í eðli sínu einskonar stjórnvald. Félaginu ber að koma fram í samræmi við það í samskiptum sínum við aðra og gæta að jafnræði og hlutlægni. Félagið á ekki að reka einhverskonar áróðursherferð. Framganga fyrirtækisins gagnvart sveitarfélaginu, sem m.a. felst í því að halda fram órökstuddum fullyrðingum um að samfélagið á Suðurnesjum hafi orðið fyrir milljarða tapi, sem ætla má að fyrirtækið telji á ábyrgð leyfisveitanda, er því ekki til sóma og skapar vantraust og ótrúverðugleika. Eðlilegt væri að til þess bærir aðilar s.s. Umboðsmaður Alþingis, aðrar eftirlitsstofnanir eða eigendur Landsnets könnuðu framgöngu félagsins í málinu.“

2.Kvörtun vegna starfsemi svínabúsins að Minni Vatnsleysu

2301011

Lagt er fyrir bréf íbúa Stóru - Vatnsleysu og nágranna svínabúsins.
Lagt fram
Afgreiðsla skipulagsnefndar: Lagt fram.


3.Fyrirspurn um byggingarmál - Heiðarholt 5 (Linde Gas ehf.)

2301009

Þórhallur Garðarsson sendir inn umsóknir fyrir Linde Gas ehf. Sótt er um að bæta við 4 nýjum tönkum á lóðina, sunnan megin við núverandi tanka. Einnig er sótt um stækkun byggingarreits um 150 fermetra. Fyrirhugað er að reisa gámaskrifstofur með tengigang við núverandi þjónustuhús mhl. 05. Að auki óskar Linde gas eftir afnotum af lóðinni Heiðarholti 3, fyrirhugað er að nýta lóðina sem geymslusvæði fyrir lárétta tanka. Sett yrði girðing á lóðina.
Afgreiðsla skipulagsnefndar: Í ljósi þess að fallið hafi verið frá uppbyggingu skv. viljayfirlýsingu við sveitarfélagið telur nefndin réttast að málið fái umfjöllun í bæjarráði/bæjarstjórn áður en niðurstaða nefndarinnar liggi fyrir.

4.Miðbæjarreitur (Skyggnisholt 16) - Framtíðarþróun

2212011

Málinu var frestað en er tekið fyrir að nýju. Lagt er til að nefndin skoði framtíðarþróun svæðisins.
Frestað
Afgreiðsla skipulagsnefndar: Nefndin frestar málinu.

Fundi slitið - kl. 18:38.

Getum við bætt efni síðunnar?