Íbúafundur um velferð barna og unglinga í Sveitarfélaginu Vogum

Sveitarfélagið Vogar býður öllum þeim sem koma að uppeldi, kennslu og starfi með börnum og unglingum á opinn íbúafund fimmtudaginn 3. desember kl. 17:00-18:30 í Tjarnarsal.
Við hvetjum foreldra, forsjáraðila, kennara, þjálfara, starfsfólk í frístunda- og félagsstarfi, auk annarra áhugasamra íbúa, til að mæta og taka þátt í mikilvægu samtali um framtíð barna og ungmenna í Vogum. Börn og unglingar eru einnig hjartanlega velkomin.
 
Á fundinum mun Hjördís Eva Þórðardóttir, verkefnisstjóri farsældar á Suðurnesjum, kynna niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar fyrir Sveitarfélagið Voga.
 
Að kynningu lokinni verður vinnustofa þar sem þátttakendur ræða saman um það hvernig við getum unnið sameiginlega að því að efla velferð, líðan og tækifæri barna og unglinga í sveitarfélaginu.
 
Komdu og leggðu þitt af mörkum til að gera gott samfélag enn betra fyrir börn og unglinga í Vogum.