Bjargvættir - Viðnámsþróttur er ókeypis námskeið fyrir ungmenni á aldrinum 12–16 ára á Suðurnesjum.
Námskeiðið verður haldið í Félagsheimilinu Borunni, Hafnargötu 17, 190 Vogar.
Á námskeiðinu læra þátttakendur grunnatriði skyndihjálpar, hvernig bregðast má við óvæntum aðstæðum og fá þjálfun sem styrkir sjálfstraust og viðnámsþrótt til framtíðar.
Námskeiðið er 4 klst með hléi.
Þátttakendur þurfa að vera skráð áður en námskeiðið hefst og ekki er tekið við skráningum á staðnum. Ef námskeiðið er fullt er ekki hægt að bæta við fleiri þátttakendum. Í lok námskeiðsins bjóðum við þátttakendum að svara nokkrum spurningum um upplifun þeirra af námskeiðinu. Spurningalistinn er nafnlaus og svör ekki rakin til einstaklinga.
Allar frekari upplýsingar í síma 570-4000 og á skrifstofa.sudurnes@redcross.is