Lionsklúbburinn Keilir heldur sína árlegu skötuveislu þann 21. desember næstkomandi og verður hún í Lionshúsinu Sólvöllum að Aragerði 4 milli kl. 16 og 20.
Mörgum finnst ómissandi hefð að borða skötu fyrir jólahátíðina og hefur Lionsklúbburinn Keilir haldið þeim sið í mörg á að bjóða upp á skötu fyrir jólin. Boðið verður upp á bæði skötu og saltfisk.
Verð á hlaðborðinu er kl. 3.900 og frítt fyrir 12 ára og yngri.
Allur ágóði rennur í líknarsjóð.