Menningarverðlaun Sveitarfélagsins Voga 2024

Frístunda- og menningarnefnd Sveitarfélagsins Voga óskar eftir tilnefningum til menningarverðlauna Sveitarfélagsins Voga 2024. Verðlaunin verða veitt við hátíðlega athöfn í Tjarnarsal 17. júní næstkomandi.

 

Hægt er að tilnefna hvort sem er einstakling eða félag.

Tilnefningu þarf að fylgja stutt greinargerð um viðkomandi einstakling eða félag, um starf og viðburði undanfarin ár og þátt hans/þess í að auðga menningar- og félagslíf í sveitarfélaginu.

Frístunda- og menningarnefnd styðst við þá greinargerð við val og kynningu.

 

Tilnefningum skal skila til Íþrótta og tómstundafulltrúa á netfangið gudmundurs@vogar.is  fyrir 15. maí 2024.