Listagjöf

Listahátíð í Reykjavík, með stuðningi frá Mennta- og menningarmálaráðuneyti, býður upp á aðra útgáfu af hinu vel heppnaða verkefni Listagjöf – að þessu sinni um land allt!

Frá og með hádegi næstkomandi mánudag, 14. desember, mun almenningur getað pantað Listagjöf fyrir ástvini á sérhönnuðu vefsvæði listagjof.listahatid.is. Gjöfin er án endurgjalds en takmarkast við eina pöntun á mann. Listagjafirnar verða sem fyrr segir nú í boði um land allt. Allt að 750 gjafir verða í boði og verða þær afhentar helgina 19.-20. desember.

Við hvetjum íbúa Sveitarfélagsins Voga að taka þátt í þessu frábæra verkefni og gefa nágrönnum, ættingjum, vinum, kunningjum eða öðrum svona gjöf.